Morgunblaðið - 23.07.2014, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.07.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skoraði í gær á leið- toga Hamas-samtakanna að sam- þykkja vopnahléstillögur sem Egyptar hafa lagt fram til að reyna að binda enda á blóðsúthellingarnar á Gaza-svæðinu. Yfir 620 manns hafa beðið bana í árásum Ísraelshers á Gaza, þar af um 75% óbreyttir borg- arar að sögn embættismanna Sam- einuðu þjóðanna. Hátt í 140 börn eru á meðal þeirra sem hafa látið lífið í sprengjuárásunum, samkvæmt síðustu fréttum í gær. John Kerry var í Kaíró og sagði eftir fund með forseta Egyptalands, Abdel Fattah al-Sisi, að Bandaríkja- stjórn styddi tillögur Egypta sem grundvöll að viðræðum um vopnahlé. Samkvæmt tillögum Egypta eiga Ísraelar og Hamas-samtökin að hætta árásum sínum áður en viðræð- ur hefjast um skilmála varanlegs vopnahlés. Egyptar hafa áður haft milligöngu um vopnahlé á Gaza-svæðinu, síðast í nóvember 2012 þegar Mohammed Morsi, leiðtogi íslömsku samtakanna Bræðralags múslíma, var forseti Egyptalands. Her Egyptalands, undir forystu al-Sisi, steypti Morsi af stóli á síðasta ári og ríkisstjórn nýja forsetans í Kaíró hóf herferð gegn Bræðralagi múslíma sem hún skil- greinir sem hryðjuverkasamtök. Hamas-samtökin, sem eiga rætur að rekja til Bræðralags múslíma, neit- uðu að verða við kröfu al-Sisi um að rjúfa tengslin við þessa íslömsku bandamenn sína í Egyptalandi. Vegna togstreitunnar milli Egypta og Hamas er talið að al-Sisi sé tregur til að beita sér fyrir vopnahléssamn- ingi sem treysti Hamas-samtökin í sessi á Gaza-svæðinu. Leiðtogar Hamas hafa hafnað vopnahléstillögum Egypta og segj- ast ekki vilja leggja niður vopn nema Ísraelar fallist á skilyrði þeirra fyrir vopnahléi áður en viðræður hefjist um varanlegan frið. Hamas-menn krefjast einkum þess að Ísraelar og Egyptar aflétti umsátrinu um Gaza og Ísraelar leysi palestínska fanga úr haldi. Hamas-samtökin saka einn- ig Ísraela um að hafa brotið fyrri vopnahléssamninga. Embættismenn í Egyptalandi hafa neitað að breyta vopnahléstil- lögum sínum, að sögn fréttaveitunn- ar AFP. Hún hafði á hinn bóginn eft- ir embættismanni í föruneyti Johns Kerry að Bandaríkjastjórn léði máls á breytingum á tillögunum til að fá Hamas-menn til að leggja niður vopn. 100.000 á flótta Tzipi Livni, dómsmálaráðherra Ísraels, sagði í gær að kröfur Hamas væru „óaðgengilegar“ og ekki kæmi til greina að stöðva árásir Ísraels- hers fyrr en hann hefði eyðilagt göng sem liðsmenn samtakanna eru sagð- ir hafa notað til að reyna að gera árásir á Ísrael. Ísraelsher segist hafa fundið fleiri göng en búist var við áður en landhernaðurinn hófst og er tregur til að stöðva árásirnar áður en þau hafa öll verið eyðilögð, að sögn The New York Times. Bandarísk og evrópsk flugfélög ákváðu að aflýsa flugi til alþjóðaflug- vallar Tel Avív í gær vegna flug- skeyta sem féllu nálægt honum. Kerry skoraði á leiðtoga Hamas að hætta flugskeytaárásum á Ísrael þegar í stað til að binda enda á blóðs- úthellingarnar. „Hamas þarf nú að- eins að taka þá ákvörðun að hlífa saklausum borgurum við þessu of- beldi,“ sagði Kerry. Arababandalag- ið tók undir áskorun bandaríska utanríkisráðherrans. Um 100.000 Palestínumenn höfðu í gær flúið heimili sín vegna árása Ísraelshers og leitað athvarfs í skól- um þar sem Palestínuflóttamanna- hjálpin, UNRWA, veitir þeim neyðaraðstoð. Um 3.650 Palestínu- menn hafa særst í árásunum, þeirra á meðal hundruð barna. Tveir óbreyttir borgarar í Ísrael hafa látið lífið í flugskeyta- og sprengjuárásum Hamas-manna og 27 hermenn Ísraela liggja í valnum eftir að landhernaðurinn hófst. Hafna skilmálum Hamas AFP Særð Palestínumaður heldur á níu ára stúlku sem særðist í einni af árásum Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. AFP Sorg Palestínsk fjölskylda syrgir eitt fórnarlambanna í Gaza-borg.  