Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 27
Ragnheiður var skíðakennari í Aust- urríki veturinn 1994-1995 og hóf svo nám í sálfræði við Háskóla Íslands haustið 1995. Hún var í stjórn Animu, félags sálfræðinema við HÍ, og sat fyrir Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Íslands. Hún lauk BA-prófi í sálfræði árið 2000 og MA-prófi í mannauðs- stjórnun frá HÍ 2009. Fyrsta vinna Ragnheiðar var að bera út Morgunblaðið, frá 9-14 ára aldurs, svo vann hún í fisk- og rækju- vinnslu á unglingsárunum á Ísafirði. Eftir útskrift frá HÍ var Ragnheiður stjórnendaráðgjafi hjá Pricewater- houseCoopers/IBM/ParX, 2000-2006. Þá hóf hún störf hjá TM, fyrst sem forstöðumaður einstaklingsþjónustu en frá 2008 hefur hún verið fram- kvæmdastjóri einstaklingsþjónustu og samskiptasviðs TM. „Ég vinn við mjög vítt svið og tekst því á við ótrú- lega fjölbreytt verkefni. Það sem ger- ir vinnuna síðan ennþá skemmtilegri er hvað maður vinnur með frábæru fólki.“ Hleypur, syndir, skíðar, veiðir Helstu áhugamál Ragnheiðar eru hreyfing og útivist. „Ég stunda alls konar líkamsrækt; hleyp, hjóla, syndi og nánast allt sem ég kemst í. Svo eru það náttúrlega skíðin á veturna sem er það skemmtilegasta sem fjöl- skyldan gerir. Ég hef einnig gaman af veiðum og fer á hverju ári í lax- veiði. Ekki má gleyma golfinu en krakkarnir stunda það einnig. Við ætlum t.d. upp í Húsafell um næstu helgi og þar er markmiðið að sex ára dóttirin, Auður, fari sinn fyrsta níu holu hring. Annað markmið er reynd- ar að minnka muninn milli mín og Óli- vers, sonarins, í golfinu en hann er orðinn betri en ég. Svo hef ég mjög gaman af að elda og þrátt fyrir miklar annir oft á tíðum borðum við fjöl- skyldan nánast alltaf saman kvöld- mat þó að stundum sé nokkuð áliðið.“ Fjölskylda Eiginmaður Ragnheiðar var Þórð- ur Friðjónsson, f. 2.1. 1952, d. 8.2. 2011, forstjóri Þjóðhagsstofnunar og síðar forstjóri NASDAQ OMX á Ís- landi. Foreldrar hans voru Friðjón Þórðarson, fyrrverandi alþingis- maður og ráðherra, bús. í Búðardal, og Kristín Sigurðardóttir. Börn: Óliver Dagur Thorlacius, f. 19.3. 1999, og Auður Ólöf Þórðar- dóttir, f. 11.11. 2007. Systkini sammæðra: Haraldur Líndal Haraldsson, f. 27.12. 1979, starfsmaður ISAVIA í Reykjavík, og Arnar Haraldsson, 29.4. 1985, vá- tryggingaráðgjafi hjá TM í Reykja- vík. Systkini samfeðra: Hildigunnur Agnarsdóttir, f. 31. 1. 1986, d. 12.4. 1986, Tómas Agnarsson, f. 14.6. 1987, hugbúnaðarsérfræðingur hjá Lands- bankanum og knattspyrnumaður í Reykjavík, Hrafnhildur Agnars- dóttir, f. 10.1. 1993, líffræðinemi og knattspyrnukona í New York. Upp- eldisbróðir: Hrafn Árnason, f. 29.9. 1972, forstöðumaður hjá Íslands- sjóðum, Kópavogi. Foreldrar: Ólöf Thorlacius, f. 3.6. 1958, starfsmaður Arion banka í Garðabæ, og Agnar Hákon Krist- insson, f. 28.5. 1954, kennari og fyrr- verandi knattspyrnuþjálfari í Reykja- vík. Fóstur- eða stjúpforeldrar: Haraldur L. Haraldsson (giftur móð- ur), f. 17.8. 