Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  154. tölublað  102. árgangur  LANDSMÓT HESTAMANNA Í SVIÐSLJÓSINU LÍFEYRIS- SJÓÐIR BEITA SÉR LEIKARAR VINNA SAMAN Á SAFNI VIÐSKIPTAMOGGINN FLUGSAFNIÐ 1024 SÍÐNA AUKABLAÐ FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Niðurstaða Ríkisendurskoðunar er mjög skýr. Fyrrverandi formaður bankaráðs hafði ekki heimild til að ákveða að bankinn greiddi máls- kostnað seðlabankastjóra,“ sagði Jón Helgi Egilsson, varaformaður bankaráðs Seðlabankans, í samtali við Morgunblaðið eftir fund banka- ráðsins í gærkvöldi. Á fundinum kynnti Sveinn Arason ríkisendur- skoðandi skýrslu um greiðslur Seðlabankans á lögmannsreikning- um Más Guðmundssonar seðla- bankastjóra vegna málsóknar hans á hendur bankanum. Jón Helgi sagði að á fundinum í gærkvöldi hefði verið farið yfir efnis- atriði skýrslunnar en engin ákvörð- un tekin um viðbrögð. Annar fundur verður í bankaráðinu innan fárra daga þar sem málið verður tekið til frekari umræðu og framhald ákveð- ið. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að hvorki lög né reglu- gerð um Seðlabankann geri ráð fyrir að formaður bankaráðs hafi sjálf- stæðar valdheimildir, svo sem til að skuldbinda bankann með einhverj- um hætti. Útgjaldatilefni í tengslum við fjárhagslega hagsmuni banka- stjórans verði að bera upp í banka- ráðinu til samþykktar áður en greiðsla sé innt af hendi. Í skýrsl- unni segir að ekkert hafi komið fram við athugun málsins sem bendi til þess að Már Guðmundsson seðla- bankastjóri hafi sjálfur komið að ákvörðunum, fyrirmælum eða sam- þykki greiðslu þeirra reikninga sem um ræðir. Alfarið hafi verið um að ræða ákvarðanir Láru V. Júlíusdótt- ur, fyrrverandi formanns bankaráðs. Ríkisendurskoðun kveðst ekki hafa fundið neitt annað dæmi um að reikningar vegna útgjalda Seðla- bankans hafi verið samþykktir af formönnum bankaráðs í gildistíð nú- verandi laga um bankann. Ríkisendurskoðun segir að hygg- ist bankaráðið endurskoða ákvörðun fyrrverandi formanns bankaráðs þurfi að ganga úr skugga um hvort skilyrði séu til staðar til að krefja bankastjórann um endurgreiðslu. MHefði átt að bera … »14 Niðurstaða Ríkisend- urskoðunar mjög skýr Jón Helgi Egilsson Lára V. Júlíusdóttir  Hafði ekki heimild til að ákveða greiðslu málskostnaðar Engin fordæmi » Lára V. Júlíusdóttir hafði ekki heimild til að láta bankann greiða málskostnað Más. » Engin fordæmi fyrir vinnu- brögðum formanns bankaráðs, segir Ríkisendurskoðun. „Þetta voru mannleg mistök. Við reynum að gera farþegum okkar til hæfis og sýnum nátt- úruna í þeirri nánd sem óhætt þykir á hverjum tíma, en mönnum geta orðið á mistök og í þessu tilviki var farið of nálægt landi, sem gerði það að verkum að báturinn festist,“ segir Hörður Sigurbjarnarson hjá Norðursiglingu en allir komust heilir á húfi í land þegar hvala- skoðunarbáturinn Haukur strandaði við Lund- ey á Skjálfanda síðdegis í gær. Nítján farþegar voru um borð í bátnum og tveir í áhöfn en eng- an sakaði. Farþegarnir voru allir ferðamenn af erlendum uppruna og voru þeir fluttir til Húsavíkur til aðhlynningar. Aðstæður voru góðar og rólegt í sjó þegar björgunaraðgerðir fóru fram. Gengu þær hratt fyrir sig en 20 mínútum eftir að tilkynnt var um atvikið var gúmmíbátur frá Norður- siglingu, eiganda Hauks, kominn á staðinn. Hauki var komið á flot upp úr kl. 21 í gær- kvöldi, en ætlunin var að gera það rétt fyrir miðnætti þegar færi að flæða. Björgunarmenn voru tilbúnir með dráttartaugar og gripu tækifærið þegar stór alda kom til að koma bátnum á flot. Fór Haukur þá til hafnar á eigin vélarafli, en ekki voru ummerki um leka eða skemmdir. Þetta er í annað skipti sem Haukur strand- ar. Árið 2012 strandaði báturinn einnig á grynningum Lundeyjar. isb@mbl.is Ljósmynd/Alexia Annisius Askelöf Fóru of nálægt lundunum Nítján ferðamenn og tveir í áhöfn Hauks sluppu heilir á húfi þegar báturinn strandaði við Lundey á Skjálfanda Strandaður Björgunaraðgerðir á strandstað við Lundey í gærkvöldi. Öllum farþegum var bjargað frá borði. Björgunarsveitarmenn, Rauði kross- inn, hvalaskoðunarfyrirtæki og fleiri aðilar aðstoðuðu við björgunina, m.a. RIB-bátarnir Amma Kibba og Amma Sigga frá Gentle Giants.  Alls seldust 44 nýir vörubílar, sem eru 12 tonn eða þyngri, á fyrstu sex mánuðum ársins. Það er 57% meiri sala en í fyrra og kemur fram í greiningu Brimborgar. Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, tekur fram að sala á vöru- bílum sem eru með palli og ætlaðir til efnisflutninga sé enn sem komið er hverfandi. Flestir nýju vörubíl- anna séu notaðir í vöruflutninga. Stefán Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Guðmundar Jón- assonar, segir aukna eftirspurn vegna fjölgunar erlendra ferða- manna á síðustu árum hafa ýtt und- ir endurnýjun á rútum. Þær séu nú í notkun allt árið en ekki aðeins yfir sumarið eins og áður. »6 Sala á nýjum vöru- bílum eykst mikið Fjárfesting Nýir vörubílar seljast vel.  Svonefndur rakkamítill, áttfætt blóðsuguskordýr, hefur fundist sex sinnum hérlendis og í öllum til- fellum með erlendum ferðamönn- um frá Bandaríkjunum, síðast í maí. Mítillinn getur borið með sér sýkingar og einkum geta hundar orðið illa úti en ekki er talin hætta á að hann nái fótfestu hérlendis, að sögn skordýrafræðings. »12 Ferðamenn bera með sér rakkamítil

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.