Morgunblaðið - 26.04.2014, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
✝ Guðríður Guð-jónsdóttir
fæddist í Rifs-
halakoti í Rang-
árvallasýslu 26.
febrúar 1917. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
10. apríl síðastlið-
inn. Hún var dóttir
hjónanna Mar-
grétar Guðmunds-
dóttur, f. 27. september 1888, d.
25. janúar 1980, og Guðjóns Ein-
arssonar, f. 25. júlí 1884, d. 16.
júlí 1966. Systkini Guðríðar sem
komust á legg voru Páll Óskar,
f. 6.9. 1911, d. 11.9. 1966, Guð-
rún, f. 4.8. 1912, d. 15.11. 2009,
Guðmundur, f. 5.3. 1916, d. 15.9.
slitu samvistum. Synir þeirra
eru Grétar, f. 25.10. 1951. Hans
börn eru Íris og Ívar. Páll Sæv-
ar, f. 18.8. 1955. Hans börn eru
Hildur Björk, Sandra Ýr og Ró-
bert Freyr. Halldór Guð-
mundur, f. 9. 12. 1962, í sambúð
með Svövu Einarsdóttur. Barna-
barnabörn Guðríðar eru fimm-
tán og barnabarnabarnabörnin
tvö. Guðríður ólst upp í Rifs-
halakoti til fjórtán ára aldurs,
en þá fluttist hún til föðurafa
síns á Bjólu í Djúpárhreppi. Hún
stundaði nám á Laugarvatni en
bjó síðan hjá móður sinni í
Reykjavík. Hún bjó á Akranesi á
árunum 1957 til 1961 en fluttist
þá aftur til Reykjavíkur. Árið
1970 hóf hún búskap á Hjarð-
arbóli í Ölfusi og bjó þar til árs-
ins 1981, en þá flutti hún til
Hveragerðis. Árið 1984 flutti
hún á Selfoss þar sem hún bjó
þar til hún lést.
Útför Guðríðar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 26. apríl
2014, og hefst athöfnin kl. 11.
1962, Ólafur, f. 5.4.
1918, d. 5.7. 1998,
Ragnar, f. 27.2.
1920, d. 27.6. 1982,
Þórður, f. 14.4.
1921, Skarphéðinn,
f. 25.6. 1924, d. 3.3.
2007, Hermann, f.
22.11. 1927, d. 24.9.
2010, Ágúst, f. 1.8.
1929, d. 8.1. 2013.
Dóttir Guðríðar og
Þorsteins Guð-
laugssonar, f. 18.4. 1917, d. 17.9.
2001, er Auður, f. 3.4. 1949. Hún
er gift Þórði Kristni Karlssyni.
Þeirra börn eru Karl Svavar,
Halldór Magni og Elísabet
Linda. Guðríður giftist árið
1951 Halldóri Guðmundssyni, f.
23.12. 1929, d. 14.8. 1997. Þau
Elsku mamma og amma.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Minning þín mun lifa með
okkur um ókomna tíð. Hvíl í
friði.
Páll Sævar og Róbert Freyr.
Elsku amma. Þær seinustu
stundir sem við áttum saman
eru mér ómetanlegar. Róin sem
var yfir þér og æðruleysið segir
mér að þú varst tilbúin, jú og
plús draumurinn um daginn. Þú
varst svo falleg. Þegar ég hugsa
um þig og hversu mikið ég á eft-
ir að sakna þín veit ég samt að
þú ert aldrei langt undan, því
svo stór partur af þér lifir innra
með mér. Í hvert skipti sem ég
set á mig varalit, fer í hælaskó
eða úða á mig góðu ilmvatni
mun ég hugsa um þig. Þú varst
smartasta kona sem ég hef
kynnst á ævi minni, en ekki nóg
með það þá varstu líka svo góð.
Amma Ragnhildur sagði við mig
að henni hefði þótt svo fallegt
hvað pabbi elskaði þig mikið og
væri mikill mömmustrákur, þú
átt nú reyndar þrjá uppkomna
mömmustráka en það lýsir þér
svo vel því ekki var til hlýlegri,
hláturmildari og fallegri kona en
þú, elsku amma. Þú kemur með
mér til Frakklands!
Eilíf ást,
Sandra Ýr.
Amma Gauja er látin, 97 ára
að aldri, og á kveðjustund
hvarflar hugurinn til baka. Það
hefur verið ljúfsárt að rifja upp
ótal minningar um ömmu frá
barnæskunni, en amma spilaði
þar stórt hlutverk. Þegar ég
fæddist bjuggu amma og afi á
Hjarðarbóli í Ölfusi og hjá þeim
dvöldum við barnabörnin gjarn-
an í frístundum. Það er ómet-
anlegt að hafa fengið að fylgjast
með henni við bústörfin, en hún
var lagin við skepnurnar, rak
fyrirmyndarheimili og var ein-
stök handverkskona. Í minning-
unni féll henni aldrei verk úr
hendi og það var ekkert sem
hún kunni ekki. Þegar ég var
um tíu ára brugðu amma og afi
búi og fluttu til Hveragerðis.
Þar ræktaði hún tómata, vínber
og annað ljúfmeti í litlu gróð-
urhúsi og ekki kann ég að nefna
nema brot af þeim plöntum sem
blómstruðu bæði innanhúss og í
glæsilegum garðinum. Hún var
einnig virkur meðlimur í kven-
félaginu og ég fékk að þeysast
með henni um allar sveitir í er-
indagjörðum á vegum þess.
