Morgunblaðið - 23.07.2014, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
Miðasala í síma 528 5050, á midi.is og harpa.is
www.harpa.is/hamlet
Shakespeare’s Globe á Íslandi í kvöld
Hamlet
eftir William Shakespeare
Ætlar þú að vera eða ekki vera?
Eldborg kl. 19:30
B
ra
n
d
en
b
u
rg
Tveir miðar á verði eins meðan húsrúm leyfir
Framkvæmdir standa nú yfir á fangelsinu á Hólmsheiði. Örn Baldursson,
verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, segir framkvæmdir vera á
áætlun.
„Framkvæmdum miðar samkvæmt áætlun og verklok eru 1. desember
2015. Núna er framkvæmdin á þeim stað að verið var að ljúka við upp-
steypu sökkla og þá verður hafist handa við að reisa veggeiningar. Í lok
árs verður þá fangelsið orðið fokhelt, þ.e. allri steypuvinnu verður lokið.
Þá verður hafist handa við að klæða húsið að utan og ganga frá því innan-
húss,“ segir Örn.
Hann segir að fyrstu fangarnir verði fluttir í fangelsið í apríl 2016. Fang-
elsið mun hýsa 56 fanga, aðallega gæsluvarðhaldsfanga.
Kvennadeild verður einnig innan fangelsisins en fangar þar munu vera í
afplánun. Fangelsið mun leysa af hólmi kvennafangelsið í Kópavogi og
Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir í fullu
fjöri á Hólmsheiðinni
Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar
óskaði á mánudag eftir upplýsingum
um stöðu mála varðandi hunda-
leikvöll í bænum. Sverrir Óskarsson,
formaður skipulagsnefndar, segir
leikvellinum ætlað að bæta aðstöðu
hundaeigenda.
„Við erum að skoða hvort hægt sé
að setja upp aðstöðu fyrir hunda og
eigendur þeirra til að vera virkir og
skemmta sér í náttúrunni,“ segir
Sverrir, og bætir við að hugmyndin
sé á byrjunarstigi. „Stefna nýja
meirihlutans er að efla mannlífið í
bænum og þessi hugmynd er þáttur í
því.“
Hann telur pólitíska samstöðu
vera fyrir málinu innan bæjarstjórn-
arinnar. „Við höfum auðvitað ekki
útfært þetta endilega en tekið hefur
verið jákvætt í hugmyndina hjá bæði
meiri- og minnihluta bæjarstjórnar.“
Birgir H. Sigurðsson, skipulags-
stjóri Kópavogsbæjar, segir sam-
þykkt vera fyrir því að koma upp
bráðabirgðaaðstöðu fyrir hunda og
eigendur á skeiðvellinum á Glað-
heimasvæðinu. „Hugmyndin er að
þetta verði áþekkt hundagerðunum í
Laugardal, afgirt svæði með hliði
svo hundar geti gengið lausir,“ segir
Birgir. sh@mbl.is
Glaðbeittur Þessi hundur skemmtir
sér vafalítið í faðmi náttúrunnar.
Leikvöllur
fyrir hunda
áformaður
Vilja efla mann-
lífið í Kópavogi
Alls bárust 15 umsóknir um stöðu
sveitarstjóra í Húnavatnshreppi,
að því er fréttavefur Feykis segir
frá. Umsækjendur eru Björn S.
Lárusson, Egill Skúlason, Einar
Kristján Jónsson, Elías Pét-
ursson, Guðbjartur Jónsson,
Gunnar Ríkharðsson, Gunnar
Kristinn Þórðarson, Hörður J.
Oddfríðarson, Lárus Páll Pálsson,
Sigurður Gísli Guðjónsson, Sig-
urður Sigurðarson, Stefán Har-
aldsson, Steingrímur Hólm-
steinsson, Theódór S. Halldórsson
og Þorbjörn Guðrúnarson. Flestir
umsækjenda koma af höfuðborg-
arsvæðinu en umsóknarfrestur
um starfið rann út 7. júlí síðast-
liðinn.
Fimmtán sóttu um
stöðu sveitarstjóra í
Húnavatnshreppi