Morgunblaðið - 03.07.2014, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Brandur Gíslason
Skúðgarðyrkjumeistari
Sími 571 2000
Myndlistarmaðurinn Bjarni Þór
opnar sýningu í Akranesvita í dag
kl. 17. Á fyrstu hæð sýnir hann
vatnslitamyndir sem tengjast Haf-
meyjarslysinu í september árið
1905 þegar ellefu ungmenni
drukknuðu og er það mannskæð-
asta sjóslys í sögu Akraness. Á ann-
arri hæð sýnir hann akrílmálverk
sem tengjast hafinu. Karlakórinn
Fjallabræður mun syngja í vitanum
í kvöld kl. 19.30.
Sýningin stendur út mánuðinn og
er opin alla daga kl. 13-16.
Verk í vita
tengd hafinu
Hafið Eitt verka Bjarna Þórs á sýn-
ingu hans sem opnuð verður ı́ dag.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Raftónlistarbandið Worm is Green
gefur á sunnudaginn út sína fjórðu
plötu en um er að ræða breiðskífuna
To Them We Are Only Shadows.
Forsprakki sveitarinnar, Árni Teit-
ur Ásgeirsson, segir plötuna tals-
vert frábrugðna því sem hefur áður
heyrst frá bandinu.
„Á fyrstu plötunni var til að
mynda lítið sungið en á þessari er
sungið í öllum lögum. Tónlistin hef-
ur ef til vill þróast yfir í aðeins
poppaðri stíl án þess þó að missa
rafgildið,“ segir hann. Þrátt fyrir
drungalegan titil plötunnar segir
Árni Teitur yfirbragðið á henni vera
nokkuð létt.
„Síðasta plata, sem bar einmitt
titilinn Glow, var heldur dimmari.
Það eru því svona ákveðnar and-
stæður í þessu. Ég myndi segja að
nýjasta platan væri okkar popp-
aðasta til þessa,“ segir hann.
Bristol-áhrifa gætir
Sveitin var stofnuð árið 2002 en
fyrsta breiðskífa hennar, Auto-
magic, kom einmitt út sama ár. Árni
Teitur segir áhrifin koma úr mörg-
um áttum þegar blaðamaður líkir
tónlist sveitarinnar við Bristol-
senuna svokölluðu.
„Maður sogar bara allt í sig og
byrjar síðan að skapa. Portishead,
ásamt allri Bristol-senunni, er nátt-
úrlega hljómsveit sem allir sem hafa
áhuga á þessari gerð af tónlist
hlusta á,“ segir hann og nefnir þar
Massive Attack og Tricky máli sínu
til stuðnings. Árni Teitur segir
sveitina hafa breyst talsvert frá því
hún steig fyrst fram á sjónarsviðið
og að tölvan hafi að stórum hluta
tekið yfir hljóðfæraleik.
„Í upphafi vorum við með lifandi
trommuleik, bassa og þess háttar.
Núna vinn ég eiginlega lögin bara
einn og sendi á söngkonu sveit-
arinnar, Guðríði Ringsted, og hún
tekur upp sönginn og sendir mér til
baka,“ segir hann en þess má geta
að aðrir meðlimir sveitarinnar eru
þeir Bjarni Þór Hannesson og Þor-
steinn Hannesson.
Útgáfufyrirtæki frá Japan
To Them We Are Only Shadows
verður eingöngu gefin út á rafrænu
formi en Árni Teitur segir reynsl-
una af því vera einkar góða en sama
snið var á þriðju plötunni, Glow.
„Við vildum sjá um þetta sjálf.
Það er nóg að gera alls staðar og við
höfum eiginlega bara ekki tíma eða
afl til þess að fylgja geisladiski eftir
í dreifingu. Það kom reyndar út-
gáfufyrirtæki frá Japan að Glow eft-
ir að við höfðum gefið hana út raf-
rænt og gerði disk í kjölfarið,“ segir
hann en hægt verður að nálgast
plötuna á öllum helstu rafmiðlum.
Árni Teitur fluttist til Noregs fyrir
ári og segir það geta verið ströggl
að hóa allri sveitinni saman.
„Í dag eru allir komnir með fjöl-
skyldu og fasta vinnu. Við erum
náttúrlega orðin aðeins eldri en þeg-
ar við byrjuðum, tíminn líður víst.
Við spilum sjaldnar en reynum að
gera það við sérstök tækifæri. Við
fórum til að mynda í tónleika-
ferðalag til Kína fyrir ári. Okkur
finnst hinsvegar gaman að gefa út
plötur og höldum því örugglega
áfram að eilífu,“ segir hann.
