Morgunblaðið - 03.07.2014, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að því að
62 íbúðir í fyrsta
áfanga nýs
bryggjuhverfis
við Kársnes í
Kópavogi fari í
sölu í byrjun sept-
ember og komi til
afhendingar
næsta vor. Íbúð-
irnar eru í sex
stigagöngum í
Naustavör 2-12, nýrri götu við sjóinn
sunnan megin við Fossvoginn, gegnt
Nauthólsvík. Bílakjallari verður und-
ir öllum húsum í hverfinu.
Gunnar Þorláksson, framkvæmda-
stjóri Byggingarfélags Gylfa og
Gunnars, BYGG, segir hér á ferð
stærsta einstaka verkefnið sem fyr-
irtækið hefur tekið að sér á íbúða-
markaði frá efnahagshruninu. Fyrir-
tækið byggir einnig íbúðir í Lundi,
austan Kringlumýrarbrautar, en það
verkefni dreifist á mörg ár. Líkt og í
Lundi er áformað að um 400 íbúðir
verði í bryggjuhverfinu.
Gunnar telur aðspurður að ágæt
eftirspurn sé eftir nýju íbúðunum.
Fermetraverðið verði svipað og í Sjá-
landshverfinu í Garðabæ en þar hefur
BYGG byggt flestar íbúðanna.
Nýju íbúðirnar í Naustavör verða
2-4 herbergja og verða þær 83 til 169
fermetrar. Framkvæmdir við þær
hófust í vor. Gunnar segir íbúðirnar
bæði henta fólki á miðjum aldri sem
er að minnka við sig og ungu fólki sem
leitar að smærri eignum.
Staðsetningin skiptir máli
„Markaðurinn er ágætur. Það er þó
enginn hamagangur. Það er eftir-
spurn eftir íbúðum á góðum stöðum,“
segir Gunnar en umræddar íbúðir í
Naustavör eru sýndar á teikningu hér
til hægri. Á teikningunni til vinstri má
sjá drög að bryggjuhverfinu og má
sjá hluta húsanna í Naustavör 2-12
neðst í vinstri horni teikningarinnar.
Spurður hvort gera þurfi uppfyll-
ingar vegna næstu áfanga í hverfinu
segir Gunnar að gerð þeirra sé lokið.
Hafist verði handa við næstu áfanga
eftir að Naustavör 2-12 er tilbúin.
„Við erum að hanna húsin sem munu
standa á landfyllingunni. Stefnt er að
því að ljúka framkvæmdum í hverfinu
eftir fjögur til fimm ár,“ segir Gunnar
um næstu skref. Við hönnun íbúða í
Naustavör er þess gætt að útsýni sé
frá öllum íbúðum og að skuggavarp í
hverfinu sé lágmarkað. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins má ætla
að söluverðmæti 62 íbúða í Naustavör
2-12 verði á þriðja milljarð króna.
Byggja útsýnisíbúðir fyrir milljarða
Framkvæmdir hafnar við 62 íbúðir í nýju bryggjuhverfi
Söluverðmætið er á þriðja milljarð Gegnt Nauthólsvík
Teikning/Björn Ólafsson arkitekt
Í byggingu Stefnt er að því að afhenda íbúðirnar í Naustavör næsta vor.
Teikning/Björn Ólafsson arkitekt
Byggt á næstu árum Hér má sjá drög að fyrirhuguðu bryggjuhverfi.
Gunnar
Þorláksson