Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 ● Landsbankinn opnaði í gær þjón- ustumiðstöð fyrir minni og meðal- stór fyrirtæki á höfuðborgarsvæð- inu í Borgartúni 33 í Reykjavík. Þangað hafa allir starfs- menn fyrirtækja- þjónustu útibúa á höfuðborgarsvæð- inu flust og minni og meðalstór fyrir- tæki geta sótt þangað alla þjónustu sem þau þarfnast. Með þessu gengur í garð ein mesta breyting sem gerð hefur verið á þjónustu við fyrirtæki á höfuð- borgarsvæðinu á síðari árum af hálfu Landsbankans, segir í tilkynningu. Öll útibú á höfuðborgarsvæðinu munu eftir þessar breytingar leggja megináherslu á þjónustu við ein- staklinga, en geta áfram sinnt einfaldari þjónustu við fyrirtæki. Hið nýja fyrirkomulag gefur bank- anum kost á að bjóða fyrirtækjum um- fangsmeiri ráðgjöf en áður, aðgengi að sérfræðingum verður betra og hægt verður að afgreiða erindi þeirra hraðar. Landsbankinn færir fyrirtækjaþjónustu Steinþór Pálsson bankastjóri Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu mun halda áfram að hækka á kom- andi tólf mánuðum, en þó minna en á undangengnum tólf mánuðum, sam- kvæmt spá Greiningar Íslands- banka. Sé gert ráð fyrir að verðbólga á tímabilinu verði rétt við verðbólgu- markmið, má ætla að raunhækkun íbúðarhúsnæðis geti orðið umtals- verð. Margar skýringar á hækkun Bent er á í Morgunkorni Íslands- banka að íbúðaverð á höfuðborgar- svæðinu hafi hækkað um 11,1% yfir síðustu tólf mánuði samkvæmt gögn- um Þjóðskrár Íslands. Það er mesta hækkun yfir tólf mánaða tímabil sem mælst hefur síðan í upphafi árs 2008. Að raunvirði hefur íbúðaverð á svæðinu hækkað um 8,7% og þarf að fara aftur til ársins 2007 til að finna viðlíka hækkun yfir tólf mánaða tímabil. Skýringa á hraðri hækkun íbúða- verðs má að mati Greiningar leita til aukins kaupmáttar launa, bætts at- vinnuástands og fjölgunar íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess hef- ur vöxtur í ferðaþjónustu leitt til aukinnar útleigu húsnæðis til ferða- manna. Þá telur Greining Íslands- banka að væntingar vegna skulda- aðgerða ríkisstjórnarinnar skýri hugsanlega hækkun íbúðaverðs að einhverju marki. Sé það raunin auka væntingar heimila um batnandi eig- infjárstöðu eftirspurn á íbúðamark- aði, sem aftur ýtir upp íbúðaverði og eykur þannig reiknað eigið fé íbúðar- eigenda. Húsaleigan hækkar líka Samhliða hækkun íbúðaverðs hef- ur leiguverð hækkað um 8,2% yfir síðustu tólf mánuði, sem er rétt und- ir fyrrgreindri 8,7% raunhækkun íbúðaverðs á sama tímabili. Um 27% heimila voru í leiguhúsnæði árin 2010-2012 samkvæmt rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimila. Íbúðaverð hækkar áfram Tólf mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 2007-2014 20% 15% 10% 5% 0% -5% -10% -15% 20% 15% 10% 5% 0% -5% -10% -15% 11,1% 6,85% 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Heimild: Þjóðskrá Íslands  Raunhækkun íbúðaverðs síðustu 12 mánuði á höfuðborgarsvæðinu ekki jafn mikil síðan 2007  Íslandsbanki spáir frekari raunverðshækkun næstu 12 mánuði Mistök urðu þess valdandi að grein- ingardeild Arion banka sendi við- skiptavinum ranga ráðgjöf varð- andi viðskipti með hlutabréf í N1. Í fyrirtækjagreiningu sem send var út á miðvikudaginn var við- skiptavinum ráðlagt að bæta við sig í félaginu, en skömmu fyrir hádegi á föstudaginn var send leiðrétting þar sem þeim var ráðlagt að draga úr eign sinni í N1. Völdum viðskiptavinum Arion banka var send ítarleg fyrir- tækjagreining á N1 skömmu fyrir klukkan tvö á miðvikudaginn. N1 hefur verið skráð félag á aðallista Kauphallarinnar frá því í desember síðastliðnum. Samkvæmt virðismati voru hlutabréf félagsins metin á 17,9 krónur á hlut, sem var 0,8% hærra en síðasta dagslokagengi, sem var 17,75 krónur á hlut. Sam- kvæmt því var ráðlegging Arion banka til viðskiptavina að „bæta við“. Skömmu fyrir hádegi á föstudag- inn sendi Arion banki viðskipta- vinum leiðréttingu á virðismatinu á N1. Þar kemur fram að í sjóð- streymisgreiningu hafi láðst að draga arðgreiðslu frá lausu fé þar sem arðleysisdagur er liðinn. Það leiði til þess að virðismat, byggt á spá um sjóðstreymi og stöðu lauss fjár, samsvarar 16,2 krónum á hlut en ekki 17,9 krónum á hlut. Það er um 8,7% lægra en dagslokagengið sem miðað var við í fyrri greining- unni. Í samræmi við það var ráðgjöf breytt úr því að „bæta við“ yfir í að „draga úr“. Samkvæmt þessu liðu liðlega þrjár og hálf klukkustund af við- skiptatíma á Kauphöllinni áður en leiðréttingin var send út, en Kaup- höllin var lokuð á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta. Við opnun markaða á föstudaginn var gengi hlutabréfa í N1 17,80 krónur á hlut en það var komið í 17,45 krónur á hlut í lok dags. Arion gerði mistök við verðmat á N1 Arður Greiningardeild Arion banka gleymdi arðgreiðslu.  Mælti með kaupum fyrir mistök Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Aðeins 2.150 kr. á mann Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 Kæliskápadagar út apríl 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.