Morgunblaðið - 03.07.2014, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Sýningin Urban Space/Borgar-
landslag verður opnuð í dag í Spark
Design Space, Klapparstíg 33 í
Reykjavík. Á sýningunni gefur að
líta 50 kort af höfuðborgum Evrópu
sem arkitektinn Paolo Gian-
francesco hefur útfært og byggð
eru á gögnum úr Open Street Map
sem er opið samstarfsverkefni á
netinu og á uppruna sinn í hug-
mynd um að útbúa lifandi kort af
heiminum sem notandinn getur
breytt sjálfur, eins og segir í til-
kynningu. Paolo hefur um árabil
verið virkur þátttakandi í því verk-
efni.
„Í þeirri röð borgarkorta sem hér
er sýnd eru allar höfuðborgir Evr-
ópu. Markmiðið er að sýna hefð-
bundna kortagerð í nýju ljósi með
því að einblína á samskiptaleiðir
borga. Hver borg hefur sinn eigin
takt, sitt eigið jafnvægi, ósýnilegt
samspil tómarúms og bygginga.
Gögnin að baki kortunum eru ein-
földuð til að sýna kjarna borgar-
umhverfisins. Margar höfuðborg-
anna fá form sitt frá náttúrulegum
fyrirbærum eins og vatnsföllum eða
fjöllum, eða strandlengju; aðrar eru
mótaðar af hernaðarlegum for-
sendum. Kortin sýna raunverulega
stöðu kortagerðarinnar. Líkt og
hefðbundin kort setja þau fram sýn
á raunveruleikann, en ekki raun-
veruleikann sjálfan. Borgirnar eru í
stöðugri þróun, líkt og kortin á net-
inu er borgarveruleikinn háður
breytingum af manna völdum á
hverjum degi,“ segir um sýninguna.
Borgarkortin verða til sölu í tak-
mörkuðu upplagi á sýningunni, í
stærðinni 96 x 66 cm, og fer litavalið
eftir Pantone-litakerfinu og raðað
eftir mannfjölda.
Spark er opið á virkum dögum kl.
10-18 og á laugardögum kl. 12-16.
Heimasíða Spark Design Space er
með vefslóðina sparkdesignspace.-
com.
Reykjavík Kort arkitektsins Paolos
Gianfrancescos af Reykjavík.
Sýnir 50 kort af höf-
uðborgum Evrópu
Ekta lostæti er yfirskrift sýningar
Listasafns Íslands á úrvali bras-
ilískra myndbandsverka sem opnuð
verður í dag kl. 17 á kaffihúsi safns-
ins á efstu hæð. Sýningin er hluti af
sýningaröð safnsins á vídeóverkum
sem haldin er í samvinnu við mynd-
banda- og tilraunahátíðina 700IS
Hreindýraland og fara sýningar
fram fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar til ársloka. Sýningarstjóri er
Kika Nicolela en hún á jafnramt
eitt verkanna á sýningunni.
Verkin sem sýnd eru að þessu
sinni eru eftir brasilísku listamenn-
ina Dellani Lima, Sara Não Tem
Nome, Ana Teixeira & Kika Nico-
lela, Lucas Bambozzi, Andrea Vel-
loso, Angella Conte, Leonardo Mou-
ramateus og Arthur Tuoto.
„Yfirlit yfir hið handahófs-
kennda, landslagið og daglega lífið.
Smávægilegt átak, hárfínar tilfær-
ingar. Ljóðrænan í hinu veraldlega.
Áhrifamáttur fínleikans. Hin við-
kvæma mynd. Samsafn nýlegra víd-
eóverka frá Brasilíu. Listamenn-
irnir draga fram myndir úr
raunveruleikanum, án þess að
hengja sig í ákveðnum tegundum –
heimilda-, tilrauna- eða leiknum
myndum – og flétta saman við per-
sónulegri ljóðrænu úr eigin um-
hverfi, en skáskjóta sér um leið
undan tæknilegri tilgerð og yfir-
borðslegum sýndarbrellum,“ segir
um vídeóverkin í tilkynningu. Sýn-
ingin stendur til 31. júlí.
Ekta lostæti á kaffistofu listasafnsins
Blásið Stilla úr vídeóverki Önu Teixeira og Kiku Nicolela, Ainda.
Myndlistar- og tónlistarkonan
Berglind Ágústsdóttir heldur tón-
leika í kvöld kl. 21 í menningar-
húsinu Mengi, Óðinsgötu 2 í
Reykjavík. Berglind gaf út fyrstu
plötu sína, fiskur nr.1, hjá Smekk-
leysu árið 1997 og hefur upp frá
því gefið út margar plötur, bæði
ein og sem gestasöngkona hjá
ýmsum hljómsveitum. Berglind
flytur tilraunapopp og gerir einn-
ig tilraunatónlist án söngs undir
merkinu Dream Lovers. Árið 2013
gaf hún út plötuna i am you girl
og tilraunasnælduna Dream Lo-
vers 2 og mun hún flytja lög af
þeim og nýtt óflutt efni ef stemn-
ing leyfir.
Í Mengi Berglind Ágústsdóttir er til-
raunagjörn myndlistar- og tónlistarkona.
Frumflytur lög ef
stemning leyfir
Age of Extinction hefst fjórum árum eftir
atburðina og uppgjörið í síðustu mynd, Dark
of the Moon. Mark Wahlberg fer með hlutverk
einstæðs föður sem dag einn kaupir gamlan
trukk eða sjálfan Optimus Prime.
