Morgunblaðið - 10.07.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2014
Hann segir arnarstofninn ekki hafa
mælst stærri í 100 ár, en öld er liðin
frá því að örninn var friðaður árið
1914.
Hann tekur fram að ekki sé búið að
heimsækja hreiður svo tölur um
varpárangur gætu breyst lítillega.
„Arnarungar verða ekki fleygir
fyrr en í ágúst og ekki er búið að
heimsækja hreiður til ungamerkinga,
svo endanlegar tölur um varpárangur
gætu breyst lítillega,“ segir Kristinn.
Bannað að eitra fyrir refi 1964
Kristinn segir að um aldamótin
1900 hafi örnum tekið að fækka mikið
vegna ofsókna og eiturútburðar.
„Örninn var í bráðri útrýmingar-
hættu um miðja síðustu öld. Upp úr
1960 voru hér aðeins 20 pör og kom
um og innan við helmingur þeirra upp
ungum þegar best lét. Bannað var að
eitra fyrir refi árið 1964 og fljótlega
fór örnum að fjölga og hefur stofninn
vaxið hægt og bítandi allar götur síð-
an,“ segir Kristinn.
Minna um að varp sé skemmt
Kristinn segir engar óyggjandi
fregnir hafa borist af því að arnar-
varpi hafi verið spillt vísvitandi í ár.
„Við vitum um a.m.k. eitt tilvik þar
sem varp misfórst á svæði þar sem
ernir urðu fyrir truflun af völdum
manna sem sýndu ekki nægja að-
gæslu. Slíkum tilvikum hefur farið
mjög fækkandi á undanförnum árum
og skal bændum og öðrum landeig-
endum sérstaklega hrósað fyrir um-
gengni við þennan viðkvæma fugl,“
segir Kristinn.
Fleiri arnarpör koma ungum á legg
Stofninn hefur ekki mælst eins stór
frá árinu 1914, þegar hann var friðaður
Ljósmynd/Daníel Bergmann
Arnaróðul Talin hafa verið 73 arnaróðul og 38 arnarungar á þessu ári.
VIÐTAL
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Staða arnarstofnsins og varpárangur
er með besta móti í ár að sögn Krist-
ins Hauks Skarphéðinssonar, fugla-
fræðings hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands.
„Arnaróðul í ábúð eru nú talin 73,
þar af urpu 48 pör og 31 þeirra er nú
með alls 38 unga. Varpútbreiðslan
nær frá sunnanverðum Faxaflóa í
Húnaflóa en fram yfir aldamótin 1900
urpu ernir í öllum landshlutum. Fleiri
pör hafa nú komið ungum á legg en
nokkru sinni frá því farið var að fylgj-
ast reglulega með stofninum árið
1959. Þá hafa aðeins einu sinni áður
orpið jafnmörg pör og það sama er að
segja um fjölda stálpaðra unga í
hreiðrum,“ segir Kristinn.
Unnið var að því í gær að tryggja öryggi á vett-
vangi eldsvoðans sem varð í Skeifunni 11 í
Reykjavík síðastliðið sunnudagskvöld.
Voru bitar úr strengjasteypu, sem héngu í
þaki hússins, rifnir niður og fjarlægðir en til
verksins voru fengnar stórvirkar vinnuvélar. Að
sögn Lúðvíks Eiðssonar rannsóknarlögreglu-
manns er nauðsynlegt að fjarlægja bitana svo
tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
geti hafið rannsókn sína af fullum þunga við
öruggar aðstæður. „Við höfum ekkert verið
þarna [í gær] því það var ekki búið að tryggja
strengjasteypubitana,“ sagði Lúðvík við Morg-
unblaðið. Búast má við að rannsókn lögreglu á
eldsupptökum haldi áfram í dag. khj@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Stórvirkar vinnuvélar sjá um að tryggja brunavettvang
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Makrílvertíðin hófst um miðjan júní
síðastliðinn og virðist hún fara held-
ur rólega af stað, en samkvæmt upp-
lýsingum frá Fiskistofu er nú búið
að landa alls 12.196 tonnum.
Heildarafli makríls fyrir árið 2014
nemur hins vegar 147.721 tonni.
Vinnslu- og fjölveiðiskipið Hug-
inn VE-55 er sem stendur aflahæst
þeirra skipa sem nú eru á makríl-
veiðum við landið. Eru það búið að
landa rúmlega 2.067 tonnum. Fast á
eftir kemur áhöfnin á fjölveiðiskip-
inu Vilhelmi Þorsteinssyni EA-11
sem hefur komið með rúmlega 2.059
tonn af makríl að landi.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Guðmundi Hugin Guðmundssyni,
skipstjóra á Hugin, voru þeir staddir
um 20 sjómílum suður af Kötlutanga.
