Morgunblaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Eggert
Fjölsótt Um 35 sjálfboðaliðar starfa fyrir göngu- og öryggisstjórnina á göngudaginn, enda að mörgu að huga.
verið ánægt með hana; í dag hafi fólk
meiri möguleika á því að setjast niður
á meðan það fylgist með göngunni,
útsýnið yfir gönguna sé betra og ör-
yggismálin komin í betra horf.
Áhuginn á gleðigöngunni er
gríðarlega mikill og hafa 80-90 þús-
und manns fylgst með viðburðinum í
miðborginni undanfarin ár. Hvað
beina þátttöku í göngunni varðar get-
ur hver sem er sótt um að fá að vera
með en um hana gilda þó ákveðnar
reglur.
„Við í raun og veru skipuleggj-
um sárafá atriði í göngunni; það eru
nokkur atriði sem eru á okkar vegum
eins og stóri regnbogafáninn og
lúðrasveitin en annars er þetta bara
fólk; félög, fjölskyldur og ein-
staklingar sem sækja um að fá að
taka þátt. Og einu reglurnar sem
gilda hjá okkur eru öryggisreglur;
þ.e. það verður að hlíta ákveðnum
reglum, sérstaklega hvað varðar bíla,
og í öðru lagi þá erum við með reglur
varðandi auglýsingar, það er strang-
lega bannað að auglýsa fyrirtæki í
göngunni,“ segir Ásta Kristín.
Fólk má vera alls konar
Hún segir að göngustjórnin geri
einnig þá kröfu að atriðin í gleðigöng-
unni tengist hinsegin málefnum á ein-
hvern hátt. Hún segir að gangan í ár
verði mjög fjölbreytt; pólitísk atriði í
bland við glamúr og allt þar á milli.
Spurð að því hvort hún sjái fyrir sér
að ákvörðun yrði tekin um að sleppa
göngunni eitthvert árið svarar hún
neitandi og segir m.a. enn fulla þörf
fyrir hana.
„Maður heyrir oft hvort það sé
ekki bara komið nóg; samkyn-
hneigðir séu komnir með öll þau laga-
legu réttindi sem þeir þurfa á að
halda og svo framvegis. Að við eigum
bara að hætta þessari sýniþörf og
frekju, eins og sumir kalla það. En
málið er bara að það eru ennþá for-
dómar í samfélaginu,“ segir Ásta
Kristín. Þá sé full ástæða til að fagna
fjölbreytileikanum.
„Það þurfa ekki allir að vera eins
þótt þeir hafi sömu réttindi. Þannig
að við erum í raun að fagna því að fólk
megi vera alls konar og þurfi ekki að
falla í sama formið. Og það er full þörf
á því og það hjálpar öllum held ég,
ekki bara samkynhneigðum og trans-
fólki eða þeim sem við setjum undir
hinsegin regnhlífina. Ég held að það
hjálpi öllum að mega vera eins og þeir
vilja.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Prófaðu heilsurúmin
í Rúmfatalagernum
Þú sefur betur á Gold heilsurúmi frá okkur, bæði vegna þægind-
anna og verðsins. Þú átt það skilið! Komdu og prófaðu úrvalið hjá
okkur og láttu gæðin koma þér þægilega á óvart!
www.rumfatalagerinn.is
Láttu gæðin koma þér
þægilega á óvart
Rafmagsnrúm – verð frá 99.950 kr.
Rúm ámynd
Höie rafmagnsrúm
verð pr. stk. 299.950
Gerið gæða-
og verðsamanburð!
„Við munum horfa yfir Laugardalinn
frá holtinu við Áskirkju og þá sjáum
við hvað dalurinn hefur þróast mikið
og hvað gróskan hefur aukist á und-
anförnum árum,“ segir Hildur Arna
Gunnarsdóttir, verkefnastjóri í
Grasagarði Reykjavíkur, um garða-
göngu um Laugardal og Laugarás
sem farin verður kl. 10 á morgun. Að
göngunni standa Grasagarðurinn,
Garðyrkjufélag Íslands og íbúa-
samtök Laugardals og þátttaka er
ókeypis.
Gangan hefst í Grasagarðinum og
að sögn Hildar verða gerð stutt stopp
í skrúð-, rósa- og aldingörðunum en
þaðan verður rölt eftir Sunnuvegi
upp á Laugarásveg, þar sem farið
verður inn í einkagarð Bryndísar
Jónsdóttur, sem hún ræktaði upp
með manni sínum Snæbirni Jón-
assyni heitnum. „Garðurinn ber þess
merki hvað þau sinntu honum vel,“
segir Hildur en í honum er að finna
fágætar plöntur, lyngrósir, sígræna
runna og annan áhugaverðan gróður.
Frá garði Bryndísar verður gengið
upp á holtið við Áskirkju en þaðan
verður farið eftir Vesturbrún og niður
að einkagarði Ragnhildar Þórarins-
dóttur og Bergs Benediktssonar, sem
umlykur Gamla pósthúsið. Sá garður
þykir ævintýralega skemmtilegur og
geymir m.a. fjölda gamalla og nýrra
trjáa og úrval fjölæringa.
„Gangan er fyrir allt garð-
áhugafólk, áhugafólk um garðmenn-
ingu og borgarlíf og göngutúra. Þetta
verður skemmtilegt,“ segir Hildur.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
Grasagarðurinn, Garðyrkjufélagið og
íbúasamtökin standa að gönguferð
en að sögn Hildar verða þær fleiri.
„Við sjáum fyrir okkur að framhald
verði á, að við verðum með svona
sameiginlegar hverfistengdar göng-
ur, þar sem farið verður inn í almenn-
ingsgarða og einkagarða og horft yfir
þróun gróðurs í hverfinu,“ segir hún.
holmfridur@mbl.is
Gengið um gróðursælan Laugardalinn
Ljósmynd/Grasagarður Reykjavíkur
Gægst í alls konar garða