Metacritic 32/100
IMDB 6.4/10
Sambíóin Álfabakka 17:00 (VIP), 17:00 3D, 18:30 3D, 20:30
3D, 20:30 (VIP), 22:10 3D, 22:20
Smárabíó 16:00, 17:00 3D (LÚX), 20:00 3D, 21:00 3D (LÚX),
22:10 3D
Laugarásbíó 16:00 3D, 19:00 3D, 22:10 3D (POW)
Sambíóin Kringlunni 17:50 3D, 21:10 3D, 22:10 3D
Samb. Egilshöll 16:40, 18:30 3D, 20:00 3D, 21:00, 22:00 3D
Sambíóin Keflavík 19:00 3D, 22:15 3D,
Sambíóin Akureyri 17:00 3D, 20:30 3D, 22:20
Transformers:
Age of Extinction Sögumaður segir frá sögu
valdamikillar álfkonu sem
lifir í mýri skammt frá
landamærum konungsríkis
manna.
Metacritic 56/100
IMDB 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 17:50,
20:00, 22:20
Sambíóin Kringlunni 17:50,
20:00
Sambíóin Egilshöll 18:50,
20:00
Sambíóin Akureyri 17:50
Maleficent Hermaður ferðast um
tíma og rúm í stríði við
geimverur.
Mbl. bbbbn
Metacritic 71/100
IMDB 8,2/10
Sambíóin Egilshöll 22:10
Sambíóin Álfabakka
20:00
Sambíóin Akureyri 20:00
Edge of Tomorrow 12
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
The Salvation 16
The Salvation er vestri með
Mads Mikkelsen, sem sló
síðast rækilega í gegn hér-
lendis í kvikmyndinni Jagten,
og Evu Green í aðal-
hlutverkum. Myndin þykir
sverja sig í ætt við hefð-
bundna vestrahefð - með
svolítið skandinavískum
snúningi.
Metacritic 60/100
IMDB 7.5/10
Smárabíó 20:00, 22:40
Háskólabíó 17:50, 20:00,
22:10
Borgarbíó Akureyri 20:00,
22:10
Töfralandið Oz Metacritic 25/100
IMDB 6.7/10
Smárabíó 15:30
22 Jump Street Eftir að hafa þraukað tvisvar
sinnum í gegnum mennta-
skóla bregða lögregluþjón-
arnir Schmidt og Jenko sér í
dulargervi í háskóla.
Mbl. bbbmn
Metacritic 71/100
IMDB 8,0/10
Sambíóin Keflavík
Laugarásbíó 20:00
Smárabíó 17:30, 20:00,
22:30
Háskólabíó 22:15
Borgarbíó Akureyri 20:00.
22:10
Að temja
dreka sinn 2 Þegar Hiksti og Tannlaus
uppgötva íshelli sem hýsir
hundruð villtra dreka ásamt
dularfullri persónu finna þeir
sig í miðri baráttu um að
vernda friðinn.
Mbl. bbbnn
Metacritic 77/100
IMDB 8,6/10
Sambíóin Egilshöll 16:40
Sambíón Keflavík 20:00
Laugarásbíó 16:30
Smárabíó 15:30, 15:30 3D,
17:45, 17:45 3D
Háskólabíó 17:45
Borgarbíó Akureyri 17:40
Vonarstræti 12
Mbl. bbbbm
IMDB 8,5/10
Laugarásbíó 17:00, 20:00
Smárabíó 20:00
Háskólabíó 17:20, 20:00
X-Men: Days of
Future Past 12
Metacritic 74/100
IMDB 8.4/10
Háskólabíó 22:40 3D
Brick Mansions 16
Lögreglumaður í dulargervi í
Detroit-borg ferðast með
hjálp fyrrverandi fanga um
hættulegt hverfi sem er um-
lukið vegg.
Metacritic 40/100
IMDB 6,0/100
Laugarásbíó 22:40
The fault in our stars
Mbl. bbbnn
Metacritic 69/100
IMDB 8.4/10
Háskólabíó 17:20, 20:00,
22:40
Make Your Move Tveir dansarar í New York
finna sig í miðri hringiðu
deilna á milli aðila í neð-
anjarðardansklúbbi.
Metacritic 40/100
IMDB5,6/10
Sambíóin Kringlunni 17:40,
20:00
Jónsi og
Riddarareglan Mbl. bbnnn
IMDB 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 17:50
Godzilla 12
Frægasta skrímsli jarð-
arinnar lendir í átökum við
áður óþekktar verur sem
ógna tilvist manna á jörð-
inni.
Mbl. bbbmn
Metacritic 62/100
IMDB 7,2/10
Sambíóin Kringlunni 22:20
Blended Eftir að hafa farið á slæmt
stefnumót lenda Jim og
Lauren í því að vera föst
saman á hóteli með fjöl-
skyldum sínum.
Metacritic 31/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Egilshöll 17:30
Sambíóin Álfabakka 17:30,
20:00, 22:30
A Million Ways to
Die in the West 16
Mbl. bbmnn
Metacritic 45/100
IMDB 6,3/10
Laugarásbíó 22:20
Harry&Heimir Þokkadísin Díana Klein leitar
ásjár hjá einkaspæjurunum
Harrý og Heimi þar sem fað-
ir hennar virðist hafa horfið
sporlaust.
Mbl. bbbmn
IMDB 7,6/10
Bíó Paradís 18:00, 20:00
Short Term 12 12
Mbl. bbbnn
Metacritic 82/100
IMDB 8,1/10
Bíó Paradís 18:00, 22:10
Monica Z Monica Z fjallar um ævi
djass-söngkonunnar Monicu
Zetterlund sem lést í elds-
voða á heimili sínu í Stokk-
hólmi fyrir átta árum.
Mbl. bbbbn
IMDB 7,1/10
Bíó Paradís 20:00, 22:00
Kvikmyndir
bíóhúsanna