Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 14
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
ÚR BÆJARLÍFINU
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstangi
Hjá Grunnskóla Húnaþings
vestra eru miklar breytingar í vænd-
um. Rætt er að sameina kennslu
allra deilda í skólahúsnæði á
Hvammstanga. Í dag eru um 100
barna eldri deild á Laugarbakka og
um 60 börn í yngri deild á Hvamms-
tanga. Skólamannvirki á Laugar-
bakka hafa verið auglýst til sölu og
þegar hafa komið fyrirspurnir um
þau.
Fyrir nemendur sem útskrifast
hafa úr 10. bekk er í boði svonefnt
dreifnám og eru um 15 ungmenni
þar í námi. Gerir þetta nemendum
kleift að dvelja lengur í foreldra-
húsum, þar til þau fara síðan til
náms í fjarlægari skólum.
Húnaþing vestra auglýsti í vet-
ur eftir aðila til að reka skólamöt-
uneyti frá næsta hausti og jafnframt
var tekið fram, að sá aðili skyldi
halda úti veitingarekstri á Hvamms-
tanga á ársgrunni. Fimm aðilar
sendu inn umsókn og var Sveitasetr-
ið á Gauksmýri valið úr hópnum.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
KVH, var rekið með 27 milljóna
króna hagnaði árið 2013. Félagið
rekur almenna verslun á Hvamms-
tanga, auk byggingavörudeildar,
pakkhúss og vöruafgreiðslu. Þá á fé-
lagið helmingshlut í Sláturhúsi
KVH. Í ársreikningi félagsins fyrir
árið 2013 kemur fram, að velta árs-
ins var 726,2 milljónir króna. Heil
ársverk töldust 18 og greidd laun 84
milljónir auk launatengdra gjalda.
Efnahagsreikningur er upp á 638
milljónir króna og eigið fé um 420
milljónir króna. Félagsmenn í KVH
eru 442 alls.
KVH leigir Fæðingarorlofs-
sjóði skrifstofuaðstöðu á efri hæð
verslunarhússins og Selasetri Ís-
lands rými í „gamla sláturhúsinu“
við höfnina. Á efri hæð þess húss
hyggst HVK innrétta veglegan veit-
ingasal, til útleigu, m.a. sem skóla-
mötuneyti fyrir Grunnskóla
Hvammstanga.
María Sigurðardóttir og Örn
Gíslason, sem reka í dag kaffihúsið
Hlöðuna, eru einnig að innrétta veit-
ingastað við höfnina, þannig að
margir möguleikar verða fyrir
heimamenn og ferðafólk að njóta
matar og annarra veitinga á
Hvammstanga á komandi sumri.
Ferðafólki hefur líka fjölgað stór-
lega milli ára og virðast heimamenn
ætla að þjóna þeim vel.
Miklar stæður af túnáburði
eru komnar á hafnarsvæðið og
setja sinn svip á staðinn. KVH sel-
ur um 1.800 tonn, en einnig er
skipað upp áburði sem aðrir versla
með. Hluta áburðarins er ekið héð-
an um langan veg, m.a. til sveita
Ísafjarðardjúps, Dali og í Borg-
arfjörð.
Mikið er um að vera í menn-
ingarlífinu og tónlistin þar áberandi.
Karlakórinn Lóuþrælar söng inn
vorið á síðasta vetrardag, eldri borg-
ara kórinn syngur í dag, laugardag,
og Lillukórinn – kvennakór er með
tónleika á 1. maí.
Nýlega kom Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð í heimsókn,
söng fjórum sinnum í héraðinu og
var mjög gaman að hlýða á þennan
frábæra 70 ungmennakór undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Sumardagurinn fyrsti var
haldinn með „pomp og prakt“ á
Hvammstanga, og hefur verið svo í
tæpa sex áratugi. Hátíðarhöld voru
með hefðbundnum hætti, skrúð-
ganga um götur bæjarins. Vetur
konungur afhendi Vorinu veld-
issprota sinn, íklæddur fallegum
búningum. Síðan var fjölskyldu-
skemmtun og veislukaffi fram eftir
degi.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Ljúfir tónar Kór MH söng fyrir vistfólk á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga við mikla hrifningu.
