Morgunblaðið - 03.07.2014, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Kór Christianskirkjunnar í Klakks-
vík í Færeyjum flytur færeyska
sálma og sönglög á tónleikum í
Norðurljósasal Hörpu í kvöld kl. 19.
Kórinn mun einnig flytja tónlist frá
öðrum löndum, m.a. íslenska sálma
og verk úr smiðju J.S. Bachs, þeirra
á meðal „Nun ruhet all Walder“
með færeyskum texta.
Jóhanna Johannessen, organisti
Christianskirkjunnar, stjórnar
kórnum með eiginmanni sínum,
Ólavi F. Johannessen, og eru tón-
leikarnir í Hörpu liður í tónleika-
ferð kórsins um Ísland. Liður í
henni er söngur kórsins við messu í
Hallgrímskirkju á sunnudaginn, 6.
júlí, kl. 11.
Kórinn Christianskirkjan í Klakksvík er stærsta kirkja Færeyja.
Kór Christianskirkjunnar syngur í Hörpu
Kristjana Stefánsdóttir og Svavar
Knútur halda tónleika á Sögulofti
Landnámsseturs í Borgarnesi í
kvöld kl. 20.30 og er setrið fyrsti
viðkomustaður þeirra í tónleika-
ferðalagi um landið. Á tónleikunum
munu þau flytja stórskemmtilega
og fallega dúettadagskrá, pipraða
með glettni, húmor og kæti, eins og
þau orða það, allt frá Abba til Páls
Ísólfssonar, auk frumsaminna laga.
Glettin Kristjana og Svavar slá á
létta strengi á tónleikum sínum.
Dúettadagskrá
með kæti
Tónlistarhátíðin á Hróarskeldu í
Danmörku hófst 29. júní og lýkur 6.
júlí. Þótt tónlistin sé í öndvegi þá er
engin hátíðin án gesta og á ljós-
myndaveitu AFP má finna margar
skemmtilegar myndir af skraut-
legum hátíðargestum, eins og sjá
má af meðfylgjandi myndum. Á
Hróarskeldu er dansað og drukkið
og ástin blómstrar, hvort sem er í
sól og blíðu eða hellidembu. Það er
vissara að hafa með sér bæði sól-
arvörn og stígvél.
Hróarskelduhátíðin er þekktasta
og umfangsmesta tónlistar- og
menningarhátíð Norður-Evrópu og
þar troða upp heimskunnir tónlist-
armenn og hljómsveitir. Í ár eru að-
alhljómsveitir og -tónlistarmenn
hátíðarinnar Rolling Stones, Arctic
Monkeys, Damon Albarn, Drake,
Major Lazer, Outkast, Stevie Wond-
er og Trentemöller. Af öðrum má
svo nefna Deerhunter, Diplo, Int-
erpol, Kasabian, Lykke Li og
Zombie. Hróarskelduhátíðin hefur
verið haldin frá árinu 1971 og um
50 manns eru í fullu starfi við
skipulag hennar. Þá sinna þúsundir
sjálfboðaliða ýmsum störfum á há-
tíðinni, m.a. öryggisgæslu.
AFP
Fjör Þessir hátíðargestir tóku nokkur vel valin spor í dansteiti í fyrradag.
Dansað,
drukkið og
elskað
Kraðak Beðið eftir opnun tjaldsvæðis Hróarskelduhátíðarinnar 29. júní.
Lói Kóngulóarmaðurinn stígvél-
aður að spjalla í farsímann sinn.
Turtildúfur Ástin blómstrar í danskri sumarsælu á Hróarskeldu.
TILBOÐ
KR. 169.9
00,- M/vsk.
MILWAUKEE H0GGBORVÉL M12 BPD-402C
Mesta átak 38 Nm.
Vinnuhraðar:
0-400/0-1500 Sn/mín.
Patróna: 10mm.
Höggtíðni: 22.500 mín.
Fylgir: 2 x M12 4.0 Ah
REDLithium rafhlöður,
Hleðslutæki, handfang,
beltishanki og taska.
MW 4933 4419 35
TILBOÐ
KR. 36.900,- M/vsk.
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
MILWAUKEE MONSTERSETT M18 PP6D-402B
HD18 PD – Höggborvél, HD18 SX – Sverðsög,
HD18 CS – Hjólsög, HD18 JS – Stingsög,
C18 ID – Höggskrúfvél, C18 WL – Vinnuljós,
2 x M18 4,0 Ah Red Li-Ion Rafhlöður, C18 C hleðslutæki,
Verkfærataska. MW 4933 4474 00
Aukablað alla
þriðjudaga