Morgunblaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
H
a
u
ku
r
1
.1
4
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Heildverslun með sælgæti. Ársvelta 65 mkr. Góð afkoma.
• Lítið, fallegt og mjög vinsælt hótel á góðum stað á suðvestur horninu.
Stækkunarmöguleikar til staðar
• Snyrtivörur - hlutafjáraukning. Þekkt snyrtivörufyrirtæki með eigin
framleiðslu. Hefur góða markaðshlutdeild á Íslandi og selur til rúmlega
30 landa. Í boði allt að 50% hlutur við hlutafjáraukningu, sem notuð
verður til að fara af krafti inn á Bretlandsmarkað.
• Skífan - Gamestöðin. Þekktasta sérverslun landsins með yfirburða
markaðsstöðu á sínu sviði. Útsölustaðir í Kringlunni og Smáralind.
Ársvelta 350 mkr. Auðveld kaup.
• Hestaleiga á höfuðborgarsvæðinu sem gerir út á stutta túra með erlenda
ferðamenn. Gott og stórt hesthús, hestar og allur búnaður til staðar.
• Þvottahús í miklum vexti. Velta nú 9 mkr. á mánuði.
• Ein elsta og þekktasta heildverslun landsins með pípulagningavörur, en
eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta síðustu
árin um 300 mkr. og góð framlegð.
• Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í varahlutum
og viðgerðum á diesel vélum til sjós og lands. Ársvelta 100 mkr. Góð
afkoma.
• Þekkt sérverslun með heilsurúm. Mikil sérstaða. Ársvelta 180 mkr. og
vaxandi.
• Tískuverslunin Kroll á Laugavegi. Góð velta og afkoma, besti tíminn
framundan. Auðveld kaup fyrir einstakling eða hjón.
Skákfélagið Hrókurinn hefur hleypt
af stokkunum nýrri heimasíðu, hrok-
urinn.is, sem ætluð er áhugafólki á
öllum aldri. Þar er hægt að nálgast
fréttir, fróðleik og fræðslu, og
áhersla lögð á skemmtileg efnistök
að því er fram kemur í tilkynningu
frá ritstjóranum, Hrafni Jökulssyni.
„Á heimasíðunni eru sagðar nýj-
ustu fréttir úr skákheiminum, en
hún er jafnframt gnægtabrunnur
fróðleiks og skemmtunar úr skák-
sögunni. Nú er til dæmis hægt að
lesa viðtal Hróksins.is við Dirk Jan
Ten Geuzendam, ritstjóra New in
Chess sem er vinsælasta skáktíma-
rit heims. Dirk Jan hefur skrifað um
skák í þrjátíu ár og verið viðstaddur
alla helstu skákviðburði veraldar á
þeim tíma. Hann rifjar upp þegar
hann var gestur á fyrstu skákhátíð
Hróksins á Grænlandi 2003, sem
hann segir alltaf koma upp í hugann
þegar hann er spurður um hvaða
skákviðburður er minnisstæðastur.
Dirk Jan spáir því að Magnus Carl-
sen haldi titli sínum í heimsmeist-
araeinvíginu við
Anand og rifjar
upp viðtöl við
ódauðlega snill-
inga,“ segir í til-
kynningunni.
Lögð er
áhersla á að hrók-
urinn.is sé að-
gengileg síða fyr-
ir áhugamenn á
öllum aldri. „Glæsilegar, sérkenni-
legar og merkilegar skákir eru rifj-
aðar upp daglega, auk þess sem les-
endur geta spreytt sig á skákþraut
dagsins, tekið þátt í skoðanakönnun
um mesta skákmann allra tíma eða
gengist undir próf í skáksögunni,“
segir ritstjórinn. Á síðu Hróksins er
jafnframt hægt að nálgast upplýs-
ingar um hvar er skemmtilegast að
tefla á Netinu, auk þess sem verið er
að byggja upp gagnagrunn um skák-
kennslu og námsefni, sem allir geta
nálgast. Tómas Veigar Sigurðarson
hafði veg og vanda af hönnun og
uppsetningu síðunnar.
Skákefni í boði á
nýrri heimasíðu
Hrókurinn.is tekur til starfa
Hrafn Jökulsson
Gunnar Björnsson
Tromsö
Sex umferðum af ellefu er nú lokið á
Ólympíuskákmótinu í Tromsö.
Þokkalega hefur gengið hjá íslensku
liðunum. Liðið í opnum flokki hefur
7 stig af 12 mögulegum en kvenna-
liðið hefur 6 stig. Í gær gerði ís-
lenska liðið 2-2 jafntefli gegn Fær-
eyjum í opnum flokki þar sem
gjafmildi íslenska liðsins var einstök
en kvennaliðið tapaði ½-3½ gegn
Ísrael.
