Morgunblaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 ✝ Runólfur Ing-ólfsson fæddist í Reykjavík 20. júní 1947. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnun Patreksfjarðar 31. júlí 2014. Foreldrar hans voru Ingólfur Hannesson, f. 8. janúar 1924, d. 24. júlí 1990, og Sig- ríður Sólveig Runólfsdóttir, f. 23. nóvember 1925, d. 1. mars 2005. Runólfur var þriðji í röð 15 systkina sem öll eru á lífi. Hann ólst upp í Kópavogi, en foreldrar hans voru meðal fyrstu íbúa Kópavogs og ráku þar myndarlegt hænsnabú um áraraðir. Runólfur giftist eft- irlifandi eiginkonu sinni, Guð- björgu S. Friðriksdóttur, 9. desember 1973. Börn þeirra Rafmagnsveitunni á Bíldudal og síðar Orkubúi Vestfjarða alla sína starfsævi, fyrst sem rafstöðvarstjóri en síðar sem svæðisstjóri á suðursvæði Orkubúsins. Runólfur var um- boðsmaður fyrir Ríkisskip á níunda áratug síðustu aldar og umboðsmaður fyrir Sjóvá til fjölda ára. Fyrir rúmu ári fékk Runólfur alvarlegt heila- blóðfall þar sem hann var við störf á Patreksfirði. Eftir endurhæfingu á Grensásdeild LSH dvaldi Runólfur á Heil- brigðstofnun Patreksfjarðar til dánardags. Runólfur var virkur í ýmiss konar félags- störfum, hann var meðlimur í Lionsklúbbi Bíldudals, virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og mörg handtökin vann hann fyrir golfklúbbinn og íþrótta- félagið á staðnum. Hann var formaður Skógræktarfélags Bíldudals til margra ára og má sjá afrakstur hans í sí- stækkandi trjám víðs vegar um Bíldudal. Útför Runólfs fer fram frá Bíldudalskirkju í dag, 9. ágúst 2014, klukkan 14. eru: 1) Bjarni Þór, f. 2. september 1968, giftur Sig- rúnu Theodórs- dóttur. Börn þeirra eru Kristín Heiða og Þorgeir. b) Margrét, f. 4. október 1971, gift Eiríki Sigfússyni. Dætur þeirra eru Sædís og Arna Lind. c) Sigríður Sólveig, f. 27. apríl 1976. Dótt- ir hennar er Karen Sól. d) Friðrik, f. 21. nóvember 1980, unnusta hans er Karin Krist- jana Hindborg. Synir þeirra eru: Styrmir og Sölvi. Runólfur var menntaður rafvirki frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði sem rafvirki í Reykjavík en árið 1974 fluttist hann til Bíldu- dals. Runólfur starfaði hjá Elsku pabbi minn. Mikið á ég eftir að sakna þín en það sem veitir okkur öllum styrk núna er að ylja okkur við allar góðu minningarnar um þig og það sem þú gerðir með og fyr- ir okkur. Upp í hugann koma minningar um þig þar sem þú ert boðinn og búinn til að hjálpa til við ýmis tækifæri og skipti ekki neinu hvort það var hjá okkur börn- unum þínum eða félagasamtök- um hér heim á Bíldudal, bónbetri mann er erfitt að finna. Það voru nú ófáar ferðirnar inn í Reykjafjörð í sund og út í Hvestu að leika á sandinum og auðvitað fengum við að prufa að keyra, þú varst líka viljugur að skutla okkur upp á fjall á skíði. Trjárækt og gróður var eitt af þínum áhugamálum og ber garð- urinn heima á Arnarbakkanum þess merki og er það ein af mörgum góðum minningum sem ég á um þig. Hvað það var gaman að fá að vera með þér og vinna í garðinum enda voru það ófáar ferðirnar sem við röltum út í garð þegar ég kom í heimsókn og oftar en ekki var nú líka trítlað upp í hlíð fyrir ofan húsið og kíkt á trén sem þú varst búinn að planta þar. Ég man að oft vorum við að skoða fuglana og held ég bara að þér hafi tekist vel til að kenna mér að þekkja þá. Þú varst svo dásamlegur afi og fannst Sædísi og Örnu Lind gaman að koma til afa og ömmu á Bíldó og leika úti í garði í Afakoti en það var kofinn sem þú smíð- aðir alltaf kallaður. Ferðir á bryggjuna til að veiða voru margar og var nú oft komið við á Hótelinu hjá Hannesi frænda og Helgu á eftir til að kaupa ís, það þótti afastelpunum ómissandi sem og að fá að fara í heimsókn í vinnuna til þín í hverri ferð sem við komum vest- ur. Þú kenndir mér svo margt, það var alveg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur hvort sem það var að baka vöfflur, steikja klein- ur, stytta buxur, elda, grilla, allt leystir þú af mikilli snilld. Að grilla var alveg ómissandi þegar við hittumst, þið Eiki vor- uð þá í essinu ykkar við grillið að spjalla og skiptast á ráðum og ræða saman. Ég veit að þessar stundir eru honum Eika mjög dýrmætar. