Morgunblaðið - 03.07.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Vinstristjórnin sem sat hér á síð-asta kjörtímabili gerði það
sem í hennar valdi stóð til að þvæl-
ast fyrir atvinnulífinu, ekki síst
gjaldeyrisskapandi undir-
stöðuatvinnugreinum.
Og ríkisstjórnin lét sér ekkinægja að gera það sem í henn-
ar valdi stóð, hún gekk líka lengra
til að ná
pólitískum
mark-
miðum sín-
um.
Eitthelsta pólitíska markmið
vinstristjórnarinnar var að koll-
varpa fyrirkomulagi fiskveiða við
landið. Aflamarkskerfi með fram-
seljanlegum og varanlegum kvót-
um var þessum stjórnvöldum sér-
stakur þyrnir í augum.
Óvíst er hvort ástæðan var ein-göngu sú að kerfið hafði
reynst afar vel, verið hagkvæmt og
fyrirmynd annarra ríkja, eða hvort
önnur sjónarmið spiluðu inn í.
En ástæðan skiptir ef til vill ekkiöllu máli. Miklu skiptir hins
vegar að nú hefur umboðsmaður al-
þingis gefið út álit sitt á því hvernig
þessi stjórnvöld stóðu að úthlutun
makrílkvóta og hann kemst í stuttu
máli að þeirri niðurstöðu að sú út-
hlutun hafi verið lögleysa.
Ljóst er að úthlutuninni réð viljitil að ná fram því pólitíska
markmiði að grafa undan farsælu
kvótakerfi.
Nú stendur upp á ný stjórnvöldað bæta úr þessu og um leið
að fara yfir og leiðrétta aðrar
slæmar ákvarðanir fyrri stjórn-
valda á þessu sviði.
Pólitísk úthlutun
og andstæð lögum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 13 léttskýjað
Nuuk 6 heiðskírt
Þórshöfn 13 léttskýjað
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 20 þrumuveður
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 16 skúrir
London 25 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 18 heiðskírt
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 18 skúrir
Moskva 23 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 20 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:10 23:55
ÍSAFJÖRÐUR 2:03 25:12
SIGLUFJÖRÐUR 1:39 25:02
DJÚPIVOGUR 2:27 23:37
Stofnun Sæmundar fróða við Há-
skóli Íslands hlaut 420 milljóna
króna styrk frá NordForsk til að
koma á fót norrænu öndvegissetri
um rannsóknir á því hvernig auka
megi öryggi samfélaga gagnvart
náttúruhamförum.
Verkefnið heitir NORDRESS en
fjöldi vísindamanna og stofnana á
Norðurlöndum mun vinna að verk-
efninu næstu fimm árin, en stærstur
hluti verkefnisins verður unninn á
Íslandi. Áhersla verkefnisins er að
rannsaka viðnámsþol samfélaga
gagnvart náttúruhamförum og
hvernig hægt sé að auka viðbragðs-
hæfni á ýmsum stigum, t.d. með
hjálp tækni. Þá verða einnig áhrif
náttúruhamfara á andlega og lík-
amlega heilsu fólks rannsökuð og
lagt mat á hvernig megi undirbúa
fólk betur undir slík áföll.
Eflir íslenska fræðasamfélagið
Guðrún Pétursdóttir, einn stjórn-
enda verkefnisins og forstöðumaður
Stofnunar Sæmundar fróða við Há-
skóla Íslands, segir þetta fyrsta önd-
vegissetur um samfélagslegt öryggi
og náttúruhamfarir á Norður-
löndum. Þá bætir hún við að svona
hraustlegir styrkir komi til með að
efla íslenska fræðasamfélagið mikið.
Unnið verður með bestu sérfræð-
ingum Norðurlanda. isb@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fræði Rannsaka á samfélagslegt ör-
yggi gagnvart náttúruhamhörum.
Háskólinn
fær 420
milljónir