„Þetta er búið að ganga ágætlega og
munum við að líkindum landa næst
um helgina, sennilega á sunnudag,“
segir Guðmundur Huginn, sem á von
á því að koma þá með rúmlega 600
tonn að landi.
Stærstu skipin í svelti
Sjö skip voru á sömu slóðum við
veiðar í gær og segir Guðmundur
Huginn fínasta veður hafa verið þar
að undanförnu. „Það er nú samt ein-
hver kaldi fram undan en ég held að
þetta verði í fínu lagi hérna.“
Frystitogararnir Guðmundur í
Nesi RE-13 og Brimnes RE-27 voru
í gær við veiðar um 90 sjómílur vest-
ur af Bjargtöngum. „Þetta hefur
gengið ágætlega og við togum bara
eftir vinnslunni,“ segir Kristján Guð-
mundsson, skipstjóri á Guðmundi í
Nesi. Hefur skipið nú verið úti í mán-
uð. „Við erum búnir að fara víða.
Fyrst byrjuðum við á makrílveiðum
sunnan við land og fórum svo suð-
vestur í leit að betri makríl. Hann er
aðeins stærri hér.“ Spurður hvort
honum finnist kvótinn vera nægjan-
legur kveður Kristján nei við. „Þetta
er allt of lítill kvóti fyrir svona stór
og fín skip. Þessi skip sem eru að
frysta, eins og við um 75 til 80 tonn á
sólarhring, eru í algeru svelti miðað
við uppsjávarskipin. [] Við höfum oft
verið að færa okkur til og víða virðist
vera mikið um makríl, í mismiklum
mæli að vísu, en alls staðar verðum
við varir við hann.“
Aðspurður segir Kristján bæði
rússnesk og grænlensk skip vera í
grenndinni og voru þau í gær 40 sjó-
mílur beint vestur af íslensku tog-
urunum.
Fjölveiðiskipin Faxi RE-9 og
Lundey NS-14 eru við veiðar austur
af landinu. Samkvæmt upplýsingum
frá HB Granda er makríllinn þar á
fullu í æti og því mikið á ferðinni.
Makríllinn gefur sig vel á miðunum
Skipstjóri Guðmundar í Nesi vill
meiri kvóta Elta makríl fyrir austan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við veiðar Menn eru sammála um að makrílveiðar gangi vel þetta árið.
Ríkissaksóknari hefur ákveðið að
falla frá máli gegn fyrrverandi
starfsmanni símafyrirtækisins
Nova. Hann var til rannsóknar
vegna LÖKE-málsins. Maðurinn
var í lokuðum hópi á Facebook
ásamt tveimur félögum sínum, lög-
fræðingi og lögreglumanni. Meint
brot lögreglumannsins fólst í óeðli-
legum flettingum í málakerfi ríkis-
lögreglustjóra, LÖKE. Hann var
sakaður um að hafa deilt upplýs-
ingum úr LÖKE með spjallhópnum.
Símamaðurinn fyrrverandi er því
ekki lengur með réttarstöðu sak-
bornings. Honum var vikið úr starfi
hjá Nova vegna trúnaðarbrests
vegna þess hvernig hann blandaðist
inn í rannsókn málsins. Áður hafði
ríkissaksóknari einnig fellt niður
málið gegn lögfræðingnum. Hann
fór í leyfi frá starfi sínu vegna rann-
sóknar málsins.
„Nú liggur fyrir að sakborning-
arnir þrír sem voru handteknir
vegna málsins hafa ekki deilt með
sér neinum trúnaðargögnum úr
LÖKE né heldur úr kerfum Nova,
enda voru þær ásakanir frá upphafi
úr lausu lofti gripnar,“ sagði Garðar
St. Ólafsson hdl., sem hefur verið
verjandi allra mannanna.
gudni@mbl.is
Mál gegn
tveimur
felld niður
Lögreglumaður í
stöðu sakbornings
1914
er árið sem örninn var friðaður
eftir skipulegar ofsóknir
á 19. öld.
20
pör voru hér á landi upp úr 1960.
Fljótlega tók þeim að fjölga.
38
arnarungar hafa nú verið taldir.
Arnaróðul í ábúð eru 73.
Þar af urpu 48 pör og 31 þeirra
er nú með alls 38 unga.
ARNARVARPIÐ
»