Vildi ekki drottninguna
Hannes Hlífar Stefánsson vann
glæsilegan og öruggan sigur á Helga
Dam Ziska á fyrsta borði. Hjörvar
Steinn Grétarsson og Helgi Ólafsson
gerðu jafntefli á 2. og 4. borði með
svörtu og því var allt undir í skák
Guðmundar Kjartanssonar og Olafs
Bergs á þriðja borði. Þar var Guð-
mundur í vörn.
Færeyingurinn leikur hins vegar
af sér drottningunni í 30. leik. Skildi
hana einfaldlega eftir oní riddara
Guðmundar. Guðmundi var hins
vegar fyrirmunað að sjá það – af-
þakkaði drottninguna og þurfti að
gefast upp 10 leikjum síðar. Svekkj-
andi að gera 2-2 jafntefli við Fær-
eyinga. Þrátt fyrir að þeim hafi farið
mikið fram eigum við að öllu jöfnu að
vinna Færeyinga.
Stelpurnar töpuðu 3½ - ½ fyrir
Ísrael sem er í samræmi við styrk-
leikamun sveitanna en þær ísraelsku
voru miklum mun stigahærri. Elsa
María Kristínardóttir gerði jafntefli
en Lenka Ptácníková, Hallgerður
Helga og Tinna Kristín töpuðu sín-
um skákum.
Spennandi toppbarátta
Aserar og Kúbumenn eru efstir í
opnum flokki með 11 stig. Í kvenna-
flokki leiða svo Rússar og Kínverjar.
Norðmenn eru efstir Norð-
urlandaþjóðanna í báðum flokkum.
Norðmenn í stuði
Ólympíuskákmótið í Noregi vekur
gríðarlega athygli. Beinar útsend-
ingar eru alla daga í norska rík-
issjónvarpinu og fjölmiðlalætin fara
ekki framhjá neinum. Sterkustu
skákmenn Norðmanna eru skyndi-
lega orðnir vel þekktir einstaklingar
í heimalandi sínu og margir þeirra
vinna við norska fjölmiðla í kringum
mótið.
Miklar kröfur eru gerðar til Norð-
manna og virðast þeir ætla að standa
undir þeim. Í gær unnu þeir Ítali 3-1
sem verða að teljast afar góð úrslit.
Heimsmeistarinn í skák, Magnus
Carlsen, vann Ítalann unga Fabiano
Caruna, sem margir telja munu
verða helsta andstæðing Magnúsar
á komandi misserum.
Magnus lætur ekki skákina duga
sér því hann er duglegur að spila fót-
bolta á kvöldin – meðal annars við ís-
lensku keppendurna.
Rymur í rússneska birninum
Það vakti athygli í aðdraganda
mótsins þegar rússneska kvennalið-
inu var meinuð þátttaka á mótinu.
Það var gert vegna þess að skráning
þess barst ekki í tæka tíð. Skýringin
var að Rússarnir voru að bíða eftir
því að ríkisfang Katharyna Lagno
frá Úkraínu yfir til Rússlands gengi
í gegn.Þegar það loks gekk í gegn
hjá alþjóðlega sambandinu voru rík-
isfangsskipti hennar undirrituð af
sjálfum Vladimir Pútín!
Norðmenn gáfu eftir og leyfðu
rússneska kvennaliðinu að taka þátt
sem og öðrum þjóðum sem ekki
skráðu sig í tíma. Rússarnir láta hins
vegar ekki þar við sitja og hafa kært
mótshaldarana fyrir norskum yf-
irvöldum og krefja þá um 1,2 millj-
ónir norskra króna eða um 22 millj-
ónir íslenskra króna! Þeir segja það
eingöngu vera fyrir lögfræðikostn-
aði og áskilja sér rétt til að koma
með frekari kröfur síðar.
Kæra þessi veldur eðlilega mikilli
gremju og reiði meðal Norðmann-
anna.
Friðrik styður Kasparov
Í dag birtist yfirlýsing Friðriks
Ólafssonar, fyrrverandi forseta
FIDE, á heimasíðu Kasparovs. Frið-
rik lýstir þar stuðningi við Kasparov
með þeim orðum að hann voni að
skákheimur eigi eftir að upplifa
Kasparov sem forseta FIDE. Kosn-
ingarnar fara fram 11. ágúst.
Ljósmynd/Gunnar Björnsson
Keppnisgleði Hallgerður Helga og Lenka Ptácníková. Lenka vann afar góðan sigur á fyrsta borði gegn Ísrael.
Íslensku liðunum
gengið þokkalega
Sex umferðum af ellefu lokið á Ólympíuskákmótinu í
Tromsö Jafntefli gegn Færeyjum og tap gegn Ísrael
Ljósmynd/Gunnar Björnsson
Taflmenn Hjörvar Steinn Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson eru
hugsi við taflborðið. Helgi Áss Grétarsson fylgist spenntur með.