Morgunblaðið - 03.07.2014, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014
Aðstandendur tónlistarhátíð-
arinnar All Tomorrow’s Parties
hafa nú birt lista yfir þær kvik-
myndir og bækur sem mælt er
með að hátíðargestir kynni sér.
Valið á kvikmyndunum var í hönd-
um hljómsveitarinnar Portishead
og um val bóka sá hljómsveitin
HAM. Báðar munu þær leika á há-
tíðinni sem fer fram 10.-12. júlí á
Ásbrú í Keflavík. Kvikmyndirnar
verða sýndar á hátíðinni.
Kvikmyndirnar sem Portishead
valdi eru eftirfarandi (fram-
leiðsluár og nafn leikstjóra í
sviga):
All Is Lost (2013, J.C.
Chandor)
Badlands (1973, Terence
Mallick)
Crazy Love (1987, Dominique
Deruddere)
Djúpið (2012, Baltasar
Kormákur)
The Future (2011,
Miranda July)
Happiness (1998, Todd Solondz)
The Hunt (2012, Thomas Vinter-
berg)
Me and You and Everyone We
Know (2005, Miranda July)
Rollerball (1975, Norman
Jewison)
Soylent Green (1973, Richard
Fleischer)
Troll Hunter (2010, André
Øvredal)
Valhalla Rising (2009, Nicolas
Winding Refn)
Wilbur Wants to Kill Himself
(2002, Lone Scherfig)
Bækurnar sem HAM mælir með,
titill og nafn höfundar:
Miami Purity –
Vicki Hendricks
Men and Gods in Mongolia –
Henning Haslund
Extreme Metaphors: Collected
Interviews with J.G. Ballard
Gentlemen of Bacongo – Dani-
ele Tamagni
The Travels of Reverend Ólaf-
ur Egilsson: Captured by Pirates
in 1627/ Reisubók séra Ólafs
Egilssonar
The Palm Wine Drinkard –
Amos Tutuola.
Dagskrá ATP liggur einnig
fyrir, hvaða hljómsveitir leika
hvenær og hvar, og má finna
hana á vef hátíðarinnar, atpfesti-
val.com.
Djúpið Kvikmynd Baltasars Kormáks er ein þeirra sem enska hljómsveitin
Portishead mælir með að gestir All Tomorrow’s Parties sjái.
Djúpið á lista
Portishead
Kvikmynda- og bókalisti ATP
Sýningin Látbragð Tákn List verð-
ur opnuð í dag kl. 17 í aðalsafni
Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
Á sýningunni er tvenns konar
menning leidd saman, döff menn-
ing, þ.e. menning heyrnarlausra, og
heyrandi menning og sýning-
arstjórar eru Wolfgang Müller og
An Paenhuysen. Listamennirnir
Christine Sun Kim, Thomas Benno
Mader og Magnús Pálsson verða
viðstaddir opnunina og kl. 17.30
mun Nýlókórinn, íslenski hljóðljóð-
akórinn, flytja hljóðaljóðið „UHM –
YEAH!ZOOM“ eftir Hörð Braga-
son.
Í tilkynningu segir að sýningin sé
líklega sú fyrsta sem leiði saman
verk sem brúi bilið milli döff og
heyrandi menningar. Listamenn-
irnir vinni með tungumálið, bæði
skrifað, talað og táknað, og tjáskipti
á nýstárlegan hátt.
Sýningarstjórarnir völdu Möbius-
arræmuna, eftir stærðfræðinginum
A.F. Möbius, sem tákn sýning-
arinnar.
„Hún er einhliða flötur búinn til
úr rétthyrningi með því að snúa
öðrum enda hans hálfan snúning og
líma við hinn endann. Möbius-
arræman ögrar skynjun okkar: það
er ekki unnt að festa hendur á
henni, við getum því ekki sagt til
um hvað er uppi og niðri eða inni og
úti,“ segir í tilkynningu.
Listamennirnir sem verk eiga á
sýningunni eru Die Tödliche Doris,
Christine Sun Kim, Flying Words
Project, Joseph Grigely, Hörður
Bragason og Nýlókórinn, íslenski
hljóðljóðakórinn, Thomas Benno
Mader, Wolfgang Müller, Magnús
Pálsson, Roman Signer, Barbara
Stauss, Gunter Trube og Ming
Wong.
Sýningin stendur til 20. júlí og er
opin á opnunartíma safnsins.
Unnið með tjáskipti á nýstárlegan hátt
Látbragð Ming Wong er einn þeirra
listamanna sem verk eiga á sýning-
unni Látbragð Tákn List.
Ný lög tóku gildi í Rússlandi í
fyrradag sem banna með öllu notk-
un ákveðinna blótsyrða í rússnesk-
um listum og samfélagsmiðlum,
m.a. kvikmyndum og leikritum.
Munu lögin hafa verið sett í þeim
tilgangi að styrkja rússnesk gildi
og gerist menn brotlegir geta þeir
átt von á sektum allt frá jafnvirði
8.000 króna upp í um 160 þúsund
krónur, að því er fram kemur á vef
dagblaðsins Guardian, allt eftir því
hvort um einstakling er að ræða,
opinberan starfsmann eða samtök.
Í frétt Guardian kemur fram að
með þessu vilji löggjafinn hreinsa
rússnesku af ljótum orðum og varð-
veita fegurð tungumálsins.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
skrifaði í byrjun maí undir frum-
varp að lögunum og þykja þau end-
uróma fyrri tíð þegar kommúnista-
flokkurinn í Sovétríkjunum krafði
listamenn og rithöfunda um að
forðast „úrkynjaða“ vestræna tísku
og orðfæri.
AFP
Bannað Pútín vill útrýma blótsyrðum.
Blótsyrði bönnuð í
rússneskri list
Emil Ólafsson sjávarlíffræðingur
opnar í dag kl. 17 sýningu á portett-
myndum í Gallerí Bakaríi, Skóla-
vörðustíg 40. Emil fjallar í myndum
sínum um þrá og hamingju, höfnun
og sorg; um það hvernig sálar-
ástand manneskjunnar kemur fram
í ytra byrði hennar – andliti og lík-
ama, að því er fram kemur í til-
kynningu. Hann sýnir teikningar
unnar með pastelkrít og kolum og
eru þær stúdíur um liti, persónur
og náin sambönd. „Emil kveðst í
senn maður bjartsýni og svartsýni –
það sjáist í myndum hans. Margar
þeirra sýni fólk sem geislar af þrátt
fyrir það sem lífið og ástin hafi fært
því,“ segir í tilkynningu. Sýningin
stendur til 20. júlí og er opin kl. 12-
17 virka daga og kl. 14-16 á laug-
ardögum.
Stúdía Eitt af verkum Emils Ólafssonar.
Þrá, hamingja,
höfnun og sorg
L
16
12
12
12
★ ★ ★ ★ ★
„Besta íslenska
kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
Fréttablaðið
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND
MEÐ PAUL WALKER
ÍSL.
TAL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
TRANSFORMERS 4 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10:10(P)
BRICK MANSIONS Sýnd kl. 10:40
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 4:30
22 JUMP STREET Sýnd kl. 8
MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:20
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5 - 8 14"Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!"-T.V., Biovefurinn.is
"Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!"
-Guardian