Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við munum taka þessa umræðu á fundi bæjarráðs [sem fram fer í dag]. Við höfum hins vegar rætt málin óformlega og þá hvernig við munum mynda hópinn sem fær þetta verk- efni,“ segir Eiríkur Björn Björgvins- son, bæjarstjóri á Akureyri, en verk- efnahópi er ætlað að stuðla að því að flutningur aðalskrifstofu Fiskistofu norður í land gangi sem best fyrir sig. Á hópurinn einnig að veita starfs- mönnum stofnunarinnar og fjölskyld- um þeirra aðstoð við flutninginn til Akureyrar, vilji þeir yfirhöfuð flytjast búferlum. Aðspurður segist Eiríkur Björn gera ráð fyrir því að taka sæti, eða jafnvel leiða verkefnahópinn. „Ég er búinn að setja mig í samband við fiski- stofustjóra og upplýsa hann um stöðu mála.“ En til stendur að halda fund með fiskistofustjóra við fyrsta tæki- færi, að líkindum í næstu viku, og hef- ur bæjarstjóri Akureyrar m.a. boðið honum að hitta fulltrúa starfsmanna. „Því þeir hafa eflaust spurningar sem snúa að bæði samfélaginu hér og sveitarfélagi,“ segir Eiríkur Björn og bætir við að ýmislegt sé því þegar far- ið í gang þó verkefnahópurinn hafi ekki enn verið skipaður með formleg- um hætti. Mikill mannauður í Fiskistofu Spurður hvort hann hafi sett sig í samband við einhverja af starfsmönn- um Fiskistofu kveður Eiríkur Björn nei við. „Við hins vegar vonumst eftir því að sem flestir starfsmenn sjái sér hag í þessu og hafi jafnframt tækifæri til að flytja. Það er mikill mannauður í starfsfólki stofnunarinnar og við vilj- um gjarnan að það sýni þessu áhuga.“ Borghildur Erlingsdóttir, formað- ur Félags forstöðumanna ríkisstofn- ana, segir brýnt að minna á mikilvægi þess að við endurskipulagningu á op- inberri stjórnsýslu verði ávallt byggt á faglegum vinnubrögðum. Er með því m.a. átt við greiningu á starfsum- hverfi og innviðum stofnunar sem áformað er að flytja, að skýr framtíð- arsýn liggi fyrir og markmið flutnings og ákvörðun sé ávallt vel rökstudd. Bendir hún einnig á að mjög mikil- vægt sé að standa vörð um bæði þekkingu og mannauð sem byggður hefur verið upp hjá viðkomandi stofn- un. „Þegar svona flutningur stofnana á sér stað flyst mannauðurinn því mið- ur sjaldnast með. Reynslan sýnir að það tekur allt að fimm ár að ná upp fullri virkni stofnunarinnar á nýjan leik,“ segir Borghildur og bætir við að því sé ljóst að full ástæða sé til að vekja athygli á mikilvægi þess að staðið sé vel að fyrirhuguðum flutn- ingi aðalskrifstofu Fiskistofu. Eftir hádegi í gær fóru fulltrúar Fiskistofu á fund í húsakynnum sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðuneytis- ins. Var um að ræða fyrsta fund verk- efnisstjórnar um flutning höfuðstöðva Fiskistofu norður í land. Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir, trún- aðarmaður starfsmanna Fiskistofu gagnvart SFR - stéttarfélagi í al- mannaþjónustu, er annar tveggja fulltrúa Fiskistofu í hópnum en Sig- urjón Ingvason lögfræðingur fer fyrir hönd Bandalags háskólamanna. Spurð út í fundinn svarar Jóhanna: „Við vorum beðin um að upplýsa ekki hvað kom fram á fundinum fyrr en við erum búin að ræða við okkar fólk.“ En að sögn hennar verða starfsmenn Fiskistofu settir betur inn í gang mála á sérstökum fundi sem haldinn verð- ur fyrir hádegi í dag. Annar fundur verkefnisstjórnar er áformaður í næstu viku. Undirbúningur hafinn á Akureyri  Ekkert gefið upp eftir fund fulltrúa Fiskistofu og ráðuneytis  Fiskistofustjóri mun að líkindum funda með fulltrúum Akureyrarbæjar í næstu viku  Standa verður vörð um þekkingu og mannauð Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfuðstöðvar Fulltrúar Fiskistofu og ráðuneytisins funduðu í gær. Lítt kræsilegur laumufarþegi slæddist með ferða- manni sem kom hingað til lands frá Bandaríkjunum í maí, áttfætt blóðsuguskordýr, svonefndur rakkamítill. Um var að ræða fullþroskað