Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tveir stjórnarþingmenn gagnrýna harðlega áform Landsbankans um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrir bankann á byggingarreit 6 við Hörpu. „Ég sé engar forsendur fyrir því að fara að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsbankans á besta stað í borg- inni,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Eigum eftir að fara í ýmis mál sem varða bankakerfið okkar „Þetta er ríkisbanki og margt sem að honum snýr er í óvissu eins og margoft hefur komið fram. Við eigum eftir að fara í ýmis mál sem varða bankakerfið okkar og það síðasta sem við eigum að fara í núna eru höf- uðstöðvar og bankabónusar,“ segir Guðlaugur Þór. Spurður hvort stjórnendur bankans ráði þessu endanlega eða hvort ríkið geti gripið inn í þessi áform þar sem um banka í eigu ríkisins er að ræða segir Guðlaugur Þór sérstjórn yfir bankanum sem valin er af Bankasýsl- unni, sem á að halda utan um eign- arhlut ríkisins. „Ég veit ekki hvernig umræðan er þar um þessi mál en þetta er mjög skýrt í mínum huga,“ segir hann. Ekki rétt forgangsröðun Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþing- is, hefur gagnrýnt tilboð Landsbank- ans í byggingarréttinn á lóðinni við Austurhöfn og áform bankans um að reisa þar allt að 15 þúsund fermetra höfuðstöðvar. Í framhaldi af umræðu um þessi áform Landsbankans í fyrra gaf Landsbankinn út yfirlýsingu þar sem sagði að bankinn hefði ekki, ólíkt því sem fram hafi komið, sótt um til- greinda lóð í Reykjavík heldur aðeins óskað eftir viðræðum við borgina um þá möguleika sem fyrir hendi væru. Í yfirlýsingunni útilokaði bankinn þó ekki að til þess gæti komið að byggt yrði við hlið Hörpu. Í byrjun apríl sl. birtust svo þær fréttir að Sítus ehf., sem fer með ráðstöfun lóðanna á Hörpureit, hefði ákveðið að ganga til samninga við Landsbankann vegna tilboðs bankans í byggingarréttinn á reit 6. Frosti minnir á að Landsbankinn er ríkisbanki og það sé alls ekki rétt for- gangsröðun ríkisins sem hluthafa í bankanum að ráðast í byggingu nýrra höfuðstöðva á dýrasta stað í bænum. Fjármununum yrði betur varið með því að nota arðgreiðslurnar til ríkisins, t.d. í lækkun skulda ríkissjóðs eða til að mæta fjárþörf Landspítalans. Vekur furðu að heildar- kostnaður liggi ekki fyrir Frosti hefur sent fyrirspurnir vegna málsins til bankastjóra Lands- bankans og formanns bankaráðsins en fengið takmörkuð svör að hans sögn. Spyr Frosti meðal annars hvort tilboð bankans í reit 6 sé bindandi, hvort ein- hver kostnaður falli til ef fallið verður frá tilboðinu, hvort ekki sé hagkvæm- ara að byggja á ódýrari lóð og hvort bankaráðið hafi gefið heimild til að gera þetta tilboð og ganga til samn- inga við Sítus ehf. um byggingarrétt- inn á lóðinni. Þá hefur hann einnig sent bréf vegna þessa til forstjóra Bankasýsl- unnar og fjármálaráðherra, þar sem hann bendir á að þessi fjárfesting eigi ekki að vera framarlega í forgangs- röðinni. Frosti segist hafa fengið þau svör frá bankastjóra Landsbankans að heildarkostnaðurinn liggi ekki fyrir og vekur það furðu hans. „Menn sem þekkja til bygginga af þessari tegund segja að ekki sé hægt að byggja á þessum stað fyrir lægri fjárhæð en fimm til sjö milljarða,“ segir Frosti. Hann segir að ef stjórnendur bank- ans telji að það sé hluthöfunum fyrir bestu að byggja nýjar höfuðstöðvar vakni sú spurning hvort bankaráðið sé með á nótunum. „Þeir gera mikið úr því að það sé mikil hagræðing í því fólgin að hafa höfuðstöðvarnar undir einu þaki á besta stað í bænum. Þeir eru nú þegar með útibú á besta stað í bænum sem getur vel þjónað öllum þeim sem eru í miðbænum. Auk þess er fullt af auðu skrifstofuhúsnæði í borginni. Þjóðin þarf ekki að byggja meira skrifstofu- húsnæði. Aðrar þarfir eru brýnni,“ segir Frosti. Röng og óheppileg skilaboð út í alþjóðasamfélagið Að mati hans er margt gagnrýni- vert við þessi áform bankans, m.a. þau skilaboð sem í þessu felast gagnvart umheiminum. „Hér varð bankahrun fyrir stuttu og mikill fjöldi fólks hefur tapað gríð- arlegum peningum á banka- viðskiptum á Íslandi og einnig erlend- ir aðilar. Hvaða skilaboð eru það að ríkisbankinn byggi sér glæsilegar höf- uðstöðvar á dýrasta stað? Það eru mjög röng og óheppileg skilaboð út í alþjóðasamfélagið,“ segir Frosti Sig- urjónsson. Gagnrýna áform Landsbankans  „Það síðasta sem við eigum að fara í núna eru höfuðstöðvar og bankabónusar,“ segir Guðlaugur Þór  Frosti hefur sent spurningar til bankastjóra, bankaráðs, Bankasýslu og fjármálaráðherra Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Það voru glaðir grunnskólanem- endur sem fóru í sparisjóðinn með söfnunarbauka sína frá ABC barna- hjálp og lögðu þar inn tæpar fjöru- tíu þúsund krónur. Barnahjálpin safnar nú fyrir byggingu heima- vistar fyrir stúlkur í Pakistan og ís- lensk grunnskólabörn hafa lagt sitt af mörkum með því að ganga í hús með söfnunarbauka til styrktar þessu verkefni. Morgunblaðið/Líney Sigurðard Ánægja Þeir voru glaðir grunnskólakrakkarnir á Þórshöfn þegar þau lögðu inn í sparisjóðinn á staðnum peningana úr ABC söfnunabaukunum. Börn hjálpa börnum Í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi frá sér 30. ágúst í fyrra, vegna gagnrýni á áform bank- ans um nýjar höfuðstöðvar, er bent á að markmiðið með bygg- ingu nýrra höfuðstöðva sé að hagræða í starfsemi til lengri tíma. Í núverandi höfuðstöðvum séu um 800 starfsmenn í 15 húsum við Hafnar- og Austur- stræti, í Thorvaldsensstræti við Austurvöll og Mjódd með til- heyrandi óhagræði. Húsnæðið sé alls um 18.000 m2 en aðeins 7.000 m2 eru í eigu bankans. Í þessu felist áhætta. „Ef hluta- bréf Landsbankans verða skráð í kauphöll er hætt við því að nú- verandi staða húsnæðismála bankans verði talin til rekstr- aráhættu,“ sagði þar. Starfsemi í 15 húsum MARKMIÐIÐ HAGRÆÐING Tölvumynd/T.ark Hörpureitur Landsbankinn bauð í reit 6 við Austurhöfn fyrir höfuðstöðvar bankans. Sítus ehf. ákvað að ganga til samn- inga við bankann um byggingarrétt á lóðinni, sem er við Kalkofnsveg fyrir framan væntanlegt hótel og íbúðarbyggð. Frosti Sigurjónsson Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.