1952, fyrrverandi bæj- arstjóri á Ísafirði og ráðgjafi í Garða- bæ, Rósa Steinsdóttir (gift föður), f. 24.5. 1952, listmeðferðarfræðingur á BUGL og sjálfstætt starfandi. Úr frændgarði Ragnheiðar Agnarsdóttur Ragnheiður Agnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Einarsson sjómaður í Reykjavík Ágústa Thorlacius húsfreyja í Reykjavík Sigfríð Þ. Guðmundsdóttir Breiðfjörð húsfreyja í Reykjavík Ævar Breiðfjörð framkvæmdastjóri í Reykjavík Helen Breiðfjörð starfsmannastjóri Vodafone Þorleifur Thorlacius skipasmiður í Reykjavík Ólöf Thorlacius bankastarfsmaður í Garðabæ Björg Thorlacius starfsmaður Jurtaapóteksins í Reykjavík Margrét Tryggvadóttir forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs Nova Margrét Thorlacius húsfreyja í Reykjavík Ólafur Thorlacius sjómaður í Reykjavík Guðrún S. Hákonardóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Tómasson verkamaður í Reykjavík Magnea Jónsdóttir húsfreyja í Reykjanesbæ Kristinn Björnsson rafvirkjameistari í Reykjanesbæ Guðrún Björnsdóttir húsfr. á Hólmavík og í Reykjavík Bjarni Magnús Snæland Guðmunds- son rafvirki í Keflavík Guðfinna S. Bjarnadóttir fyrrv. alþingismaður og rektor Háskólans í Reykjavík Þórður Björnsson sjómaður á Hólmavík, síðar leigubílstjóri í Keflavík Gunnar Þórðarson tónlistarmaður og borgarlista- maður Reykjavíkur 2014 Agnar Hákon Kristinsson kennari í Reykjavík Guðbjörg Níelsdóttir húsfreyja á Hólmavík Björn Björnsson verslunarmaður á Hólmavík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Jón Þorsteinsson íþróttakennarifæddist 3.7. 1898 í Örnólfsdal íÞverárhlíð í Borgarfirði. For- eldrar hans voru Þorsteinn Hjálm- arsson, bóndi þar, og k.h., Elín Jóns- dóttir, bónda í Stafholtsey og í Norðtungu Þórðarsonar. Jón var einn merkasti brautryðj- andi á sviði íþróttamála, leikfimi- kennslu og sjúkraþjálfunar hér á landi. Hann stundaði nám við Al- þýðuskólann á Hvítárbakka 1916-18, við Gymnastikhojskolen í Ollerup í Danmörku 1922-23, sótti íþrótta- námskeið í Tunsby í Finnlandi, við Mullers Institut í Kaupmannahöfn og við lýðskólann í Voss í Noregi. Jón kenndi sund, glímu og leikfimi víða um land frá 1916 og var aðal- kennari Glímufélagsins Ármanns frá 1924. Hann sérhæfði sig í æfingum til að ráða bót á hryggskekkju og bakveiki og fékk sérstakt lækninga- leyfi til þess árið 1934. Jón sigldi með glímu- og leikfimiflokka til Nor- egs, Danmerkur, Þýskalands og Sví- þjóðar fyrir seinna stríð. Jón stofnaði íþróttaskóla í Reykjavík 1924 og byggði sérstakt tveggja sala íþróttahús á Lindar- götu 7 í Reykjavík árið 1935 og var þar sjálfur búsettur síðan. Leikfim- ishús Jóns Þorsteinssonar við Lind- argötu var veglegasta íþróttahús síns tíma og var reyndar um árabil vandaðasta íþróttahús hér á landi. Þar voru á árum áður haldnir kapp- leikir í handknattleik og keppt í glímu auk þess sem fjöldi skóla kenndi þar leikfimi. Íþróttaskólinn var starfræktur til ársins 1975. Hús- ið hýsti síðan litla svið Þjóðleikhúss- ins og nú Kúluna, sem er helgað ungum leikhúsunnendum. Jón var mikill vinur Kjarvals sem bjó í húsi hans við Lindargötu um skeið og sýndi þar oft verk sín. Kona Jóns var Eyrún Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 25.3. 