Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Endurskoðuð viðmið um skipulag hjúkrunarheimila sem velferðar- ráðuneytið hefur gefið út miðast aðeins við ný heimili sem verða byggð. Nýju viðmiðin gera meðal annars ráð fyrir að unnt verði að veita endurhæfingu inni á hjúkr- unarheimilum og að gert verði ráð fyrir sérstakri aðstöðu til þjálfunar. „Það er ekki hægt að krefjast þess að eldri hjúkrunarheimilin verði brotin niður en þau hafa haft viðmiðin til hliðsjónar þegar þau ráðast í endurbætur sem hafa þá tekið mið af möguleikum gamla húsnæðisins til að mæta þessum viðmiðum,“ segir Bryndís Þorvalds- dóttir, sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu hjá velferð- arráðuneytinu. Viðmið af þessu tagi voru fyrst sett árið 2008 en þau hafa nú verið endurskoðuð að teknu tilliti til ábendinga sem hafa borist og breyttra aðstæðna. Á meðal annarra breytinga sem nýju viðmiðin fela í sér er að flat- armál einkarýmis íbúa er tilgreint sérstaklega. Það skal vera að lág- marki 28 fermetrar. Þá hafa kröfur um fermetrafjölda fyrir hvert hjúkrunarrými á heimili verið minnkaðar úr 75 fermetrum í 65. Innan þess reiknast einkarými, sameiginlegt rými íbúa eininga, stoðrými og aðstaða starfsfólks. Viðmið fyr- ir ný hjúkr- unarrými  Einstaklingsrými minnst 28 fermetrar Morgunblaðið/Ómar Rými Lágmarksstærð einkarýmis íbúa er nú skilgreind í fyrsta skipti. Vel á fimmta þúsund manns eru á Landsmóti hestamanna á Gadd- staðaflötum. Eftir hádegi hófst dag- skrá mótsins að nýju eftir að fresta þurfti bæði gæðingakeppni og kyn- bótasýningum vegna slagveðursins sem gekk yfir á þriðjudaginn. Það stytti upp eftir hádegi í gær en var þó heldur hvasst. Gestir mótsins voru að vonum ánægðir þegar stytti upp og létu veðrið ekki á sig fá. Almennt láta gestir mjög vel af hestakosti móts- ins enda hafa aldrei verið jafn margir hestar á Landsmóti hesta- manna. Þó nokkur stemning mynd- aðist í brekkunni þegar kynbóta- hrossin voru á braut og voru áhorfendur ósparir á klappið þegar þeir hrifust með. Spurning um dagsformið „Þetta er allt spurning um dags- formið. Hesturinn er góður og að sjálfsögðu stefnum við á sigur,“ sagði Sigurður Sigurðarson sem er efstur inn í úrslit í B-flokki gæðinga á Loka frá Selfossi eftir milliriðla. Gústaf Ásgeir Hinriksson og Ás frá Skriðulandi eru efstir inn í úrslit eftir milliriðla í ungmennaflokki. Ölnir frá Akranesi var efstur fimm vetra stóðhesta með 8,69 í ein- kunn. Hann hefur þó tækifæri til að hækka í yfirliti. Fyrri tveir sprettir í skeiðgreinum fóru fram í gær, Árni Björn Pálsson og Korka frá Steinnesi voru með besta tímann í 250 metra skeiði. thorunn@mbl.is Sigurður stefnir á sigur Morgunblaðið/Þórunn Kristjánsdóttir Áhorfendur Líflegt var í brekkunni á kynbótabrautinni og gestum fjölgar.  Stytti loks upp á landsmótinu  Gestir á fimmta þúsund Horfur í vatnsbúskap Landsvirkj- unar hafa batnað verulega, sam- kvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Fylling miðlunarlóna er á góðu róli og útlit fyrir að staðan verði betri í haust en hún var síðastliðið haust. Þó er talið ólíklegt að þau fyllist öll og fari á yfirfall í lok sumars. Hálslón stendur hærra nú en á sama tíma í fyrra og eru yfirgnæf- andi líkur á að það fyllist í ágúst- mánuði. Staðan í Blöndulóni er mun betri en vorið 2013 og eru líkur á fyllingu lónsins um meðallag. Góðar líkur eru á að staðan í Þórisvatni verði betri en í fyrrahaust. Þó er ólíklegt að það fyllist. Betri staða í vatnsbúskap Háþróaður svefnbúnaður duxiana.com DUXIANA Ármúla 10 S - 568 9950 Sænsk hágæðarúm í 87 ár DUX 414 SUMARTILBOÐ 12 -17% Afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.