Morgunblaðið - 03.07.2014, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
✝ Björg Helga-dóttir Rand-
versdóttir fæddist í
Reykjavík 30. mars
1929. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 20. júní
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Margrét
Benediktsdóttir frá
Sauðárkróki, f.
12.1. 1903, d. 4.10.
1994, og Randver Hallsson frá
Hornafirði, f. 1.10. 1898, d.
10.11. 1944. Björg var einka-
dóttir þeirra hjóna.
Árið 1949 giftist Björg Þor-
Ástu Björgu og Friðrik Þór.
Eiginmaður Ástu Bjargar er
Magnús Már Nilsson, dætur
þeirra eru Katrín og Þórey
Sesselja. Eiginkona Friðriks
Þórs er Hrönn Haraldsdóttir,
börn þeirra eru Emil, Máni og
Freyja. Sambýlismaður Hólm-
fríðar er Steinar Örn Sturluson.
3) Margrét Þóra, f. 9. janúar
1962, gift Árna Jörgensen.
Börn þeirra eru Þórunn og
Þorri.
Björg var að mestu leyti
heimavinnandi húsmóðir þar til
börnin stálpuðust en vann með-
fram því í nokkur sumur sem
símadama á Hótel Borg. Síðar
vann hún við símsvörun og
skrifstofustörf á Landakotsspít-
ala.
Útför Bjargar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, 3. júlí 2014, og hefst at-
höfnin kl. 15.
láki Þórðarsyni, f.
10. júní 1921, d. 9.
febrúar 2002.
Björg og Þorlákur
eignuðust þrjú
börn: 1) Randver, f.
7. október 1949,
kvæntur Guðrúnu
Þórðardóttur. Börn
þeirra eru Halla
Björg og Árni
Þórður. Sambýlis-
maður Höllu Bjarg-
ar er Ögmundur Jónsson. 2)
Sigríður, f. 24. október 1952,
gift Ingvari Georgssyni. Dóttir
þeirra er Hólmfríður. Frá fyrra
hjónabandi á Sigríður börnin
Mamma var einkabarn og bar
svo sannarlega þess merki. Hún
var einstök og fór í gegnum lífið
á sínum forsendum. Hún var
sjálfstæð og tók sínar ákvarð-
anir án hiks og fums og alger-
lega án þess að hugsa um hvað
öðrum fyndist. Henni var slétt
sama um almenningsálitið og dá-
ist ég að henni fyrir það. Hún
var hvatvís og vissi ekkert
skemmtilegra en óvæntar uppá-
komur; að kynnast nýju fólki og
fór aldrei í manngreinarálit þar.
Fyrir örfáum árum var hún á
leið til Siglufjarðar. Hún flaug á
Sauðárkrók og tók rútuna til
Siglufjarðar en áttaði sig ekki á
því að það var ekki hægt að
borga farið með korti og var
ekki með neitt lausafé á sér. En
hún, alltaf jafnheppin, því á
sömu leið var maður sem var
fljótur til að bjóðast til að borga
fyrir hana farið og þáði hún það.
Þessi maður var Róbert Guð-
finnsson, athafnamaður í Siglu-
firði, og sjaldan segist hún hafa
hitt skemmtilegri mann, talaði
alltaf um Róbert sem vin sinn ef
hún heyrði af honum í fréttum.
Hún hafði gaman af lífinu og
var listelsk mjög enda mikil
handavinnukona sjálf og liggja
mörg listaverkin eftir hana. Hún
átti greiðan aðgang að leikhús-
um borgarinnar og mætti á eins
margar leiksýningar og hún
komst yfir, hafði gaman af bíó-
myndum, söngleikjum og óper-
um og síðast en ekki síst listsýn-
ingum og listfengu fólki.
Mamma bar til þess gæfu að
geta ferðast mikið og var mikil
heimskona. Það kom reyndar
ekki til af góðu að hún komst á
forsíður blaðanna eitt sinn þegar
hún var á leið úr landi. Þannig
vildi til að hún var að skoða ilm-
vötn í fríhöfninni, tekur tappann
af einu og það springur í hönd-
unum á henni. Að sjálfsögðu
varð uppi fótur og fit og lögðust
allir viðstaddir í flughöfninni
flatir því álitið var að um hryðju-
verkaárás væri að ræða. Eftir
allt fumið og þegar í ljós kom
hvað olli sprengingunni var loks
farið að huga að mömmu og
henni komið undir læknishend-
ur. Það munaði víst hársbreidd
að hún missti annað augað í
þessu slysi. Daginn eftir birtist
mynd af henni framan á einu
dagblaðanna þar sem hún var
með lepp fyrir öðru auganu um-
vafin blómahafi. Hún þurfti að
fresta för en viku síðar var hún
ferðbúin á ný og farin á vit æv-
intýranna í útlöndum. Þetta var
reyndar ekki eina sprengjuárás-
in sem hún lenti í í þessari ferð
því á bakaleiðinni var hún stödd
í Marks & Spencer í London
þegar sprengja sprakk innan-
dyra og kom að sjálfsögðu öllu í
uppnám. Mamma var svo heppin
að vera stödd á kassanum í nær-
fatadeildinni þegar allir þustu út
úr búðinni og hún þar á meðal
með fullan poka af góssi.
