Morgunblaðið - 03.07.2014, Síða 19

Morgunblaðið - 03.07.2014, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Hallgrímskirkja Borgarstarfsmenn unnu við það neðst á Skólavörðustíg í gær að setja upp myndir af Hallgrímskirkju eftir leikskólabörn á Grænuborg. Eggert Nýlega voru tveir menn sýknaðir í hér- aðsdómi vegna meintra umboðssvika og brota á lögum um hlutafélög. Upphaf þessa máls má rekja til viðamikilla lögreglu- aðgerða, þar sem um- bjóðandi minn var m.a. handtekinn og símar hans hleraðir. Aðgerð- irnar voru réttlættar með því að um væri að ræða fjár- málamisferli upp á meira en hundr- að milljarða. Við lauslega skoðun gagna kom strax í ljós að þessar háu fjárhæðir voru tilkomnar vegna þess að rannsóknaraðilar höfðu lagt saman framlengingar á lánum og litið á þær sem sjálfstæðar lánveit- ingar. Upphafleg lánveiting náði þannig aðeins örfáum prósentum af því meinta broti sem rannsóknarað- ilar gáfu sér. Þetta er sambærilegt við að líta svo á að einstaklingur sem framlengir eins milljón króna yfirdrátt mánaðarlega hafi á einu ári fengið 12 milljóna króna lán. Þessi einfalda skekkja fór framhjá Fjármálaeftirlitinu, sem er sérhæft stjórnvald á þessu sviði, sérstökum saksóknara, sem á að hafa sérstaka þekkingu á efnahagsbrotum, og dómara við Héraðsdóm Reykjavík- ur. Afleiðingarnar urðu umfangs- miklar lögregluaðgerðir á hendur fjölda manns og at- vinnumissir auk ým- issa annarra skerðinga á grundvallar- mannréttindum. Embætti Sérstaks saksóknara Embætti Sérstaks saksóknara var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi sem leiddi til bankahrunsins. Eftir umfangsmikla og dýra rannsókn sem aug- ljóslega byggðist á röngum for- sendum var niðurstaðan að ákæra tvo einstaklinga fyrir umboðssvik og brot gegn hlutafélagalögum, vegna lánveitinga sem voru að fullu greiddar sex mánuðum áður en um- rædd rannsókn hófst. Mál á hendur umbjóðanda mínum og fjölmörgum öðrum sem höfðu stöðu sakbornings árum saman voru felld niður. Fjár- hæðirnar sem ákært var fyrir námu broti úr prósenti miðað við þá rann- sóknarhagsmuni sem umbjóðanda mínum voru kynnt í upphafi. Ákær- an var ekki í neinu samræmi við það hlutverk sem embættið var stofnað til og kostnaður við rannsókn máls- ins umtalsvert hærri en fjárhæð þess brots sem á endanum var ákært fyrir. Til þess að freista þess að ná fram sakfellingu voru ýmis illa skilgreind og óljós hugtök í lögum og innri reglum túlkuð mjög þröngt. Í dóminum kemur fram að embætti Sérstaks saksóknara, sem krafðist 18 mánaða fangelsisrefsingar, hélt til baka grundvallargögnum sem höfðu afgerandi áhrif til sýknu. Þau gögn voru ekki lögð fram fyrr en eftir sérstaka áskorun frá ákærðu. Reglur réttarríkisins Í kjölfar alþjóðlegu fjármála- kreppunnar 2008 var í ýmsum atrið- um vikið frá meginreglum réttar- ríkisins á Íslandi. Settar voru á laggirnar sérstök embætti eða nefndir, þrátt fyrir varnaðarorð ým- issa um að skynsamlegra væri að styrkja þær stoðir sem fyrir væru í samfélaginu. Sérstök Rannsóknar- nefnd, sem bar enga ábyrgð í störf- um sínum, virti einskis réttindi þeirra einstaklinga sem um var rit- að og skilaði skýrslu sem var full af röngum ályktunum, eins og forseti Íslands, Hæstiréttur og fleiri hafa bent á. Alvarlegustu afleiðingarnar eru þó þær að varfærni við íþyngj- andi beitingu opinbers valds var gagnrýnd í skýrslu nefndarinnar. Í framhaldinu fjölgaði beiðnum eftir hlerunum, húsleitum, handtöku og gæsluvarðhaldsúrskurðum. Þáverandi forstjóri FME taldi það meginmarkmið sitt að kæra sem flest mál án tillits til gæða rannsóknar. Þessi einstaklingur var einnig tilbúinn að brjóta lög til þess að koma höggi á þingmann sem honum var í nöp við. Afleiðingin er sú að hátt í 400 manns hafa fengið réttarstöðu grunaðs manns. Að minnsta kosti helmingur mála sem FME hefur kært til sérstaks sak- sóknara er tilefnislaus. Fyrir liggur dómur um að FME svipti saklausan mann starfi sínu og veittist að æru hans á heimasíðu sinni. Umboðs- maður Alþingis og dómstólar hafa gert athugasemdir við fjölda mála hjá FME, s.s. nafnalista yfir óæski- legt fólk, ólögmæta gjaldtöku og ólögmætar sektir. Þá liggur fyrir að dómstólar veita minna aðhald við hlerunarúrskurði en Mannréttinda- dómstóllinn gerði athugasemdir við gagnvart Moldavíu. Hver er ábyrgð rannsóknaraðila? Með framgöngu sinni við hleranir braut sérstakur saksóknari gegn grundvallarreglum réttarríkisins um réttarvernd sakborninga. Frjálsleg beiting húsleita, handtöku og gæsluvarðhaldsúrskurða kallar á rannsókn á því hvort málefnalegar forsendur hafi verið fyrir hendi og gætt hafi verið meðalhófs. Nýleg til- vik sýna að mikilvægum upplýs- ingum hefur ítrekað verið haldið frá dómstólum, sem geta skipt sköpum um það hvort viðkomandi ein- staklingur verður sviptur frelsi sínu eða ekki. Í 148. gr. almennra hegn- ingarlaga segir m.a.: „Hver sá sem með rangri kæru, röngum fram- burði, rangfærslu eða undanskoti gagna, öflun falsgagna eða á annan hátt leitast við að koma því til leiðar, að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, skal ... sæta fangelsi allt að 10 árum. ..... Hafi brot haft eða verið ætlað að hafa í för með sér velferðarmissi fyrir nokkurn mann, þá skal refsað með fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum.“ Grundvallarregla íslenskrar stjórnskipunar og Mannréttinda- sáttmála Evrópu er að allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta réttinda án manngreinarálits. Í því felst að það skiptir t.d. ekki máli hvort hinn brotlegi er bankamaður eða handhafi opinbers valds. Allir verða að fara að lögum og sæta ábyrgð þegar lög eru ekki virt. Á sama tíma og gengið er hart fram við að fella háttsemi manna sem störfuðu í fjármálaþjónustu undir refsiákvæði hafa litlar kröfur verið gerðar til þess að rannsóknaraðilar, FME og embætti Sérstaks saksókn- ara fylgi lögum. Þær staðreyndir sem nú þegar liggja fyrir og áður var vikið að hljóta að kalla á rann- sókn á því hvernig farið hefur verið með opinbert vald. Það gengur ekki að ríkissaksóknari láti brot í op- inberu starfi viðgangast vegna fyrn- ingar. Eftir Helga Sigurðsson »Upphafleg lánveiting náði þannig aðeins örfáum prósentum af því meinta broti sem rann- sóknaraðilar gáfu sér. Helgi Sigurðsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Allir skulu vera jafnir fyrir lögum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.