kvendýr sem hafði tekið sér bólfestu á baki ferðamannsins. Rakkamítillinn hefur fundist sex sinnum hér á landi. Í öllum tilvikum sem vitað er um barst hann með er- lendum ferðamönnum frá Ameríku. Mítillinn getur borið með sér sýkingar en að sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er þó ekki þar með sagt að hann sé endilega hættu- legur mönnum. Venjulega finnist mítillinn fljótlega eftir að hann festir sig á menn og minnka líkurnar á sýkingu allverulega ef hann er fjarlægður snemma. Það séu aðallega hundar sem geti orðið illa úti vegna sýkingar frá rakkamítli en fullorðin dýr sækja fyrst og fremst í þá og önnur meðalstór spendýr sem hýsla. Þrjár mítlategundir landlægar hér Margir anda þó eflaust léttar að heyra að Erling tel- ur engar líkur á að rakkamítillinn nái fótfestu hér á landi. „Ég hef enga trú á að hann myndi þrífast hér. Hann kemur hins vegar áfram til með að berast hing- að fyrir slysni,“ segir Erling sem útilokar þó ekki að rakkamítillinn geti fjölgað sér tímabundið á býli eða jafnvel heimili með fjölda hunda. Þrjár tegundir mítla eru landlægar á Íslandi að sögn Erlings. Þær eru lundamítill og skógarmítill, en hann getur m.a. borið með sér lyme-sjúkdóm, auk sjaldgæfrar tegundar á fuglum sem lítið er vitað um. Mítlar af þessu tagi berast aðallega með farfuglum en einnig stöku sinnum með ferðamönnum og hundum. Hvað nafngiftina á rakkamítlinum varðar segir Er- ling að hann hafi valið honum það nafn vegna þess að hann leggst á hunda og þvottabirni (e. raccoon). Hann leggur mikið upp úr því að finna góð íslensk nöfn á nýjar tegundir. „Ég sef með orðabækur á bringunni til að fá hugmyndir. Það er mjög gaman þegar maður er nýbúinn að gefa út eitthvert heiti og það er rétt komið út á vefinn þá byrja menn að tala um þetta eins og eðli- legasta hlut. Þá hlýtur að hafa tekist vel til,“ segir hann og hlær. kjartan@mbl.is Ferðaðist á baki ferðamanns Ljósmynd/Erling Ólafsson Rakkamítillinn Skordýrið er um fjórir millimetrar að lengd, með átta fætur.  Blóðsjúgandi rakkamítill fannst á ferðamanni sem kom frá Ameríku í maí  Geta borið með sér ýmsar sýkingar en eru hættulegastir fyrir hunda „Það er landlega, bátarnir liggja í brælu hérna við bryggjuna,“ segir Gunnlaugur F. Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í hvalstöðinni í Hval- firði, aðspurður hvernig hvalveið- arnar gangi. Hann segir bátana hafa legið við bryggju þriðja dag- inn í röð í gær. Í sumar hafa veiðst 26 dýr og er Gunnlaugur bjartsýnn á að fylla kvótann. „Við lifum á bjartsýni hér. Við breiðum ekkert yfir haus út af brælu hérna.“ Morgunblaðið/Kristinn Hvalveiðar 26 dýr hafa veiðst í sumar. Bræla á Faxaflóa hægir á hvalveiðum Verð á vörukörfu ASÍ hefur lækkað hjá verslunarkeðjunum Bónus, Nettó og Nóatúni frá júní í fyrra. Á sama tíma hækkaði vörukarfan hjá Víði, Samkaupum-Strax, Sam- kaupum-Úrvali, Hagkaupum og Ice- land en hefur nánast staðið í stað hjá Tíu-ellefu og Krónunni. Fram kemur á vef ASÍ að á þess- um tólf mánuðum hafi vörukarfan hækkað mest um 5% hjá Víði, um 3% hjá Samkaupum-Strax, um 2% hjá Samkaupum-Úrvali, um 1% hjá Ice- land og Hagkaupum en í verslunum Krónunnar og Tíu-ellefu er vöru- karfan næstum á sama verði, hjá Nettó og Nóatúni lækkar hún um 1% en mesta lækkunin er 3% hjá Bónus. Á þessu tímabili hefur verðlag á mat og drykk hækkað um 0,2% sam- kvæmt mælingum Hagstofunnar. Í vörukörfu ASÍ eru allar almenn- ar mat- og drykkjarvörur auk hrein- lætis- og snyrtivara. Verð hefur lækk- að í 3 verslunum  Hækkun hjá fimm verslunarkeðjum Vörukarfa ASÍ Lágvöruverslanir og stórmarkaðir (júní 2013 = 100) 106 104 102 100 98 96 94 92 Bónus Krónan Iceland Nóatún Tíu- ellefu Nettó Hag- kaup Samk.- Úrval Samk.- Strax Víðir -3% – –-1% -1% +1% +1% +2% +3% +5%Júní 2013 Júní 2014

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.