Spilað út um allan heim
Sveitin hefur leikið víða um lönd
og meðal annars drepið niður fæti í
Austur-Evrópu, Ameríku og Asíu og
segir Árni Teitur sveitina hafa spil-
að jafnmikið erlendis og á Íslandi, ef
ekki meira.
„Við höfum spilað frekar víða, fór-
um meðal annars í þrjár tónleika-
ferðir til Bandaríkjanna á sínum
tíma. Síðan höfum við til að mynda
spilað í Eistlandi, Póllandi, Tékk-
landi og Danmörku,“ segir hann.
„Söngkona sveitarinnar er ófrísk
og á að eiga núna í haust þannig að
það verður kannski ekki mikið tón-
leikahald í beinu framhaldi af plöt-
unni,“ segir Árni Teitur að lokum.
Hljómlistin er
eilífðarverkefni
Sveitin Worm is Green gefur út sína fjórðu breiðskífu
Raftónlist Árni Teitur, forsprakki Worm is Green, segir plötuna To Them
We Are Only Shadows vera poppaðri en fyrri plötur sveitarinnar.
Áður en flóðið kemur geristí Bangladess. Bókinskiptist í sögur nokkurrapersóna sem fléttast svo
saman. Aðalpersónurnar eru Sofía
og Janne, sænsk hjón með tvö ung
börn sem flytja til Bangladess því
að Sofía fékk starf sem yfirmaður
þróunaraðstoðar í sænska sendi-
ráðinu í Dhaka. Sofía er full metn-
aðar og ein af þeim sem vilja bjarga
heiminum eða
a.m.k. ástandinu í
Bangladess. En
það reynist örð-
ugra en hún von-
aðist til. Sænski
sendiherrann, yf-
irmaður hennar,
er einn af þeim
sem standa í veg-
inum; metnaðar-
laus maður sem
vill bara hafa það þægilegt og forð-
ast allt sem krefst einhvers af hon-
um í starfi.
Önnur saga segir frá systrunum
Nazrin og Minu sem búa með for-
eldrum sínum í mikilli fátækt í
þorpi úti á landi. Þær sjá framtíð
sína ekki í fögru ljósi en faðir
þeirra vill gifta þær óhrjálegum
mönnum. Þær taka þá ákvörðun að
flýja til Dhaka og reyna að hefja
nýtt líf í stórborginni. Hæfileikar og
útsjónarsemi Minu nýtast þar vel í
viðskiptum og Nazrin heillast af
vestrænum heimi þegar hún vinnur
á hóteli og síðar sem barnfóstra hjá
vestrænni fjölskyldu. Líf þeirra er
þó allt annað en auðvelt í borginni
þar sem karlaveldið er mikið.
Í gegnum líf Sofíu og Janne og
Nazrin og Minu kynnist lesandinn
undarlegum heimi diplómata í
bláfátæku landi. Það er einnig gefin
góð sýn inn í líf innfæddra, hefðir
og siði, heim þar sem allt snýst um
að lifa af. Fataverksmiðjurnar
frægu í Bangladess koma líka við
sögu þar sem bláfátækar konur og
börn vinna við ömurlegar aðstæður
við að sauma tískuflíkur á vestræn-
ar þjóðir.
Þetta er fyrsta bók Thorfinn og
tekst henni mjög vel upp. Hún kaf-
ar djúpt ofan í málin og lýsir að-
stæðum sérstaklega vel svo lesanda
finnst hann vera staddur í hitanum
í Bangladess. Þetta er bók sem fær
mann til að hugsa um misskiptingu
og hvað það virðist vera erfitt að
koma í veg fyrir hana í heiminum.
Helsti gallinn er að það er
kannski allt svolítið mikið eins og
það á að vera í þessari bók, ef svo
má segja, um græðgi Vesturlanda-
búa og misnotkun þeirra á aðstæð-
um fólks í fátækum löndum. Þá er
sagan endaslepp, eins og höfund-
urinn hafi átt erfitt með að hætta.
Þrátt fyrir það ætti Áður en flóðið
kemur að vera skyldulesning fyrir
alla sem vilja lesa góða sögu um
leið og þeir víkka sjóndeildarhring-
inn og láta sig dreyma um betri
heim.
Höfundurinn Helena Thorfinn með ónefndum vinkonum í Bangladess.
Misskiptingu
heimsins gerð skil
Skáldsaga
Áður en flóðið kemur bbbmn
Eftir Helenu Thorfinn.
Þýðing: Elín Guðmundsdóttir.
Urður, bókafélag 2014.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR