Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 1
Bjargaðitónlistinni
ÞorvaldurDavíð á
SUNNUDAGUR
ÖGRANDILEIKSTJÓRI
SVAVA MAGDALENAKLÆÐIR SIG SMART
SEIÐANDISMÁRÉTTIR
BÆKUR 50
WAGNER-HÁTÍÐIN 48
TÍSKA 34
EIRNÝ Í BÚRINU 30
SAGNFRÆÐI HEILLARGUÐNA BERGS
10. ÁGÚST 2014
ÖMUL. NÚ ER
HÚN ORÐIN LÖGFRÆÐINGUR FRÁ HR OG LANGAR AÐ GÆTA HAGSMUNA HÆLIS-
LEITENDA OG KVENNA AF ERLENDUM UPPRUNA.VÍÐA SÉ POTTUR BROTINN. 46
*
STOLT
AÐ VERAÍSLENDINGUR
* Litadýrð,gleði og glamúreinkenna hápunkthátíðarinnar,
G
L A U G A R D A G U R 9. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 184. tölublað 102. árgangur
ÆVINTÝRI LEIK-
HÓPSINS LOTTU
FYRIR ALLA
BLANDA
AFLAHÆSTA
ÁIN Í SUMAR
STANGVEIÐI 18ÚTILEIKHÚS 47
Ljósmynd/Sian Richards
Í fremstu röð Peter Oundjian stýrir Sin-
fóníuhljómsveit Toronto í Hörpu.
Peter Oundjian, stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar Toronto, segist
spenntur fyrir því að koma fram
með hljómsveitinni í Hörpu 24.
ágúst. Hann stjórnaði Sinfóníu-
hljómsveit Íslands sem gesta-
stjórnandi 2012 og segir að
hljómburðurinn sé frábær. Hann
segist í viðtali við Sunnudags-
blaðið hafa heyrt að það hafi verið
umdeilt að klára að reisa Hörpu
eftir að íslensku bankarnir hrundu
en kveðst þess fullviss að tónlistar-
húsið muni bæði laða að flytjendur
og gesti sem ella hefðu ekki komið
til landsins.
„Húsið stendur kannski ekki
undir sér með beinum hætti, en
kannski með óbeinum hætti,“ seg-
ir hann. „Segjum að húsið laði að
þó ekki væri nema tvö þúsund
ferðamenn á ári sem ekki hefðu
komið annars. Þeir búa á hótelum
og fara út að borða og það hefur
áhrif á efnahagslífið.“
Spenntur að koma
fram í Hörpu
Gríðarleg fjölgun
» Fyrstu sjö mánuði ársins
komu ríflega 546 þúsund
ferðamenn til landsins, 25,6%
fleiri en eftir sama tíma í fyrra.
» Eru farþegar skemmti-
ferðaskipa þá ekki taldir með.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Hvert vilja Íslendingar stefna? Það
þarf að vera einhver stefna til staðar
þannig að ferðaþjónustan fái ekki að
vaxa algjörlega stjórnlaust. Að öðr-
um kosti eyðileggst hún og ferða-
menn munu fara eitthvert annað í
leit að fallegu og rólegu umhverfi og
náttúru.“
Þetta segir dr. Ulrike Friedrich,
verkefnisstjóri hjá þýsku geimvís-
indastofnuninni, sem ferðast hefur
til Íslands tíu sinnum frá árinu 1995,
síðast í sumar. Hún segir gríðar-
legar breytingar hafa átt sér stað frá
heimsókn sinni árið 2011 og hefur
þungar áhyggjur af áhrifum fjölg-
unar ferðamanna hér á landi.
„Hvar er mitt Ísland?“ spyr Ul-
rike Friedrich í bréfi sem hún sendi
vini sínum á Íslandi, Ólafi B.
Schram, leiðsögumanni og
ferðaþjónustubónda. Þar lýsir hún
m.a. ferðum sínum um landið í
sumar. Þar hafi alls staðar verið yfir-
fullt af ferðafólki, bílastæði troðfull
og löng bið verið eftir því að fá borð á
veitingastað. „Er markmiðið að Ís-
land verði Mallorca norðursins?“
Ferðaþjónusta gæti eyðilagst
Þjóðverji sem ferðast hefur tíu sinnum til Íslands hefur þungar áhyggjur af
fjölgun ferðamanna hér Spyr hvort Ísland sé að verða Mallorca norðursins
M Ísland að verða.... »6
Leikstjóri Sævar Guðmundsson
sinnir öðrum verkefnum í vetur.
Hætt hefur verið við framleiðslu og
sýningu á þættinum Sönn íslensk
sakamál, en til stóð að hann yrði á
dagskrá SkjásEins í vetur eins og
tvö undanfarin ár. Ástæðan er ein-
föld: Þátturinn stendur ekki lengur
undir kostnaði, þar sem hverjum
þætti hefur verið halað ólöglega
niður allt að tólf þúsund sinnum.
Sævar Guðmundsson, framleið-
andi og aðalleikstjóri þáttanna, segir
það vitaskuld vonbrigði að Sönn ís-
lensk sakamál verði ekki á skjánum í
vetur og það veki spurningar um
stöðu íslenskrar dagskrárgerðar.
„Það er umhugsunarvert að vand-
aður þáttur sem notið hefur gríðar-
legra vinsælda um árabil sé að
leggja upp laupana vegna ólöglegs
niðurhals. Fólk í þessum geira hefur
verulegar áhyggjur af þróun mála,“
segir Sævar.
Hann metur stöðuna þannig að
stóla þurfi framvegis á opinbert fé
eigi að framleiða þætti á borð við
Sönn íslensk sakamál. Þá þurfi
annaðhvort aðkomu RÚV eða Kvik-
myndamiðstöðvar. Eða beggja.
Nánar er fjallað um málið í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Hætt við vegna niðurhals
Sönn íslensk sakamál standa ekki lengur undir kostnaði
Lögreglumenn
ákveða sjálfir
upphæð sekta
sem skrifaðar
eru út vegna
utanvegaaksturs
út frá skemmd-
um á náttúru og
fleiri þáttum.
Yfirleitt er geng-
ið frá sektum á staðnum. Sekta má
upp í 500 þúsund krónur en sú upp-
hæð sést sjaldan; algengara er að
ökumenn séu sektaðir um allt að
300 þúsund krónur vegna utan-
vegaaksturs. »4
Dæmi um utanvega-
akstur í hverri viku
Verið er að athuga möguleika á að
draga hræ búrhvalsins sem rak upp í
fjöru í Skarðsvík í Trékyllisvík sl.
þriðjudag á haf út og sökkva því.
Ekki eru til nógu stór tæki í sveitinni
til að urða hræið í fjörunni en skoða á
hvort hægt sé að draga það út með
báti á flóði. Þá er þó eftir vandinn að
sökkva hvalnum svo hann reki ekki á
næstu fjöru.
Daun leggur orðið af rotnandi hval-
hræinu. Kjálkinn hefur verið skorinn
úr búrhvalnum, en verðmæti geta
verið í búrhvalstönnum, sem eru
meðal annars notaðar í handverk.
Talið er að hvalurinn hafi verið
lengi dauður á reki áður en hann end-
aði för sína í Skarðsvík, en gat var á
hvalnum þegar hann rak á land og
geta menn sér þess til að hann hafi
orðið fyrir stóru flutningaskipi. »14
Búrhvalshræið verður
líklega dregið út á haf
Búrhvalur Daun leggur af hræinu.
HRingurinn, árlegt LAN-mót á vegum Tvíundar,
félags tölvunarfræði-, stærðfræði- og hugbún-
aðarverkfræðinema við Háskólann í Reykjavík,
hófst í gær. Mótið stendur yfir fram á sunnudag,
og spila keppendur stanslaust þangað til. Keppt
er í tölvuleikjunum Counter-Strike Go, League
of Legends, DotA 2 og Hearthstone. Að sögn
Hrannar Róbertsdóttur, upplýsingafulltrúa Tví-
undar, hafa yfir 250 manns skráð sig til leiks á
mótinu og er reiknað með að met í fjölda þátt-
takenda verði slegið í ár. Mótið er haldið í bygg-
ingu Háskólans í Reykjavík.
Árlega LAN-mótið HRingurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spila tölvuleiki stanslaust í tvo sólarhringa