Hvatvísin gat komið henni í
koll því hún sagði oft hluti án
þess að hugsa út í afleiðingarn-
ar. Eitt lítið dæmi um þetta er
þegar ég hélt upp á stórafmæli
að mamma snýr sér að vinkonu
minni sem hafði mætt í sínu fín-
asta pússi, leðurbuxum með belti
um sig miðja, og segir: „Komst
þú á mótorhjóli, elskan?“
Ég á eftir að sakna þess að
heyra hvorki „Magga mín“ né
„Guð minn almáttugur“ á inn-
soginu í tíma og ótíma og mikið
óskaplega á ég eftir að sakna
hennar mömmu minnar sem var
einstök, skemmtileg og glæsileg
kona.
Margrét Þóra.
Amma mín var dýrmæt kona,
það var enginn eins og amma
Björg. Þegar allt virtist vera svo
óútreiknanlegt og ómögulegt þá
var nóg fyrir ömmu að segja eitt
orð og þá hafði lífið eignast nýj-
an tilgang. Í hvert einasta skipti
sem maður hitti hana þá nánast
undantekningarlaust var hún
búin að búa eitthvað til, sauma,
prjóna eða jafnvel mála á kort,
sem var jú nýjasta æðið hjá
henni.
Alltaf vildi hún nú samt gefa
einhverjum fjölskyldumeðlimi
nýju flíkina, húfuna, ullarsokk-
ana, peysuna, teppið eða jafnvel
kortið sem hún hafði verið að
dunda sér við að föndra síðast-
liðna viku, meðan hún sat í
stólnum og horfði oftar en ekki á
óperu eða leikrit í sjónvarpinu
og að sjálfsögðu með rófubita að
narta í inn á milli þegar tími
gafst til.
Þín mun verða sárt saknað,
og það rosalega mikið elsku
amma mín. Ég veit þú ert á
betri stað núna og með ástina
þína þér við hlið. Ég veit þú skil-
aðir góðri kveðju til hans frá
okkur öllum og mikið hlakka ég
til að hitta ykkur aftur einn dag-
inn, þó ekki nærri því strax. Guð
veri með þér.
Og þó þú sért horfin héðan burt
og hönd þín sé dauðakyrr,
í ljósi þessu er líf þitt geymt,
– það logar þar eins og fyrr.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þórunn Jörgensen.
Amma Björg var svo ung í
anda að við höfðum á tilfinning-
unni að hún myndi lifa að eilífu
eða allavega að hún myndi ekki
kveðja okkur svona fljótt. Amma
okkar var kaldhæðin, eftirtekt-
arsöm, fyndin, nýjungagjörn og
skapandi, en hún var líka hvatv-
ís, þrjósk og forvitin. Fyrst og
fremst var amma þó skemmti-
leg. Hún var afar áhugasöm um
fólkið í kringum sig og það fór
ekkert framhjá henni. Við gát-
um spjallað við hana um allt
milli himins og jarðar, þar á
meðal stráka og ástamálin en
amma var alltaf með svörin á
reiðum höndum. Hún hafði
brennandi áhuga á tísku og
skrautmunum enda fylgdi hún
ávallt nýjustu straumum og
stefnum. Amma hafði mikinn
áhuga á alls kyns handavinnu og
er okkur nú dýrmætt að eiga
fullar skúffur af ýmist hekluðum
eða prjónuðum gersemum sem
hún hefur gefið okkur í gegnum
tíðina.
Elsku amma, við erum þess
fullvissar að það hafi verið tekið
vel á móti þér hinum megin. Við
munum ávallt hugsa til þín með
hlýju í hjarta og varðveita minn-
ingarnar um þig um ókomna tíð.
Við gleðjumst fyrir þína hönd að
þú ert nú hjá afa en kveðjum þig
með söknuði.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Halla Björg og Hólmfríður.