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með þér eftir að þú veiktist fyrir rúmu ári en óneitanlega hefðum við fjölskyldan mín viljað geta hitt þig oftar á þessum tíma en við fengum alltaf fréttir af þér. Vikan sem við áttum með þér síðast þegar við komum til Bíldu- dals var yndisleg, þó sér í lagi laugardagurinn þegar þú komst í heimsókn á Arnarbakkann og skoðaðir hvernig okkur systkin- unum og mömmu hafði tekist til við að taka til í bílskúrnum, svo var farið út í garð að skoða gróð- urinn. Mamma bakaði pönnukök- ur sem þér þóttu svo góðar og svo var flaggað. Já, þú gafst ekki upp á að koma mér í skilning um að þú vildir flagga, settir höndina upp í loft hvað eftir annað og horfðir út að flaggstönginni og mikið varstu glaður þegar fáninn var kominn upp. Eiki grillaði svo fyrir okkur og auðvitað var ís á eftir, þetta er ein fjölmargra fal- legra minninga sem við setjum í minningabókina um þig. Ég gæti haldið áfram að rifja upp minn- ingar um þig, elsku pabbi, en nú er komið að kveðjustund. Hvíl í friði, elsku pabbi minn. Margrét. Lífið er skrýtið. Það er erfitt að skilja að þú sért farinn frá okkur, farinn eftir hetjulega bar- áttu síðastliðið ár. Nokkuð sem ekkert okkar sá fyrir. Þú varst pabbi minn, alltaf til staðar, alltaf hægt að treysta á þig. Svo á svipstundu var allt breytt. Ég sakna þess að geta ekki sagt þér sögur af litlu afa- strákunum þínum, Styrmi og Sölva, sem ég veit að þú varst óendanlega stoltur af og ég veit að þeir eiga eftir að sakna þín. Ég veit að þeir eiga eftir að njóta þess að leika sér á Arnarbakk- anum fyrir vestan; í garðinum, bílskúrnum og kofanum. Rétt eins og ég gerði þegar ég var lít- ill. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt þig sem pabba, það uppeldi sem þú veittir mér og þau gildi sem þú kenndir mér. Það frelsi sem þú gafst mér til að vera lítill strákur og gera hluti sem strák- ar gera, frelsi til að læra af eigin mistökum og tilraunum. Þú stóðst alltaf við bakið á mér, reiddist mér aldrei þó að ég gerði eitthvað af mér. Þú talaðir við mig, leiðréttir mig og lífið hélt áfram. Frá því að ég man eftir mér fékk ég að taka þátt í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú hafðir alltaf eitthvað fyrir stafni, hvort sem það var í vinnu eða heima fyrir, og alltaf fékk ég að koma með og hjálpa til. Þú gafst þér tíma til að tryggja að ég hefði alltaf eitthvað spennandi að gera. Þessar minningar munu fylgja mér alla tíð og eru efni í ótal sögur sem ég mun segja strákunum mínum. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við fengum með þér eftir að þú veiktist. Þá fékk ég tækifæri til að segja þér svo margt sem mig hafði lengi langað til að segja þér, hversu mikið ég elskaði þig og hversu góður pabbi þú varst. Þú fékkst líka að fylgjast með litlu afastrákunum stækka og dafna í eitt ár í viðbót. Ég er þakklátur fyrir síðasta daginn sem við eyddum saman. Ég man þegar ég sat hjá þér á kvöldin á Borgarspítalanum og var að segja þér að berjast, hetj- unni minni. Ég sagði þér að þetta væri ekki búið, að einn daginn myndum við sitja úti í garði á Arnarbakkanum og njóta þess að vera saman. Og við fengum þennan dag, fallegan