Morgunblaðið - 10.07.2014, Page 13

Morgunblaðið - 10.07.2014, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2014 Aurora velgerðarsjóður og UNI- CEF á Íslandi undirrituðu á dög- unum styrktarsamning þar sem sjóðurinn heitir áframhaldandi stuðningi við menntun og vernd barna í einu fátækasta ríki heims, Síerra Leóne. Styrkurinn hljóðar upp á 11,5 milljónir króna og mun hann stuðla að myndun 100 svokall- aðra mæðraklúbba vítt og breitt um landið. Mæðraklúbbarnir eru öflug leið til að koma fátækustu börnum í Síerra Leóne í skóla, vernda þau gegn ofbeldi og stuðla að valdefl- ingu kvenna, samkvæmt UNICEF. „Við erum stolt af því að styðja áfram við uppbyggingu mæðra- klúbba í Síerra Leóne,“ segir Auð- ur Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Auroru velgerðarsjóðs, en sjóður- inn hefur veitt stuðning við mennta- og barnaverndarverkefni UNICEF í Síerra Leóne frá árinu 2008. Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Ingibjörgu Kristjáns- dóttur og Ólafi Ólafssyni. if@mbl.is Veita 11,5 milljónir í styrk  Styðja við börn í Síerra Leóne Ljósmynd/UNICEF Börn Síerra Leóne er eitt fátækasta ríki heims og lifa börn þar við skort. Ólafur Bernódusson Skagaströnd Aurskriða féll framan í Spákonufelli ofan við Skagaströnd rétt um klukk- an 19.30 á mánudag. Elstu menn á Skagaströnd vita ekki til að áður hafi fallið slík skriða framan í fjall- inu. Gríðarleg rigning var á föstudag en þó einkum á laugardag með upp- styttu eftir hádegi á sunnudag. Síð- an gerði skúr eftir miðjan dag á mánudag og eftir þá skúr fór skrið- an af stað. Hún er um það bil 150 metra löng og líklega um 20 metrar þar sem hún er breiðust. Stórir steinar fóru af stað Að sögn sjónarvottar þá byrjaði skriðan með því að nokkrir stórir steinar efst í henni fóru af stað en síðan kom aurfyllan á eftir. Að hans sögn fór skriðan sjálf fremur hægt niður hlíðina, nægjanlega hægt til að hross og kindur gátu forðað sér. Þessu fylgdu miklir skruðningar eða drunur meðan skriðan var á hreyf- ingu. Meðan fréttaritari brá sér á stað- inn skall á mikil rigningarskúr með þrumum og eldingum en slíkt er af- ar sjaldgæft í kringum Skagaströnd. Aurskriða féll í Spákonu- felli við Skagaströnd Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Aurskriða Hross og kindur í hagagöngu í Spákonufellinu höfðu tíma til að forða sér meðan aurinn vall niður hlíðina. Skriðan olli engu tjóni. Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra stóð í gær fyrir morgunverðar- fundi hóps 23 ríkja sem Ísland og Namibía stofnuðu á síðasta ári um land- græðslumál hjá Sameinuðu þjóð- unum. „Það er mikilvægt að land- græðslumál fái aukinn sess í þróun- arstarfi til þess að koma í veg fyrir afleidd vandamál á borð við mat- vælaskort, meiriháttar fólksflutn- inga og átök sem geta orðið vegna landeyðingar og þurrks. Þess vegna leggur Ísland ríka áherslu á að markmið í landgræðslumálum verði meðal nýrra þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Gunnar Bragi m.a. á fundinum, að því er fram kemur í tilkynningu. SÞ setji sér markmið í landgræðslu Gunnar Bragi Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.