Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 Sjö umsækjendur voru um embætti sóknarprests í Seljaprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Embættið veitist frá 1. ágúst 2014. Umsækjendurnir eru: Anna Þóra Paulsdóttir mag. theol, séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, Fritz Már Berndsen Jörgensson mag. theol, séra Halldór Reynisson, séra Hans Markús Hafsteinsson Isaksen, séra Karl V. Matthíasson og séra Ólafur Jóhann Borgþórsson. Frestur til að sækja um emb- ættið rann út 15. apríl. Biskup Ís- lands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts í Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra. Þá bárust alls sex umsóknir um tvö embætti í Egilsstaðaprestakalli, Austurlandsprófastsdæmi. Tveir umsækjendur eru um embætti sóknarprests sem veitist frá 1. ágúst 2014: Séra Sigríður Munda Jónsdóttir og séra Þorgeir Arason. Fjórir umsækjendur eru um embætti prests sem veitist frá 1. nóvember 2014: Davíð Þór Jónsson cand. theol, Elín Salóme Guð- mundsdóttir cand. theol, María Gunnarsdóttir cand. theol og Ólöf Margrét Snorradóttir cand. theol. Umsóknarfrestur var til 15. apríl sl. Biskup Íslands skipar í emb- ættið að fenginni umsögn valnefnd- ar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts í Austur- landsprófastsdæmi . sisi@mbl.is Þrettán umsóknir bárust um þrjú laus prestsembætti Morgunblaðið/Jim Smart Seljakirkja Sjö umsóknir bárust um prestsembættið. Töluverður áhugi er á tveim- ur bújörðum sem eru nú auglýstar til ábúðar á Suð- urlandi. Rétt fyrir páska auglýsti fjármála- og efnahagsráðu- neytið ríkisjörð- ina Læk í Flóahreppi, skammt aust- an við Selfoss, til ábúðar. Þar er stundaður kúabúskapur og fylgir 170 þúsunda lítra greiðslumark í mjólk með í leigunni. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu hefur verið töluvert spurt um Læk og greinilegur áhugi á að taka við ábúð þar. Ráðuneytið hafi fengið margar fyrirspurnir bæði í gegnum síma og tölvupóst frá fólki á öllum aldri. Opið hús verður á Læk í dag, laugardag, frá kl. 11-17. Þá auglýsti kirkjuráð íslensku þjóðkirkjunnar lausa til ábúðar jörðina Skálholt í Biskupstungum fyrir skömmu. Greiðslumark jarð- arinnar er nú 71.350 þúsund lítrar mjólkur og er leigt með jörðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Bisk- upsstofu er nokkur áhugi á jörð- inni, þónokkrir hafi sett sig í sam- band og sýnt verulegan áhuga. Skoðunarferð verður um bújörðina 3. maí og er búist við tilboðum eftir þá ferð. Töluverður áhugi á að taka við tveimur jörðum á Suðurlandi Skálholt Fimmtán ára stúlka féll af hestbaki í umdæmi lögreglunnar á Suður- nesjum í vikunni. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni kenndi stúlkan sér meins eftir byltuna. Hún var í útreiðartúr með kunn- ingja sínum og átti óhappið sér stað á vegarslóða á Miðnesheiði. Þar hnaut hesturinn sem stúlkan reið með þeim afleiðingum að hún féll fram af honum og lenti á vinstri öxlinni. Hún var flutt með sjúkra- bifreið á Heilbrigðisstofnun Suð- urnesja. Féll af hestbaki á Miðnesheiði Veghúsastígur 1 Mynd af húsi við Vatnsstíg 8 birtist við frétt í blaðinu 17. apríl sl. og sagt vera við Veghúsastíg 1. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum um leið og birt er hér mynd af Veghúsastíg 1. Rétt nafn Steinars Rangt var farið með nafn viðmæl- anda á baksíðu blaðsins í gær. Hann heitir Steinar Hermann Ásgeirsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Morgunblaðið/Þórður Ljósið fæst í helstu verslunarkjörnum um land allt!gr a fi k .i s - kaupum ljósið! Herferð Blátt áfram hefst 30. apríl og lýkur 4. maí Forvarnarsamtökin Blátt áfram hvetja til forvarnarfræðslu fyrir fullorðna í grunnskólum og samfélaginu öllu gegn kyn- ferðisofbeldi á börnum. Starfið hjá forvarnarsamtökunum fer fram allt árið og fagna þau 10 ára afmæli á þessu ári. Það er verkefninu mikilvægt að samfélagið sýni stuðning sinn í verki því án framlaga væru Blátt áfram ekki starfandi. Við hvetjum landsmenn alla að hjálpa okkur í að upplýsa þjóðina um gildi forvarna með því að kaupa ljósið. Ein af hverjum 5 stelpum og einn af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur. Verum upplýst, kaupum ljósið! blattafram.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.