Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Það virðist flestum hafa komið mjög á óvart á sumardaginn fyrsta þegar yfirlýsing barst fjölmiðlum frá Guðna Ágústsyni, fyrrverandi for- manni Framsóknarflokksins og landbúnaðarráðherra, þess efnis að hann hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér til að leiða lista Framsókn- arflokksins í Reykjavík fyrir borg- arstjórnarkosningarnar í næsta mánuði. Af samtölum blaðamanns við framsóknarmenn má marka að flokksmönnum er mjög brugðið, því menn höfðu bundið miklar vonir við það að Guðni leiddi listann. Höfðu margir fulla trú á því að hann myndi ekki aðeins landa einum borgarfull- trúa í kosningunum, heldur tveimur og þeir bjartsýnustu sögðu þremur. Framsóknarmaður sem rætt var við í gær hélt því fram að þótt árásir í netheimum á Guðna hefðu aug- ljóslega átt þátt í ákvörðun hans væru þær ekkert aðalatriði. Ekki væri búið að gera grein fyrir því hver þáttur stjórnar kjördæmis- sambands Framsóknarflokksins í Reykjavík var í tengslum við ákvörðun hans. Samkvæmt heimildum úr innsta hring er meginskýringin á því að Guðni hætti við á miðvikudagskvöld sú að stjórn kjördæmisráðs Fram- sóknarflokksins í Reykjavík hafnaði þeim hugmyndum sem Guðni kynnti fyrir henni á fundi. Guðni fór með formlegt umboð stjórnar kjördæm- issambandsins í einn sólarhring en áður hafði stjórnin samþykkt með sjö atkvæðum – þrír sátu hjá – að Guðni leiddi listann. Áður hafði Guðni rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsókn- arflokksins, um þá hugmynd sína að framboð Framsóknarflokksins yrði víkkað út og héti Framboð fram- sóknarmanna og flugvallarsinna í Reykjavík. Formaðurinn mun hafa tekið hugmyndinni vel, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þessum hugmyndum Guðna hafnaði stjórn kjördæmisráðsins og vildi að um hreint framsóknarframboð væri að ræða. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fólu hugmyndir Guðna það í sér að öflugir stuðningsmenn flug- vallar í Vatnsmýri gengju til sam- starfs við Framsókn í Reykjavík og hvorir tveggju, þ.e. framsóknar- menn og flugvallarsinnar, myndu eflast við samstarfið. Því mun hann hafa viljað að menn og konur úr hópi flugvallarsinna sem tækju sæti á listanum þyrftu ekki að vera flokks- bundnir framsóknarmenn. Með því að stjórn kjördæmisráðsins hafnaði þessum hugmyndum Guðna mun hann hafa talið að þar með væri grundvöllurinn fyrir hans framboði og hugmyndafræði brostinn og því væri sjálfhætt. Þegar svona hafi ver- ið komið hafi hann tilkynnt stjórn- inni að hann væri hættur við. Fram- sóknarmaður sem rætt var við í gær hefur eftir Guðna að hann hafi ætlað að taka flugvallarsinnana í faðminn og hefja sig og Framsókn til flugs með þeim! „Hann ætlaði að bjarga hvorutveggja, flugvellinum og Framsóknarflokknum,“ segir þessi viðmælandi. Framsóknarflokkurinn í Reykja- vík er því í tómu tjóni nú rúmum mánuði fyrir kosningar og enginn augljós kandídat í sjónmáli til þess að leiða framboðslista Framsóknar. „Um leið og gefið var til kynna að Guðni myndi leiða lista okkar fram- sóknarmanna hér í Reykjavík hófst skítkastið og leiðindin. Guðni var af vinstrimönnum á netinu sakaður um hómófóbíu, kvenfyrirlitningu, subbulega klámbrandara og óheið- arleika. Guðni er búinn að svífa á rósrauðu skýi í nokkur ár og því voru svona árásir ansi hörð lending fyrir hann,“ segir framsóknarmaður í Reykjavík. Annar framsóknarmaður bendir á að árásir vinstrimanna á Guðna beri þess merki að vinstriflokkarnir hafi farið á taugum við tilhugsunina um að Guðni leiddi listann í Reykjavík. Hann telur að um kerfisbundnar árásir hafi verið að ræða. Ekki náðist í Guðna í gær við vinnslu þessarar greinar. Vildi útvíkka framboð Framsóknar  Guðni Ágústsson hugðist bjarga hvorutveggja, flugvellinum og Framsóknarflokknum, samkvæmt heimildum úr innsta hring Sjálfhætt eftir að hugmyndum hans var hafnað af stjórninni Morgunblaðið/Kristinn Vildi breytingar Stjórn kjördæmisráðs Framsóknarflokksins í Reykjavík hafnaði hugmyndum Guðna um framboð Framsóknar og flugvallarsinna. Egill Helgason skrifaði m.a. á vefsíðu sína í fyrradag: „Framboð Guðna hefur verið aðalfréttin síðustu vikuna – og aðalumræðuefnið á Facebook. Reyndar verður að segjast eins og er að margir fóru algjörlega fram úr sér – sjaldan hefur mað- ur séð jafn illa talað um mann á þessum umræðuvettvangi og Guðna síðustu vikuna. Óhroðinn var eiginlega með eindæmum. En Framsóknarflokkurinn er í alvarlegum vandræðum. Það er ekki gott að geta ekki mannað framboðslista í sjálfri höfuðborg landsins – og einungis 35 dagar til kosninga. Guðni gat verið leiðin til að bjarga flokknum – sem er sá næststærsti á landsvísu – frá af- hroði í borginni. Nú er vandséð hvaða ráða flokkurinn getur gripið til. Það getur ekki verið auðvelt fá fólk til að ganga til liðs við framboð sem hefur sama og ekkert fylgi og enga mál- efnastöðu.“ Óhroðinn með ein- dæmum EGILL HELGASON Fasteignasalan TORG kynnir: Sérlega glæsileg íbúð á efstu hæð! Einstaklega falleg, björt og vönduð 126,3 fm íbúð á besta stað í Norðlingaholti í Reykjavík. Í íbúðinni er 3ja metra lofthæð og stórir gluggar með granít sólbekkjum. Sérhönnuð lýsing frá Lumex er í íbúðinni og fylgir hún öll með. Granít á eldhúsinnréttingu og vönduð tæki. Mjög stórar svalir sem gengið er út á frá stofu og baðherbergi, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Íbúðin er á 3. hæð í lyftuhúsi en henni fylgir stæði í bílageymslu. Eignin er hin vandaðasta í alla staði. Uppl. Garðar Hólm sölufulltrúi, gsm: 899 8811 Verð: 42.500.000 Herbergi: 3 Stærð: 126,3 fm Bílageymsla OPIÐ HÚS mánud. 28. apríl kl. 18:00-18:30 Sandavað 11 110 Reykjavík OPIÐ HÚS 28. apríl kl. 18:00 - 18:30 Áb. Sigurður Gunnlaugsson lfs. Garðar Sölufulltrúi 899 8811 gardar@fasttorg.is Sigurður Fasteignasali 898 6106 sigurdur@fasttorg.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.