Sungið vor í sveitina
Sunna Ósk Logadóttir
Kjartan Kjartansson
Ekkert verður af áformum fjall-
göngumannsins Ingólfs Axelssonar
að klífa tind Everest. Hann til-
kynnti þetta á Facebook í gær.
Framan af var útlit fyrir að leið-
angur Ingólfs héldi áfram þrátt fyr-
ir mannskætt snjóflóð á föstudaginn
langa. Síðan hafa nepölsk yfirvöld
fundað með sjerpum sem segjast nú
ætla að yfirgefa fjallið.
Ingólfur er 31 árs gamall Akur-
eyringur. Hann er menntaður fjár-
málafræðingur og lærði meðal ann-
ars í Dúbaí. Það eru hins vegar
aðeins fjögur ár síðan hann hóf að
stunda fjallgöngu. „Ég hafði aldrei
neinn sérstakan áhuga á fjallabrölti
og fannst það bara vera fyrir skáta
og einfara,“ sagði Ingólfur í viðtali
við Vikudag í mars. „Þetta breyttist
hins vegar allt árið 2010 þegar ég
kleif minn fyrsta tind, Chachani í
Perú sem er 6.057 metrar. Þetta var
sannkölluð svaðilför, fjórtán
klukkutíma ganga með ísexi og
mannbrodda þar sem flestir úr
hópnum sneru við. En við sem kom-
umst alla leið vorum verðlaunuð
með mögnuðu útsýni á toppnum,“
sagði hann.
Að sögn Ingibjargar Ragnars-
dóttur, móður Ingólfs, hefur hann
alltaf verið ævintýramaður og aktíf-
ur. Hann keppti í handbolta með
KA og Fram og varð bikar- og Ís-
landsmeistari með KA. Þá hefur
hann verið í crossfit, hefur þreytt
maraþon í París og Dúbaí og flýgur
að auki svifvængju.
Frá því að Ingólfur lauk námi í
Dúbaí 2012 hafði hann undirbúið
göngu á Everest. Ingibjörg segir
þau foreldra hans styðja hann alla
leið.
Ingólfur fer ekki
á tind Everest
Fór úr fjármálafræði í fjallaklifur
Við tind Everest Ingólfur Axelsson.
Karlakórinn Þrestir er með tvenna
vortónleika í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði um helgina sem hafa
yfirskriftina Ást og friður. Þeir
fyrri voru í gærkvöldi en seinni tón-
leikarnir verða kl. 16 í dag. Þrest-
irnir flytja að þessu sinni vinsæl
ljúflingslög með aðstoð hljóm-
sveitar. Hún er skipuð þeim Jónasi
Þóri á píanó, Jóni Elvari Hafsteins-
syni á gítar, Richard Korn á bassa
og Jóhanni Hjörleifssyni á slag-
verk. Stjórnandi karlakórsins er
Jón Kristinn Cortez.
Erlendu lögin hafa verið flutt af
stjörnum á borð við Luis Arm-
strong, John Lennon og Elvis Pres-
ley. Einnig flytur kórinn íslensk lög
þannig að lagavalið er mjög fjöl-
breytt. Sem dæmi má nefna lög eins
og Ferðalok, Imagine, Hraustir
menn, Kvöld í Moskvu, Stjáni blái,
Ísland er land þitt, What a Wonder-
ful World, You’ll Never Walk Alone
og Góða nótt.
Hægt er nálgast miða á vefnum
midakaup.is/threstir.
Ljúflingslög í Víði-
staðakirkju í dag
Morgunblaðið/Golli
Tónleikar Karlakórinn Þrestir í ham.
Viltu selja bílinn?
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
HÁTÍÐNI-
VIÐSKIPTI Á
VERÐBRÉFA-
MARKAÐI
Jim McTague
heldur fyrirlestur í Öskju, N-132
þriðjudaginn 29. apríl. kl.12-13:30
Hann mun fjalla um forrituð viðskipti á
verðbréfamörkuðum þar semmannshöndin
kemur hvergi nærri. Hvernig leiknum
verðbréfamiðlurum tókst að gera
verðbréfamarkaði að spilavítum án þess að
eftirlitsaðilar gætu rönd við reist.
Jim Mc Tague hefur starfað við blaðamennsku
frá 1972 og er nú ritstjóri fjármálaritsins BARON.
Hann fjallar einkum um afskipti forsetans og þingsins
í Bandaríkjunum af fjármálamarkaðnum.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!