Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík og vara- formaður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis, segir að nefndin muni kalla eftir öllum gögnum sem hún telji hafa þýðingu við umfjöllun nefndarinnar varðandi stofn- úrskurði Fjár- málaeftirlitsins (FME) um stof- nefnahag nýju ríkisbankanna frá október 2008 og þær afskriftir sem FME fram- kvæmdi með heimild í neyðarlög- unum. Víglundur Þorsteinsson ritaði þeim Ögmundi Jónassyni, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, og Brynjari Níelssyni, varaformanni nefndarinnar, opið bréf, sem birt var hér í Morgun- blaðinu í gær, þar sem hann hvatti þá til þess að kalla eftir gögnum frá FME frá 21.10. 2008 vegna Nýja Kaupþings hf.; 08.10. samanber endurskoðun 16.11. 2008 vegna Landsbankans og 14.10. 2008 vegna Nýja Glitnis, nú Íslandsbanka. Víg- lundur segir jafnframt í bréfi sínu að þessi gögn hafi hann undir hönd- um, en að sinni muni hann ekki op- inbera þau. Þetta hefur sinn gang „Við munum ræða þetta mál í nefndinni, en eins og kunnugt er var ákveðið að taka þetta mál fyrir þar. Við höfum kallað eftir útlistunum og frekari rökstuðningi frá Víglundi, sem hann varð við,“ sagði Brynjar í samtali við Morgunblaðið í gær. Brynjar segir að störf nefnd- arinnar hafi aðeins legið niðri að undanförnu og á ekki von á fundum hennar í þessum mánuði. „En ég reikna með því að við tökum ákvörð- un um framhald málsins miðsumars, eða strax í haust. Þetta hefur bara sinn gang, en ef það eru þarna ný gögn, sem þarf að skoða, eins og Víglundur segir, þá getur það eitt- hvað seinkað afgreiðslu málsins hjá nefndinni. Það hefur aldrei staðið annað til hjá nefndinni en að hún kalli eftir öllum þeim gögnum sem skipta máli við þessa skoðun,“ sagði Brynjar Níelsson. agnes@mbl.is Verður kallað eft- ir gögnum  Hlé á störfum nefndarinnar nú Brynjar Níelsson Æðri máttarvöld buðu Akureyringum upp á þrumur og eldingar um hádegisbil í gær, sem er fátítt á þeim slóðum, því fylgdi hellirigning góða stund en síðan stytti upp laust fyrir klukkan þrjú þegar flautað var til leiks á árlegu N1-móti KA- manna fyrir 5. aldursflokk drengja í fótbolta. Einhverjir höfðu á orði að sá almáttugi væri lík- lega KA-maður! Drengirnir, sem koma hvaðan- æva af landinu, léku því í sól og blíðu fram á kvöld. Veðurspáin gekk ekki eftir, sem betur fer að mati mótshaldara og keppenda, og spennandi verður að sjá hvernig viðrar á pollana á KA- svæðinu næstu daga. Strákarnir á mótinu buðu upp á flotta takta; til dæmis þessi. Myndin er úr leik Aftureldingar og Álftaness. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Snilldartaktar í sólinni á N1-mótinu á Akureyri Mánaðargreiðsla fyrir örygg- ishnappa hefur hækkað um 89% eftir að niðurgreiðslur Sjúkratrygginga lækkuðu með nýrri reglugerð 1. apríl sl. Kostar hnappurinn nú 2.550 kr. á mánuði en kostaði áður 1.350 kr. Jóna Valgerður Kristjáns- dóttir, formaður Landssam- bands eldri borgara, segir breytinguna koma sér illa. „Af- ar slæmt er að lækka niðurgreiðslur sem eldri borgarar fá í gegnum Sjúkratryggingar. Við mót- mæltum breytingunum á fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og sagðist hann ætla að endurskoða reglugerðina á fundinum.“ Þá segir Jóna að stefna yfirvalda sé að gera fólki kleift að vera heima fyrir í sem lengstan tíma og telur hún breytinguna ekki ríma vel við þá stefnu, enda veiti hnappurinn fólki öryggi. Guðmundur Arason, forstjóri Securitas, segir að þeir hafi hækkað gjaldið á öryggishnöppunum vegna lægri fjárframlaga frá Sjúkratryggingum. „Niðurgreiðslan lækkaði um 1.200 krónur 1. apríl og í ljósi þess höfum við ákveðið að hækka gjaldið fyrir öryggishnappinn sem því nemur. Okkur þykir leiðinlegt að þurfa að hækka verðið en við sjáum okkur ekki fært að taka hækkunina á okk- ur,“ segir Guðmundur. Öryggishnappurinn hækkar um 89% vegna niðurskurðar  Landssamband eldri borgara telur breytinguna afar slæma Öryggishnappurinn » Með öryggishnappinum er hægt að senda út neyðarkall ef ýtt er á hann. Hann er vinsælt tæki hjá eldri borgurum sem búa heima. » Í aprílbyrjun tók í gildi reglugerðarbreyt- ing sem lækkar niðurgreiðslur Sjúkratrygg- inga vegna öryggishnappsins. Hækkaði þá verðið úr 1.350 krónum á mánuði í 2.550 krónur, eða um nærri 90%. Guðmundur Arason flottir í flísum Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Strandveiðar hafa gengið betur á flestum svæðum það sem af er sumri en á sama tíma í fyrra. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sagði að gæftir hefðu verið prýðilegar í sumar. „Í fyrra dugði aflinn á B-svæðinu (Strandabyggð – Grýtubakkahrepp- ur) alveg út júní en nú lokaðist það 26. júní. Á B-svæðinu kláruðust því allar aflaheimildir og eins á A- svæðinu (Eyja- og Miklholtshrepur – Súðavíkurhreppur),“ sagði Örn. Strandveiðisjómenn á A-svæðinu eru fljótastir að ná í mánaðar- skammtinn. Þeir fengu sjö veiðidaga í júní og jafnmarga veiðidaga í maí. Ónýttar aflaheimildir flytjast á milli tímabila. Nú um mánaðamótin færðust t.d. óveidd 283 tonn, fyrn- ingar frá maí og júní, yfir á júlí á C- svæðinu (Þingeyjarsveit – Djúpa- vogshreppur). Um sömu mánaðamót í fyrra voru fyrningarnar á C- svæðinu 591 tonn en miklu minna hafði fiskast þá en nú í sumar. Á D- svæði (Hornafjörður – Borgar- byggð) færðust nú 237 tonn á milli tímabila um síðustu mánaðamót en í fyrra voru 324 tonn óveidd þar í byrjun júlí. B-svæðið var 100 tonn í plús í fyrra en var nú aðeins í mínus. Strandveiðibátum hefur fækkað frá því í fyrra. Nú hafði 601 strand- veiðibátur tekið þátt í veiðum í maí og júní en í fyrra voru þeir 621. Flestir bátar veiða á A-svæðinu eða 224 bátar í sumar. Á B-svæðinu eru 134 bátar, á C-svæði eru 123 bátar og á D-svæði eru 120 bátar byrjaðir. Afli báta á A-svæði er nú að með- altali 599 kg í róðri en í fyrra var hann 553 kg. Á B-svæði er meðalafl- inn 560 kg í róðri, 515 kg á C-svæði og 446 kg á D-svæði. Góður gangur í strandveiðum Morgunblaðið/Árni Sæberg Strandveiðar Góður gangur hefur verið í strandveiðunum í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.