Ísraelar segja kröfur Hamas-samtakanna vera óaðgengilegar  Egyptar sagðir neita að breyta vopnahléstillögunum  Yfir 620 Palestínumenn hafa beðið bana, þeirra á meðal á annað hundrað börn Lýst hefur verið yfir þjóðarsorg í Hollandi í dag vegna farþegaþotunn- ar sem hrapaði á yfirráðasvæði að- skilnaðarsinna í austanverðri Úkra- ínu á fimmtudaginn var. 298 manns létu lífið þegar þotan hrapaði og a.m.k. 200 líkanna voru flutt með lest til úkraínsku borgar- innar Kharkív í gær. Gert er ráð fyr- ir að þau verði flutt með herflugvél til Hollands í dag. 193 farþeganna í þotunni voru frá Hollandi. Aðskilnaðarsinnar afhentu malas- ískum sérfræðingum tvo flugrita þotunnar í gærmorgun og flókin rannsókn á atburðinum á að hefjast í dag. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, sagði að það gæti tekið marga mánuði að rannsaka öll líkin og bera kennsl á þau. Lýst hefur verið yfir vopnahléi á staðnum þar sem þotan hrapaði en átök hafa geisað milli aðskilnaðar- sinna og stjórnarhersins í grennd- inni. Rannsókn á hendur varnar- málaráðherra Rússa Stjórnvöld í Úkraínu saka aðskiln- aðarsinna um að hafa grandað þot- unni með flugskeytabúnaði sem þeir eru sagðir hafa fengið frá Rússlandi. Rússar hafa hins vegar sakað Úkra- ínuher um að hafa skotið þotuna nið- ur til að koma sökinni á aðskilnaðar- sinnana. Varnarmálaráðuneytið í Moskvu segir að rússneski herinn hafi orðið var við úkraínska orrustu- þotu í grennd við farþegavélina dag- inn sem hún hrapaði. Ráðuneytið óskaði eftir skýringu á flugi orrustu- þotunnar. Stjórnvöld í Kænugarði sögðust í gær hafa hafið rannsókn á hendur varnarmálaráðherra Rússlands, Sergej Shoigu, og rússneskum auð- manni vegna ásakana um að þeir hefðu skipulagt og fjármagnað „ólöglega, vopnaða hópa“ í Úkraínu. Lýst yfir þjóðar- sorg í Hollandi  Fyrstu líkin úr þotunni flutt þangað AFP Líkin flutt Lest flutti lík úr farþega- þotunni til Kharkív-borgar í gær. Neðri deild jórdanska þingsins for- dæmdi í gær „grimmileg fjölda- morð“ Ísraelshers á Gaza-svæðinu og lýsti drápunum sem broti á al- þjóðalögum. „Við krefjumst þess að alþjóðasamfélagið miðli málum þegar í stað og stöðvi árásir Ísraelshers á óvopnaða Palest- ínumenn.“ Jórdanía undirritaði friðarsamn- ing við Ísrael árið 1994 og varð annað arabaríkið til að gera það á eftir Egyptalandi sem samdi um varanlegan frið við Ísraela árið 1979. The New York Times segir að spurningar hafi vaknað um þá staðhæfingu Ísraela að þeir forðist árásir á óbreytta borgara og skír- skotar meðal annars til árásar á fjögurra hæða fjölbýlishús á sunnudagskvöld. 25 manns í fjór- um fjölskyldum létu þá lífið, þeirra á meðal nítján börn. Sagðar grimmileg fjöldamorð JÓRDANAR FORDÆMA ÁRÁSIR ÍSRAELSHERS Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lífi þú lifir, því ReSound heyrnartækin, eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.