dag á Bíldudal þar sem við gerðum allt eins og í gamla daga: Fórum í bílskúrinn, út í garðinn þinn, kíktum í kofann og sátum á pall- inum og grilluðum. Við rifjuðum upp gamla tíma og þú gerðir grín að mér, litla stráknum þínum. Minningin um þennan dag mun alltaf lifa með mér. Ég elska þig pabbi. Friðrik Runólfsson. Elsku besti, fallegi pabbi minn er dáinn og kemur aldrei aftur. Elsku pabbi minn með stóra hjartað sitt. Við vissum öll að þessi stund kæmi en ég var samt sem áður alls ekki undirbúin fyr- ir þessa miklu sorg. Ég og Karen vorum nýkomnar aftur frá Bíldu- dal þar sem við áttum frábærar stundir með þér, mömmu, Möggu, Friðriki og fjölskyldum þeirra þegar við fengum þær sorgarfréttir að þú værir horfinn úr þessum heimi. Helgina áður komst þú heim og eyddir með okkur dýrmætum stundum sem ég gleymi aldrei. Þú komst heim á Arnarbakkann í góðu veðri á fallegum sumardegi. Við sýndum þér garðinn þinn sem þú hafðir lagt hjartað þitt og sálu í að gera sem fallegastan og við höfðum reynt að halda við eftir bestu getu með hjálp frá góðum vinum. Mamma bakaði pönnukökur með kaffinu og um kvöldið héldum við grillveislu með öllu tilheyrandi og ís í eftirrétt. Það fannst þér sko ekki slæmt! Skyndileg veikindi þín síðast- liðið sumar voru mikið reiðarslag fyrir alla fjölskylduna. Þú sem hafðir alltaf verið hreystin upp- máluð. Þú tókst á veikindum þín- um eins og þú tókst á hverju öðru vandamáli, stóru sem smáu, með jafnaðargeði, þolinmæði og ákveðni. Fleiri ætla ég ekki að hafa orðin um veikindi þín, þau skilgreina þig ekki heldur það sem þú afrekaðir í lífi þínu; það voru afrek þín og gjörðir sem gerðu þig að þeim einstaka manni sem þú varst. Ég er svo stolt af þér og er svo óendanlega þakklát fyrir það að þú varst pabbi minn. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur lagðir þú sóma þinn í að gera sem best. Þú varst vinur vina þinna, mikill fjölskyldumað- ur; ólst með mömmu upp fjögur börn og barnabörnin orðin sjö talsins og voru þau þér hvert öðru kærara því þú varst mikil barnagæla og fráfall þitt er þeim mikill missir. Ég er mjög þakklát fyrir það að dóttir mín hafi átt svona góðan afa. Allt sem þú gerðir fyrir hana met ég mikils og hún mun aldrei gleyma þér. Ég hef, frá því að ég man eftir mér, verið mikil pabbastelpa. Fannst fátt skemmtilegra en að eyða tíma með þér hvort sem það var heima, úti í náttúrunni eða að fá að fara með þér í vinnuna. Þú kenndir mér margt sem ég er svo þakklát fyrir. Þú kenndir mér að vera sjálfstæð og sjálfri mér nóg. Þú kenndir mér að meta náttúr- una, kenndir mér nöfnin á fugl- um, fiskum, fjöllum, jurtum og blómum. Þú treystir mér alltaf til þess að taka mínar eigin ákvarð- anir, hrósaðir mér þegar vel til tókst og studdir mig þegar ég gerði mistök. Ég gat alltaf leitað ráða hjá þér með allt milli himins og jarðar. Ég veit að það var vel tekið á móti þér hinumegin, hlýr faðmur ömmu Siggu hefur verið það fyrsta sem þú hefur mætt þar. Þín verður sárt saknað í litla þorpinu okkar og við fjölskyldan eigum eftir að sakna þín á hverj- um degi, oft á dag. Þú ert hetjan mín, takk fyrir allt, pabbi minn. Þín dóttir, Sigríður Sólveig. Það var erfitt að fá símtalið frá elsku Bjarna hans Rulla að Rulli bróðir hefði látist þá um nóttina. Eftir erfið veikindi síðastliðin ár var kallið komið. Rulli bróðir var eins góður drengur og þeir gerast. Hann var okkur mjög kær og allt hans fólk og niðjar. Það er margs að minnast frá því að við vorum litl- ir og mikið var gaman að vera með Rulla þegar vel lá á honum, sem var eiginlega alltaf því Rulli var mikill gleðigjafi og skipti ekki mikið skapi. Í svona stórum systkinahópi eins og við eigum eru