Björg Randversdóttir verður
mörgum minnisstæð. Einstakur
karakter, greind, skemmtileg og
sá hið skoplega á flestu. Við
kynntumst fyrst fyrir hálfri öld
og þá í gegnum eiginmenn okk-
ar. Hittumst af og til en fyrir sjö
árum fluttumst við í sama hús
við Sléttuveg. Þar endurnýjuð-
um við trygga vináttu ásamt
fólkinu á 5. hæðinni. Rómantísk
með kertin tendruð og ljósin
kveikt, alltaf tilbúin í allt; fara í
leikhús, tónleika í Hörpu, kaffi-
hús, hvað sem væri skemmtilegt
og ef það var það ekki þá gerði
hún það bara skemmtilegt. Við
Bogga og Hjördís fórum eitt-
hvað vikulega. Bara að nefna
það og hún var til eða henni datt
eitthvað frumlegt í hug. Þorlák
eiginmann sinn hafði hún misst
nokkrum árum áður og saknaði
hans mikið.
Fyrir sex mánuðum greindist
hún með krabbamein í lifur og
tók þá strax ákvörðun um að
hún vildi líknandi meðferð. Við
vissum ekki hvernig henni tæk-
ist að komast í gegnum þann
tíma sem nú tók við. Með mikilli
reisn, umvafin umhyggju barna
sinna og alls síns fólks, gerði
hún það með bravúr. „Fólkið
mitt sem er farið er hjá mér,“
sagði hún. Björg var bæði mikil
fjölskyldumanneskja sem og
mikil félagsvera. Elskaði að fara
í veislur, kaffihús og ef eitthvað
stóð til þá sagði hún: „Eigum við
ekki að gera eitthvað með
þetta?“ Við Hjördís munum
sakna hennar sem og allir sem
þekktu Björgu.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
– Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Guð blessi minningu góðrar
og skemmtilegrar konu.
Rakel Margrét Viggósdóttir.
Nú þegar ég kveð frábæra
konu, frú Björgu Randversdótt-
ur, með nokkrum fátæklegum
orðum koma upp í hugann
margar góðar minningar eftir
margra ára samfylgd.
Fyrstu kynni mín af Björgu
voru þegar ég flutti tólf ára með
foreldrum mínum í nýbyggingu í
Stóragerði. Þá kynntist ég fljót-
lega vini mínum Randver, sem
leiddi til þess að ég kom oft á
heimili hennar og Þorláks heit-
ins. Það má með sanni segja að
Björg hafi upp frá því komið að
uppeldi mínu á margan hátt og
átt þátt í að gera mig að manni.
Mig langar að minnast á
skemmtilegt atvik sem frú Björg
sagði mér frá en þó ekki fyrr en
ég var orðinn fjörutíu og fimm
ára gamall. Það var eftir frum-
sýningu á ónefndu leikriti að
hún kemur til mín og segir að
núna fyrst eftir öll þessi ár þori
hún að segja mér frá því hve
litlu hafi munað að hún hefði
bannað einkasyninum Randver
að vera með mér, eins og það er
kallað. Jú, ástæðan var nefnilega
sú að vinkona hennar hafði
hringt í hana og sagðist hafa séð
mig blindfullan fyrir framan
Breiðfirðingabúð við Skóla-
vörðustíg sem var skemmtistað-
ur í þá daga. Fólk sem þekkir til
mín veit að ég hef aldrei smakk-
að áfengi, hvorki þá né nú, svo
við hlógum mikið að þessu og
prísaði hún sig sæla að hafa ekki
látið verða af því.
Mig langar að þakka frú
Björgu fyrir góða samfylgd.
Þakka henni „uppeldið“ og
minninguna sem mun lifa með
mér alla tíð. Megi hún hvíla í
friði.
Syninum Randver og dætr-
unum Sigríði og Margréti,
tengdadóttur, tengdasonum,
barnabörnum og barnabörnum
sendum við Andrea og Daníel
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Mínir vinir fara fjöld,
feigðin þessa heimtar köld,
ég kem eftir, kannski í kvöld,
með klofinn hjálm og rifinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og
syndagjöld.
(Bólu-Hjálmar)
Páll Ragnarsson.
Mig langar með örfáum orð-
um að þakka elskulegri vinkonu
minni til yfir 75 ára samfylgdina
í vináttu öll þessi ár. Við Bogga
eins og hún var alltaf kölluð
kynntumst sem ungar stúlkur
og hefur vinátta okkar haldist æ
síðan. Bogga giftist yndislegum
manni, Þorláki Þórðarsyni, árið
1949 og eignuðust þau þrjú
börn, þau Randver, Sigríði og
Margréti Þóru. Þorlákur lést í
febrúar árið 2002 og var það
mikill missir fyrir hana og alla
fjölskylduna.