1898, d. 12.3. 1996. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Sæmundsson, kennari á Stokkseyri, síðar skrifstofumaður í Reykjavík, og k.h. Eyrún Eiríks- dóttir húsfreyja. Sonur Jóns og Ey- rúnar er Guðmundur Jónsson, fyrr- verandi hæstaréttardómari. Jón Þorsteinsson lést 24.3. 1985. Merkir Íslendingar Jón Þorsteinsson 95 ára Jóhanna Ólafsdóttir 90 ára Sigurlaug Guðmundsdóttir 85 ára Óttar Björnsson 80 ára Ólafur Ingimundarson 75 ára Hulda Heiðdal Hjartardóttir Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir Kristján Árnason 70 ára Hildur Þorsteinsdóttir Jórunn M. Bernódusdóttir 60 ára Björn Ágústsson Helga Helgadóttir Magnús Magnússon Margrét Þórdís Jónsdóttir Ólöf Árnadóttir Steinunn Þorsteinsdóttir 50 ára Bergsveinn G. Reynisson Edda Kristín Hauksdóttir Guðný Sverrisdóttir Halldór Örn Oddsson Josefina Binatero Ordiz Jónína Rikka M. Steinþórsdóttir Nína Edvardsdóttir Ólöf Kristjánsdóttir Rósa Ragúels Jóhannsdóttir Sigríður Dröfn Björgvinsdóttir 40 ára Einar Hannesson Gísli Júlíus Sigurðsson Grétar Magnús Grétarsson Guðrún Svava Stefánsdóttir Gunnur Róbertsdóttir Harpa Magnúsdóttir Hjördís Bergsdóttir Jóhanna Harpa Svansdóttir Júlíus Fjeldsted Kristín Dana Husted Lára Janusdóttir Marsibil Jóna Sæmundardóttir Páll Sveinsson Pálmi Jóhannsson Zydrunas Dulinskas 30 ára Andri Freyr Magnússon Arnar Þórðarson Björn Valdimarsson Edyta Kozikowska Eiríkur Birkir Ragnarsson Ilija Tisma Karl Lilliendahl Viggósson Kjartan Freysteinsson Marcel Radix Mariusz Jacek Konopka Paul Robert Elsy Víðir Jónasson Þórhallur Guðmundsson Til hamingju með daginn 40 ára Garðar býr í Gunnarsholti á Rangár- völlum og er héraðs- fulltrúi hjá Landgræðslu ríkisins. Maki: Klara Viðarsdóttir, f. 1979, aðalbókari hjá Rangárþingi ytra. Börn: Viðar Freyr, f. 2011, og Helga Björk, f. 2014. Foreldrar: Þorfinnur Þór- arinsson, f. 1943, og Ás- laug Jóhannesdóttir, f. 1945, bændur á Spóa- stöðum. Garðar Þorfinnsson 40 ára Svanhvít er fædd og uppalin á Stokkseyri en býr í Reykjavík. Hún er þjónusturáðgjafi hjá Sjóvá. Maki: Helgi Ólafsson, f. 1969, bifvélavirki og sölu- maður hjá Wurth. Börn: Eva Ýr, f. 1996, Hugrún Líf, f. 2000, og Ólafur Kristófer, f. 2002. Foreldrar: Jón Hall- grímsson, f. 1944, og Ragnhildur Jónsdóttir, f. 1953. Svanhvít Ósk Jónsdóttir 30 ára Ingunn er frá Hellu en býr í Reykjavík. Hún er uppeldis- og menntunarfræðingur og vinnur á leikskólanum Rauðhóli. Maki: Sigþór Árnason, f. 1984, viðskipta- og mark- aðsfræðingur hjá Tótem. Börn: Þórdís Eva, f. 2011, og Gunnar Darri, f. 2014. Foreldrar: Kjartan Erl- ingsson, f. 1956, og Kol- brún Hákonardóttir, f. 1955. Ingunn Heiða Kjartansdóttir Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm • Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.