Árið 1984 skildu amma og afi
og hún flutti í litla íbúð á Sel-
fossi. Þá var hún komin hátt á
sjötugsaldur en var ekkert á því
að taka lífinu með ró. Hún lagð-
ist í ferðalög og flæktist með
eldri borgurum út og suður, inn-
anlands og utan, eins lengi og
heilsa hennar leyfði. Þegar
amma hafði kvatt spurði ég
börnin hennar hvenær þau héldu
að henni hafi liðið best og þau
giskuðu á að þessi tími, þegar
hún var engum háð og gat sval-
að flökkuþránni, hafi verið ham-
ingjuríkasta tímabilið á langri
ævi hennar.
Það hefur einmitt verið hvað
mest gefandi, við þessi tímamót,
að bregða sér af sjónarhóli
barnabarnsins og velta fyrir sér
lífshlaupi þessarar konu, sem
spannaði næstum heila öld. Það
eru kannski útslitin orð, en engu
ósannari fyrir vikið, að amma
lifði tímana tvenna. Hún fæddist
árið 1917, var fimmta í röð
þrettán systkina, en þegar hún
var um fjórtán ára skildu for-
eldrar hennar og systkinahóp-
urinn sundraðist. Amma fluttist
til föðurafa síns, en fyrir það var
hún ætíð þakklát því hann var
henni góður. Eftir skólagöngu á
Laugarvatni fluttist hún að nýju
til móður sinnar sem þá bjó á
Kárastíg í Reykjavík. Þar fædd-
ist móðir mín árið 1949, en
amma var þá einstæð sem hefur
ekki verið þrautalaust um miðja
síðustu öld. Þegar ég stóð í
sömu sporum rúmlega fjörutíu
árum síðar hefur hún eflaust
minnst þess tíma, því hún kom
og dvaldi hjá mér til að styðja
mig fyrstu skrefin. Það þótti
mér ákaflega vænt um. Amma
giftist Halldóri afa, sem gekk
móður minni í föðurstað, árið
1951, en sambúð þeirra var oft
stríð því afi var breyskur til öls
og kvenna. Þau eignuðust þrjá
drengi sem hafa að líkindum
valdið henni ærinni fyrirhöfn því
þeir eiga það sammerkt að vera
ákaflega stríðnir. Ég man sjald-
an eftir ömmu öðruvísi en hlæj-
andi í návist þeirra enda þreytt-
ust þeir aldrei á að atast í gömlu
konunni þótt komin væri á tí-
ræðisaldur.
Og þannig er gott að minnast
hennar. Hún var glaðlynd kona
sem felldi ekki dóma yfir neinum
og elskaði fólkið sitt skilyrðis-
laust. Lífið var henni ekki alltaf
létt en lund hennar var það ætíð.
Elísabet Linda.
Elsku Guja.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt og hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Auður, Grétar, Palli,
Gummi og fjölskyldur, ykkur
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Minningin hennar
mun lifa um ókomin ár.
Harpa Róbertsdóttir.
Guðríður
Guðjónsdóttir
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% ' +%!!
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ +! $
(!!*% . /
!
(!!*% / 0 !
(!!*%
Þegar andlát ber að höndum
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HREFNA ÓLAFSDÓTTIR,
Garðarsbraut 59,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
sunnudaginn 20. apríl.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 3. maí kl. 11.00
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga
Fyrir hönd aðstandenda,
Emil Guðmundsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSABET JÓNSDÓTTIR,
Eskifirði,
andaðist fimmtudaginn 24. apríl.
Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju
föstudaginn 2. maí kl. 14.00.
Jóhanna Kristín Friðgeirsdóttir, Ómar Jónsson,
Steinn Friðgeirsson, Liselotte Widing,
Helga Friðgeirsdóttir, Ásmundur Þórisson,
Drífa Friðgeirsdóttir, Einar Jónsson,
Kristgeir Friðgeirsson, Birna Kjartansdóttir,
Inga Jóna Friðgeirsdóttir, Óskar B. Hauksson,
Brynja Rut Sigurðardóttir, Páll Ragnar Þórisson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELENA HÁLFDANARDÓTTIR
sjúkraliði,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 22. apríl.
Útförin verður gerð frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 2. maí kl. 13.00.
Baldur Rafnsson, Elinóra Kristín Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Stefán Jóhann Stefánsson,
Brynhildur Björk Rafnsdóttir, Sigursteinn Magnússon,
Arnheiður Edda Rafnsdóttir, Erling Erlingsson.
✝
Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JENS STURLA JÓNSSON
matsveinn,
varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn
19. apríl.
Hann verður jarðsunginn laugardaginn 3. maí
kl. 14.00 í Ísafjarðarkirkju.
Þorbjörg Fanney Jensdóttir, Kristinn Elvar Arnarsson,
Jón Garðar Jensson,
Sigurður Snorri Jónsson, Guðrún Dögg Gunnarsdóttir,
Jónas Jónsson, Hulda Jóhannsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæri sonur, bróðir og mágur,
FROSTI ÞÓRÐARSON,
Sléttuvegi 3,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 24. apríl á líknardeild LSH,
Kópavogi.
Útför fer fram þriðjudaginn 29. apríl kl. 13.00
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
Þórður Garðarson, Gréta Jónsdóttir,
Kristín Þórðardóttir, Halldór Þorkelsson,
Jón Þórðarson, Sigurrós Bjarnadóttir,
Ólafur Þórðarson.
✝
Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
GUÐFINNA EINARSDÓTTIR,
Stóradal,
lést miðvikudaginn 23. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Blönduóskirkju
föstudaginn 2. maí kl. 14.00.
Þórey Sigríður Jónsdóttir, Jóhann Már Jóhannsson,
Sveinbjörg Brynja Jónsdóttir, Karl Hildálf Sigurðsson,
Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir, Svavar Hákon Jóhannsson,
Margrét Rósa Jónsdóttir, Kristján Jónsson,
Elínborg Salóme Jónsdóttir, Hilmar B. Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800