minningar margar og flestar eru þær góðar og skemmtilegar um Rulla, sem samt flutti snemma vestur á Bíldudal og bjó sér og sínum fal- legt hús og fallegan garð sem hann fékk verðlaun fyrir því allt- af var hann að gera garðinn sinn fallegan. Við minnumst þess líka þegar við bræður, ég og Guðjón, heim- sóttum hann á Patreksfjörð í vet- ur og fórum með hann í bíltúr niður á höfn og mikið var erfitt að kveðja hann og sáum við tár á hvarmi en samt var stutt í brosið og húmorinn. Við minnumst Rulla með mik- illi hlýju og Guðbjörgu eftirlif- andi eiginkonu hans biðjum við góðan guð um að gefa styrk í þessari miklu sorg. Innilegar samúðarkveðjur sendum við einnig til elsku Bjarna, Möggu, Friðriks og Siggu Sollu og maka og barna- barnanna allra. Mikið var gott að sjá hvað þið nutuð ykkar vel öll samankomin á Bíldudal síðustu dagana hans Rulla. Það hefur honum þótt vænt um því þið voruð honum allt. Við Guðný þökkum þér, kæri vinur og bróðir, fyrir allt og allt og vonum að nú sért þú kominn á stað þar sem enginn er veikur og þú ert örugglega kominn í ein- hver stór verkefni hjá þeim sem öllu ræður. Ég veit að pabbi og mamma Runólfur Ingólfsson HINSTA KVEÐJA Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku afi, og takk fyrir allt. Þín afa- stelpa, Karen Sól. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS HÓLM JÓNSSONAR, fyrrverandi sérleyfishafa, Klettahlíð 14, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Ási fyrir góða umönnun. Una Runólfsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Helgi Hannesson, Helga Guðný Kristjánsdóttir, Björn Birkisson, Runólfur Þór Jónsson, Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Harpa Kristjánsdóttir, Atli Einarsson, Gígja Kristjánsdóttir, Birkir Kristjánsson, Valgý Arna Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, unnusti, bróðir og mágur, JÓN VALGEIR GÍSLASON, Neshömrum 18, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 25. júlí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 12. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Berglind Eygló Jónsdóttir, Gunnar Þórisson, Birna Björg Gunnarsdóttir, Björn Þórður Jónsson, Brynja Guðmundsdóttir, Sigurður Valur Sveinsson, Gunnþórunn Birna Gísladóttir, Ólafur Waage, Elías Bj. Gíslason, Halla Margrét Tryggvadóttir, Magnús Þorkell Gíslason, Rósa Rögnvaldsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, BALDUR SIGURÐSSON, Tunguvegi 32, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 2. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. ágúst kl. 13.00. Matthildur Finnbogadóttir, Hörður Ómar Guðjónsson, Eyrún Anna Ívarsdóttir, Þorgerður Baldursdóttir, Vilhjálmur Guðbjörnsson, Sigurður Óli Baldursson, Gísli Baldursson, Ásta Sólrún Guðmundsdóttir, Kristinn Óskar Baldursson, Heimir Baldursson, Hlín Baldursdóttir, Víðir Sigurðsson, Þórdís Baldursdóttir, Vilborg Baldursdóttir, Solveig Baldursdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ARNMUNDAR ÓSKARS ÞORBJÖRNSSONAR, Hraunbúðum, áður Brimhólabraut 6. Sérstakar þakkir til samferðafólks í Vestmannaeyjum fyrir vináttu og hlýhug. Ásta Arnmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Gyða M. Arnmundsdóttir, Viðar M. Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru GYÐU KRISTÓFERSDÓTTUR, Maríubakka 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og á krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaka hjúkrun og hlýju. Melkorka Ýr Jóhannsdóttir, Alda Guðmundsdóttir, Kristófer Valgeir Stefánsson, Stefán Kristófersson, Katrín Svava Jónsdóttir, Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Jón Valgeir Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.