Við Bogga gengum saman í
Kvennaskólann. Mér er minn-
isstætt að hún reiddi mig æði oft
á hjólinu sínu í skólann og alltaf
var hún boðin og búin að rétta
hjálparhönd; hún vílaði ekki fyr-
ir sér að leyfa mér aðeins að
kíkja á svörin sín í prófum í
skólanum og gerðum við oft grín
að þessu. Bogga var mjög hæfi-
leikarík kona og það var eins og
allt léki í höndunum á henni og
svo var svo gaman að spjalla við
hana því hún var líka óskaplega
kómísk og voru mörg gullkornin
sem komu frá henni.
Vinahópurinn stækkaði og var
mikið skemmtilegt gert saman
og margs að minnast. Í um það
bil 45 ár vorum við sjö hjón sem
hittumst alltaf á nýárskvöld,
fyrst voru það nýársböllin á
Hótel Sögu og síðar hvert heima
hjá öðru og borðuðum saman,
sungum og dönsuðum, en eins
og lífið er þá hafa margir vin-
anna í þessum hópi kvatt þetta
líf en við munum öll hittast á ný
á öðrum stað.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég kveðja og þakka Boggu
minni vináttuna og fyrir að hafa
verið svo heppin að eiga hana
sem vinkonu sem ég mun sakna
mikið. Elsku Randver, Sigga og
Magga Þóra, við Benni sendum
ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum Guð að
styrkja ykkur og fjölskyldu ykk-
ar.
Guð blessi þig elsku vinkona
mín. Þín
Björg.
Björg H.
Randversdóttir
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
KARL EIRÍKSSON,
Ljósheimum,
áður Ártúni 17,
Selfossi,
andaðist þriðjudaginn 1. júlí.
Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna.
Valdimar R. Karlsson,
Sigurdór Karlsson, Helga R. Einarsdóttir,
Sigríður Karlsdóttir, Gunnar Jónsson,
Katrín Inga Karlsdóttir, Karl Björnsson,
Hrafnhildur Karlsdóttir, Þröstur Hafsteinsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
BIRNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR,
Ársölum 3,
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugar-
daginn 28. júní.
Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 7. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vija
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Haraldur Kristjánsson,
Kolbrún Haraldsdóttir,
Kristján Björn Haraldsson,Guðfinna Unnur Gunnarsdóttir,
Ásmundur Haraldsson,
Berglind, Birna, Brynjar, Aron Gauti, Ástrós,
Björn Henry, Björn Darri og Gunnar Alfreð.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
REYNIR ÞÓR REYNISSON,
er látinn.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Elín Thelma Róbertsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍNBORG ELÍSABET MAGNÚSDÓTTIR,
Bíbí,
sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 18. júní verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 7. júlí
kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningar- og styrktar-
sjóð Guðjóns Magnússonar og Guðrúnar Einarsdóttur.
Minningarkort fást í Blómabúðinni Burkna í Hafnarfirði.
Anna Kristín Þórðardóttir, Þórarinn Jónsson,
Valdís Þórðardóttir,
Guðjón Gunnar Þórðarson, Guðrún B. Ásgrímsdóttir,
Brynhildur Þórarinsdóttir, Þóroddur Bjarnason,
Þórður Heiðar Þórarinsson, Eyrún María Rúnarsdóttir,
Jón Sigurður Þórarinsson, Þ. Auður Ævarr Sveinsdóttir,
Kristinn Hrafn Þórarinsson, Ásta Karen Helgadóttir,
Jón Dagsson, Aðalheiður Kostantínsdóttir,
Karen Björk Guðjónsdóttir,
Elínborg Elísabet Guðjónsd.,Júlíus Ágúst Jóhannesson
og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdadóttir,
amma og dóttir,
KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR
kennari,
Grænagarði 5, Keflavík,
áður til heimilis í Bolungavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
aðfaranótt mánudagsins 30. júní.
Kveðjuathöfn verður frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 4. júlí kl. 13.00.
Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungavík
laugardaginn 12. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Benedikt Kristjánsson,
Ragnhildur Helga Benediktsdóttir,Hagbarður Marinósson,
Kristján Heiðberg Benediktsson, Ásdís Viggósdóttir,
Aron Ívar Benediktsson,
Helga Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar