Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 15

Morgunblaðið - 23.07.2014, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014 Um 40 manns tóku þátt í púttmóti í Hraunkoti í Hafnarfirði á mánu- dag. Um árlegt mót er að ræða í minningu Harðar Barðdal, frum- kvöðuls á sviði íþrótta fatlaðra hér á landi, en Hörður var m.a. stofn- andi Golfsamtaka fatlaðra, GSFÍ. Hörður lést árið 2009 en fjöl- skyldan hefur heiðrað minningu hans með þessu púttmóti. Keppt var bæði í flokki fatlaðra og ófatl- aðra. Hjá fötluðum bar Elín Fanney Ólafsdóttir sigur úr býtum, eftir bráðabana við Bjarka Guðnason. Í þriðja sæti varð Ingólfur Andrason. Í flokki ófatlaðra notaði Björk Birgisdóttir fæst pútt á vellinum. Í öðru sæti varð Birna Bjarnþórs- dóttir og Atli Guðbjörnsson varð þriðji. Jóhann Hjaltason, golfkenn- ari GFSÍ, afhenti verðlaunin en hann er lengst til vinstri á myndinni að ofan. 40 manns á púttmóti í Hraunkoti Pútt Verðlaunahafar í flokki fatl- aðra kylfinga, Elín með bikarinn. Sveitarstjórn Eyjafjarð- arsveitar hefur ráðið Karl Frí- mannsson í starf sveitarstjóra frá 1. ágúst nk. Karl hefur langa reynslu af stjórnun í opin- berum rekstri. Hann var skólastjóri Hrafnagils- skóla í 13 ár og undir hans stjórn hlaut skólinn Íslensku mennta- verðlaunin árið 2007. Síðustu tvö ár- in hefur hann starfað hjá Akur- eyrarbæ, fyrst sem fræðslustjóri og síðan þróunarstjóri. Karl lauk meist- araprófi frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 í stjórnun menntastofnana en áður lauk hann prófi í íþrótta- fræðum við Íþróttaháskóla Noregs 1992. Hann hefur setið í mörgum stjórnum félaga og stofnana og var nú síðast formaður stjórnar Hofs menningarfélags frá 2008-2012. Síð- ustu tvö árin hefur hann jafnframt unnið að verkefnum á vegum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Eiginkona Karls er Bryndís Björg Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau þrjá syni. Ráðinn sveit- arstjóri Eyja- jarðarsveitar Karl Frímannsson Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10-18 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita tveimur stofnunum Sameinuðu þjóðanna sem starfa á Gaza tólf milljóna króna framlag. Er þar brugðist við neyðarkalli sem íslensk- um stjórnvöldum barst fyrir síðustu helgi vegna ástandsins á Gaza þar sem þörf á mannúðaraðstoð er afar mikil. Gunnar Bragi Sveinsson segir í til- kynningu að ástandið sé alvarlegt og nauðsynlegt sé að bregðast við því tafarlaust. „Því hef ég ákveðið að veita tólf milljóna króna framlag til stofnana Sameinuðu þjóðanna sem starfa á Gaza, annars vegar sex milljónir til Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna og hins vegar sex millj- ónir til UNRWA, Flóttamannaað- stoð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn,“ segir Gunnar Bragi. Framlögin munu nýtast til að tryggja grunnaðstoð, svo sem mat, skjól, vatn og hreinlætisaðstöðu, sem og sálrænan stuðning við börn og heilbrigðisþjónustu, segir í til- kynningu frá utanríkisráðuneytinu. Með þessu framlagi utanríkisráð- herra hafa 22 milljónir króna runnið frá Íslandi til hjálparstarfs á Gaza en Rauði kross Íslands tilkynnti á mánudag um tíu milljóna króna framlag sitt til hjálparstarfs palest- ínska Rauða hálfmánans á Gaza. „Það eru stöðugt fleiri sem flýja heimilin sín og samkvæmt nýjustu tölum hafa 80 þúsund manns þurft að leita sér skjóls hjá flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu,“ segir Þórir Guðmunds- son, sviðsstjóri hjálpar- og mannúð- arstarfs hjá Rauða krossi Íslands. „Þar til viðbótar eru rúmlega 12 þús- und manns sem hafast við hjá ætt- ingjum þannig að í heildina eru sam- tals 92 þúsund einstaklingar sem hafa þurft að flýja heimili sín í Pal- estínu samkvæmt þeim tölum sem við höfum frá Rauða hálfmánanum í Palestínu,“ segir Þórir. Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til útifundar á Ingólfstorgi í dag kl. 17 vegna árása á Gaza. 22 milljónir til hjálparstarfs á Gaza Morgunblaðið/Eggert Palestína Ástandinu mótmælt.  Utanríkisráðherra tilkynnti um 12 milljóna króna fjárveitingu  92 þúsund þurft að flýja heimili sín

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.