Morgunblaðið - 03.07.2014, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir fagnar 22 ára afmæli í dag, enhún er nýútskrifuð með BA-próf frá Háskóla Íslands í lög-fræði. Auður er fyrrverandi liðsmaður í liði Reykjavíkur í Út-
svari og þjálfari Menntaskólans í Hamrahlíð í Gettu betur. Hún er nú
stödd í Búdapest þar sem hún mun eyða deginum. „Þegar MH sigraði
í Gettu betur í ár þá fengum við ferð til útlanda í sigurlaun og hérna
er ég með liðinu,“ segir hún. Nóg var um sigra á árinu hjá Auði, en
auk sigurs Gettu betur-liðsins sigraði hún ásamt Reykjavík í Útsvari.
„Þetta voru þrjú ár sem enduðu með sigri hjá okkur og okkur fannst
það mjög fínn skammtur,“ segir hún um reynsluna í Útsvari. Aðspurð
segir Auður ýmislegt spennandi vera framundan, „Ég ætla að halda
áfram að hlaupa á Íslandi í sumar. Svo mun ég halda æfingabúðir fyr-
ir stelpur sem hafa áhuga á Gettu betur í ágúst í flottum kvenna-
hópi.“ Jafnframt mun hún flytjast búferlum í haust og halda til Belg-
íu þar sem hún mun leggja fyrir sig mastersnám í lögfræði.
Að eigin sögn er Auður mikið afmælisbarn og segir afmælishefðir
ríkar í fjölskyldunni. „Í fjölskyldunni minni er hefð að færa þeim sem
á afmæli morgunmat í rúmið og sitja saman og borða bakkelsi og
jarðarber. Það er alltaf yndislegt og því miður missi ég af því í ár,“
segir hún, en hefur þó ekki áhyggjur af því að geta notið dagsins í
hópi sigurliðs síns. if@mbl.is
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir 22 ára í dag
Afmælisbarn Auður mun eyða deginum í Búdapest með sigurliði MH í
Gettu betur, en hún þjálfaði liðið sem fékk ferð til útlanda í sigurlaun.
Í sigurferð í Búda-
pest á afmælinu
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
R
agnheiður Dögg Agn-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 3. júlí 1974
og ólst þar upp til sex
ára aldurs. Hún flutti
þá í Kópavog og hóf skólagöngu í
Kópavogsskóla. Hún flutti síðan sjö
ára til Ísafjarðar með móður og stjúp-
föður og bjó þar til 17 ára aldurs.
Æfði fótbolta og skíði á Ísafirði
Ragnheiður byrjaði snemma að
stunda íþróttir af miklum móð og að-
allega fótbolta og skíði á Ísafirði. Hún
var valin í unglingalandslið Íslands
U-16 í knattspyrnu 1990 og sama ár
valin knattspyrnukona Ísafjarðar.
Hún stundaði kornettleik við Tónlist-
askólann á Ísafirði frá 8-14 ára aldurs
og spilaði með lúðrasveit tónlistar-
skólans. Ragnheiður hóf framhalds-
skólanám í Menntaskólanum á Ísa-
firði en flutti svo til Reykjavíkur 17
ára og hóf nám við Menntaskólann í
Reykjavík og varð stúdent þaðan
1994. Hún var í Íþróttaráði MR.
Ragnheiður Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá TM – 40 ára
Sveitasæla Óliver, Ragnheiður og Auður í Skjaldarvík við Akureyri sumarið 2013.
Nýtur þess að takast á
við fjölbreyttar áskoranir
Reffileg Fjölskyldan á skíðum í Austurríki í febrúar síðastliðnum.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta
Bifreiða-
verkstæði Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða