Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Aðstæður batna þegar líður á daginn og þú verður í algeru þrumustuði í kvöld. Ef þú gefur þér tíma til þess, má segja að það sé að hálfu leyst. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver sér sér hag í því að koma hlut- um þannig fyrir að þér hafi orðið á einhver mistök. Maður verður hamingjusamur og heill ef maður ákveður að láta sér líða þannig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hvers konar ný og framandi reynsla gleður þig í dag. Það eru spennandi tímar framundan. Líttu á björtu hliðarnar ef þú mis- stígur þig og reyndu að læra af reynslunni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Allt sem krefst hugsunar höfðar til þín í dag. Dagurinn er líka kjörinn til þess að hitta vinina og finna út úr því hvernig hægt er að bæta veröldina. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Undanfarið hefurðu sett velferð ein- hvers annars ofar þinni eigin. Hlutir sem tengjast tómstundum munu vera góð kaup. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Jafnvel hin ýktasta beiðni virðist sjálf- sögð í huga þínum, svo samdauna ert þú. En það er ekki allt til eftirbreytni. Sýndu vænt- umþykju og þá mun allt fara vel. 23. sept. - 22. okt.  Vog Haltu hugmyndum þínum hjá þér um sinn, því nú blæs ekki byrlega. Hafðu trú á ástvinum þínum og spurðu einskis. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu ekki draga þig í dilk í þeim deiluefnum sem koma upp á vinnustað þín- um. Ekki ganga of langt þótt þú viljir gjarnan styðja einhvern. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er mikil hætta á að nei- kvæðni nái tökum á þér í dag. Forðastu að troða illsakir við vinnufélaga þína að ósekju. Allt verður betra í kvöld. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hagnast í dag, sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Kynntu þér alla mála- vexti vandlega áður en þú afræður að veðja á einhvern hestinn. Notaðu tækifærið til að ganga frá þínum málum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert staðráðin/n í því að fara þínu fram, sama hvað það kostar. Láttu vel- gengnina ekki spilla barninu í þér en mundu að vera ekki frek/ur, þá vilja aðrir að þetta mistakist. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hitinn kraumar undir niðri í vinnunni og sem betur fer ert þú sjóðheit/ur líka um þessar mundir. Persónuleg tengsl eru mik- ilvæg og þar ert þú á grænni grein. Í síðustu viku var þessi vísnagátaeftir Pál Jónasson í Hlíð: Stundum þínu eyra á, ekki traustur piltur sá, kind sem gömul ekki er amerískur trukkur hér. Harpa Jónsdóttir í Hjarðarfelli leysti gátuna: Gemsann berðu glöggt að eyra. Gemsa vandræða ég sé. Gemsi er eins ár, ekki meira. Ekur þú á GMC. Séra Sveinn Víkingur á þessa gátu: Þessi styrkir þak og veggi. Þrælslega á sjó er ráðist á ‘ana. Horað sprund með spóaleggi. Úr spýtum oft í hliði ég sá ‘ana. Svör þurfa að berast fyrir hádegi á fimmtudag til að ná laugardags- blaðinu. Gaman væri að fá nýjar gátur sendar! Karlinn á Laugaveginum var dá- lítið hnugginn þegar ég sá hann og með hugann við kerlinguna á Skólavörðuholtinu: Mér skilst að oss hafi ekki skort annað til skilnings á því sem er vort annað en svolitla ást sem að sjálfsögðu brást – og svo sitjum við uppi með hvort annað! Grímur Jónsson bóndi á Jökulsá í Flateyjardal var gáfaður maður og skáldmæltur