Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 15
Helgarferðin - áhugaverðir áfangastaðir 15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Talsverður verðmunur er á tjald- svæðum landsins samkvæmt tölum sem Morgunblaðið tók saman um kostnað við að tjalda fyrir fjögurra manna fjölskyldu; foreldra og tvö börn, ásamt rafmagni, á nokkrum tjaldsvæðum landsins. Munurinn á því ódýrasta og því dýrasta er 5.000 krónur, eins og sjá má í töfl- unni hér að ofan. Auk þess getur verð hækkað nýti fólk sér þá af- þreyingu sem í boði er á ýmsum tjaldsvæðanna, en þó getur hún einnig staðið gestum til boða að kostnaðarlausu. Töluverður verðmunur Sé gengið út frá því að fjöl- skyldan gisti eina nótt er verðið eins og kemur fram í töflunni hér að ofan. Þar er reiknað með því að um sé að ræða tvo fullorðna og tvö börn í kringum 12 ára aldur. Má þar sjá að dýrast er að gista á tjaldsvæðunum í Húsafelli og á Flúðum en ódýrast, í raun ókeypis, er að gista á Ölfusi. Þó má taka fram að gæði tjaldsvæða geta verið mismunandi og tekur Morgunblaðið það ekki með í reikninginn. Einnig skal tekið fram að ýmis tjaldsvæði bjóða upp á ódýrari gistingu, sé gist í fleiri en eina nótt. Má þar til að mynda nefna Húsafell, en þar kostar 2.000 krónur fyrir fullorðinn og 1.000 krónur fyrir barn sé gist tvær nætur, 3.000 krónur fyrir full- orðinn og 1.500 krónur fyrir barn sé gist í þrjár nætur og 3.800 krón- ur fyrir fullorðinn og 1.800 krónur fyrir barn sé gist í fjórar nætur. Á Flúðum breytist verðið sé gist lengur en í þrjár nætur, en þá kostar nóttin 1.000 krónur fyrir fullorðinn og 600 krónur fyrir barn. Tjaldsvæðin á Flúðum og við Geysi í Haukadal bjóða upp á ódýrari gistingu fyrir ellilífeyrisþega og ör- yrkja, en þar er verðið fyrir þá það sama og fyrir börn, eða 1.000 krón- ur á nótt á Flúðum og 900 krónur á nótt á Geysi. Aukaþjónusta einnig í boði Mörg tjaldsvæði bjóða einnig upp á aukaþjónustu eins og þvotta- og eldhúsaðstöðu. Verð fyrir slíka þjónustu getur einnig verið mis- jafnt. Á Úlfljótsvatni kosta afnot af þvottavél og þurrkara 400 krónur saman, á Flúðum kostar sama þjónusta 750 krónur, en á Geysi kosta afnot af þvottavél einni og sér 500 krónur og afnot af þurrk- ara einum og sér 500 krónur, svo samanlagt er kostnaðurinn 1.000 krónur. Eldhúsaðstaða er til staðar í Húsafelli, en afnot af henni kosta 1.000 krónur. Ýmiss konar afþreying Fjölbreytt afþreying er í boði á mörgum tjaldsvæðanna, og má þar einna helst nefna Úlfljótsvatn, en þar hafa skátarnir komið upp svo- kallaðri útilífsmiðstöð. Innifalin í verði tjaldsvæðisins við Úlfljótsvatn er veiði í vatninu, sem hefur um árabil verið gjöfult veiðivatn. Einn- ig er aðgangur að 9 holu golfvelli á svæðinu innifalinn í verði en auk þess geta gestir leigt golfsett í þjónustumiðstöð. Bátaleiga er einn- ig til staðar og er þar hægt að leigja hjólabáta, kanóa, kajaka og árabáta og sigla á vatninu. Þá má finna enn frekari afþreyingu á svæðinu svo sem vatnasafarí, bog- fimi, klifurturn og folf eða frisbí- golf. Fleiri tjaldsvæði bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu. Nýlega var opnaður sjónvarpssalur á tjald- svæðinu á Laugarvatni og geta fót- boltaáhugamenn þar fylgst með leikjum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í miðri útilegu. Ýmiss konar afþreying er einnig í boði á tjaldsvæðinu á Þórisstöðum og má þar einna helst nefna lazer tag; af- þreyingarleik þar sem keppendur skjóta andstæðinga sína með lazer tag-byssu. Spilað er í Hálsaskógi og fá keppendur hermannagalla og lazer tag-byssur við upphaf leiks. Einn leikur kostar 1.200 krónur, en þó er hægt að spila tvo leiki fyrir 1.990 krónur eða þrjá fyrir 2.990 krónur. Upplýsingar um tjaldsvæði og verðskrár má finna á heimasíðunni Tjalda.is. Misdýrt að fara í útilegu  Ýmislegt í boði á tjaldsvæðum Samtals fyrir 2 fullorðna og tvö börn með Svæði Fullorðnir Börn Rafmagn rafmagni Ölfus Frítt Frítt Ekki til staðar Frítt Laugaland 900 kr. pr. nótt Frítt fyrir 17 ára og yngri 900 kr. pr. sólarhringur 2.700 kr. Úlfljótsvatn 1.200 kr. pr. nótt 600 kr. fyrir 12-17 ára pr. nótt 600 kr. pr. sólarhringur 4.200 kr. Leirubakki 1.100 kr. pr. nótt 550 kr. fyrir 6-12 ára pr. nótt 800 kr. pr. sólarhringur 4.300 Varmaland 1.200 kr. pr. nótt Frítt fyrir 16 ára og yngri 900 kr. pr. sólarhringur 3.300 Húsafell 1.300 kr. pr. nótt 700 kr. fyrir 7-17 ára pr. nótt 1.000 kr. pr. sólarhringur 5.000 Flúðir 1.250 kr. pr. nótt 750 kr. fyrir 10-16 ára pr. nótt 1.000 kr. pr. sólarhringur 5.000 Geysir í Haukadal 1.500 kr. pr. nótt 500 kr. fyrir 8-15 ára pr. nótt 900 kr. pr. sólarhringur 4.900 Verð á gistingu - tjaldsvæði Morgunblaðið/RAX Tjaldsvæði Misdýrt er að gista á tjaldsvæðum landsins, en gæði tjaldsvæða geta þó verið misjöfn. Á sumum stöðum er ýmis afþreying í boði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.