vel. Hann orti: Ég hef reynt til þrautar það: þeim mun logar minna sem menn skara oftar að eldum vona sinna. Enn orti Grímur: Órór gests ég úti beið, inn hann skyldi leiða; en Hamingjan um hlaðið reið, hafnaði öllum greiða. Níels skáldi orti, – vísan er úr Fransrímum: Ég að öllum háska hlæ á hafi Sóns óþröngu, mér er sama nú hvort næ nokkru landi eða öngu. Þetta erindi úr Rúbajat-þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar er undra- gott: Við brauðhleif, fulla flösku og ljóðakver í forsælu undir tré við hlið á þér, sem andar söng á öræfanna þögn, er auðnin Paradís – sem nægir mér. Davíð frá Fagraskógi orti undir sama hætti í ljóðinu „Í dögun“: Er sólin rís úr svefnsins tæru laug, er sælt að finna líf í hverri taug og heyra daginn guða á gluggann sinn og geta jafnvel boðið honum inn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svolítil ást og þögn öræfanna Í klípu „ERUM VIÐ HRÆDD VIÐ SMÁ SAMKEPPNI? MIÐAÐ VIÐ ÞESSAR TÖLUR - JÁ, GREINILEGA!“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MIG VANTAR 11 SENTIMETRA Í VIÐBÓT.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna ástarbréf frá henni í vinnu- póstinum þínum. BÓKASAFN VERKSTÆÐ I KL O NK KL O NK KL O NK KL ON K HRÓLFUR, VIÐ VORUM AÐ FÁ SENDINGU AF STEINUM Í VALSLÖNGVUNA. FLOTT! ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR AÐ HLAÐA. ÞÁ ER RUNNINN UPP TÍMI FYRIR ALVARLEGA NAFLASKOÐUN. ÉG ER FRÁBÆR! ÉG HEFÐI ÁTT AÐ VERA LÖNGU BÚINN AÐ ÞESSU.Upp á sitt eindæmi náði Víkverji aðlæsa lyklana inni í bíl á föstudag- inn langa. Hann var staddur fyrir ut- an einu verslunina sem var opin á þessum degi (að öllum líkindum) Ice- land í Breiðholtinu. Hann húkti þar með úttroðinn poka af mat sem átti að reiða fram fyrir matarboð seinna um kvöldið. x x x Já – Víkverji er ekki sá skipulagð-asti í heimi og var ekki stressa sig yfir að flana út í búð og skipuleggja átið næstu daga þar sem einhverjar búðir eru hvort sem er alltaf opnar yfir páskana, eins og raunin varð. Honum leiðist nefnilega þetta við- horf sem grípur um sig í kringum jól og páska að hamstra mat því allt er búið. x x x Veðrið var rysjótt, skiptust á skinog skúrir, hríðarbylur og sól. Veðrið endurspeglaði hugarástand Víkverja. Höfuðið fylltist af sjálfs- ásökunum, en þetta gæti svo sem verið verra. Hann hékk þó að minnsta kosti ekki negldur upp á kross. Í staðinn gat hann fylgst með fólki athafna sig á þessu pínulitla bílastæði. x x x En af hverju alltaf að gera tvennt íeinu? Víkverji var nefnilega að tala í símann um leið og hann læsti samviskusamlega dyrunum innan frá á meðan lykillinn hékk í svissinum. Sem betur fer var hann þó með síma og veski og gat hringt í betri helm- inginn sem kom eins og riddari á svörtum jeppa jafn úfinn í skapi og liturinn á bílnum. x x x Þetta var ekki í fyrsta skipti semhann læsir lyklana inni í bílnum en samt virðist hann aldrei ætla að læra af reynslunni. Og þó, í dag að minnsta kosti læsti hann bílnum utan frá með lyklinum. Ástæðuna fyrir því að læst var handvirkt innan frá má flokka sem leti. Batteríið var búið svo að samlæsingin hætti að virka, þá fór Víkverji í þetta þar sem lykillinn var ögn stamur þegar honum var rennt inn í lásinn á bílstjórahurðinni. Mjög eðlilegt allt saman. víkverji@mbl.is Víkverji Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. (Sálmarnir 16:11) AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.