Morgunblaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 6
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Hvar er mitt Ísland?“ skrifar dr.
Ulrike Friedrich, verkefnastjóri
hjá þýsku geimvísindastofnuninni, í
bréf til vinar síns á Íslandi, Ólafs B.
Schram leiðsögumanns, þar sem
hún lýsir þungum áhyggjum sínum
af íslenskri ferðaþjónustu eftir
heimsókn til Íslands í sumar, þá
tíundu frá árinu 1995.
Í bréfinu lýsir hún upplifun sinni
frá ferðum um Námaskarð, Húsa-
vík, Jökulsárlón og Land-
mannalaugar. Þar hafi alls staðar
verið yfirfullt af ferðamönnum,
bílastæðin troðfull og hún t.d. orðið
að bíða í tvo tíma eftir borði á veit-
ingastað á Húsavík.
„Ég hef skilning á því að ferða-
þjónustan er mikilvæg atvinnu-
grein fyrir Íslendinga en er mark-
miðið að Ísland verði Mallorka
norðursins?“ spyr Ulrike enn-
fremur í bréfinu.
Þykir vænt um Ísland
Í samtali við Morgunblaðið segist
henni þykja vænt um Ísland og Ís-
lendinga og af þeim sökum vilji hún
deila upplifun sinni og áhyggjum af
þróun ferðaþjónustunnar og hvaða
áhrif fjölgun ferðamanna er að hafa
á landið.
„Ég ætla ekkert að fara að segja
Íslendingum fyrir verkum en sem
almennur ferðamaður sem elskar
Ísland hef ég fullan rétt til að segja
mitt álit. Ef ég væri Íslendingur
myndi ég hafa ástæðu til að hafa
áhyggjur og koma þeim á framfæri
við stjórnvöld. Hvert vilja Íslend-
ingar stefna? Það þarf að vera ein-
hver stefna til staðar þannig að
ferðaþjónustan fái ekki að vaxa al-
gjörlega stjórnlaust. Að öðrum
kosti eyðileggst hún og ferðamenn
munu fara eitthvað annað í leit að
fallegu og rólegu umhverfi og nátt-
úru,“ segir Ulrike, sem er alvarlega
að íhuga að ferðast næst til staða
eins og Grænlands eða Svalbarða.
Hún muni þó að sjálfsögðu koma
aftur til Íslands en eigi ekki eins
auðvelt með að mæla með Íslands-
ferð við vini sína, að minnsta kosti
muni hún segja þeim að koma ekki
hingað yfir hásumarið, frekar að
vori eða hausti til.
Gríðarlegar breytingar
Ulrike Friedrich kom fyrst til Ís-
lands árið 1995 og heimsóknin í
sumar var sú tíunda, sem fyrr seg-
ir. Síðast kom hún 2011 og þar áður
2010. Hún segir gríðarlega miklar
breytingar hafa átt sér stað á land-
inu á þessum tíma.
„Ég hef allan þennan tíma mælt
eindregið með því við vini mína og
samstarfsfélaga hérna í Þýskalandi
að ferðast til Íslands og skoða þar
villta náttúru og dásamlegt lands-
lag. Ísland er mjög vel þróað sam-
félag með sterkum innviðum og
loftslagið þægilegt og heilnæmt.
Byggðirnar eru dreifðar og umferð-
in ekki verið svo mikil. Núna hafa
breytingarnar verið svo miklar að
þær eyðileggja eða takmarka þessa
upplifun ferðamannsins, að mínu
mati. Á helstu ferðamannastöðum
er alltof mikið af fólki,“ segir hún.
Orðið eins og í Þýskalandi
Hennar helsta áhugamál eru
fuglaskoðun, gönguferðir og nátt-
úrskoðun, enda líffræðingur að
mennt. Hún segir að í fyrstu ferð-
um sínum hafi hún meira ekið um
malarvegi og þá hafi verið auðvelt
að stoppa í vegkanti og virða fyrir
sér fuglalífið og náttúruna. Um-
ferðin hafi verið minni og hægari
en nú sé þetta orðið nánast ómögu-
legt nema í óbyggðum.
„Núna er búið að malbika alla
vegi og ökuhraðinn orðinn mjög
mikill. Þetta er eiginlega bara orðið
eins og hérna í Þýskalandi. Mér
fannst til dæmis ekkert gaman að
koma á bílastæði yfirfullt af stórum
rútum, bílum og fjölda fólks.
Kannski hljómar þetta eins og ég
sé sjálfselsk en þetta er bara mín
skoðun og upplifun,“ segir hún og
bendir á að í sumar hafi vinur sinn
verið með í för, í sinni fyrstu ferð til
Íslands.
Urðu fyrir vonbrigðum
„Ég var áður búin að segja hon-
um hvað Ísland væri stórkostlegt
en hann varð mjög undrandi að sjá
allan þennan fjölda af ferðamönn-
um. Við áttum ekki von á þessu og
urðum fyrir dálitlum vonbrigðum.“
Ulrike segist hafa ferðast til Ís-
lands það oft að hún viti vel hvaða
staðir eru vinsælastir og hvar helst
sé að finna rólegra umhverfi. En
núna sé þetta að breytast og um-
ferðin að dreifast meira um landið.
Nefnir hún Vestfirði sem dæmi.
Eitt sumarið hafi hún tekið jeppa á
leigu og ekið þar um og farið í
gönguferðir. Nú séu mun fleiri
ferðamenn þar og skemmti-
ferðaskipin fjölgað komum sínum
þangað.
„Þetta er líka spurning um
hvernig ferðamenn Íslendingar
vilja fá til landsins. Við höfum
dæmi um önnur lönd og eyjar, eins
og Mallorka, sem hafa orðið mjög
vinsælar og æ fleiri ferðamenn
komið þangað. Þetta hefur haft það
í för með sér að sífellt ódýrara
verður að ferðast þangað og náttúr-
an hefur ekki þolað allan þennan
fjölda,“ segir Ulrike.
Ísland að verða Mallorka norðursins?
Þýskur ferðamaður hefur miklar áhyggjur af þróun ferðaþjónustunnar á Íslandi Hefur komið
tíu sinnum til Íslands Segir fjölgun ferðamanna geta fælt aðra frá Íhugar Grænlandsferð næst
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Haust 9 8. - 15. október
Mósel & Rín
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Töfrandi ferð til Tríer, elstu borgar Þýskalands og hinnar
öldnu borgar Rómverja, sem er rík af sögu og fornminjum.
Glæsilegar ferðir eru frá Tríer m.a. til Bernkastel, perlu
Móseldalsins, Koblenz þar sem árnar Mósel og Rín
mætast og til yndislegu Lúxemborgar.
Verð: 194.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Aðalsteinn Jónsson
„Það er frábært að fá að taka þátt í
Handverkshátíðinni. Móttökurnar
eru alveg hreint út sagt stórkostleg-
ar,“ sagði Erling Markús Andersen
módelsmiður.
Hann er með bátamódel í öllum
stærðum og gerðum til sýnis á
Handverkshátíðinni í Eyjafirði sem
hófst á fimmtudaginn. Þetta er í
fyrsta skipti sem hann tekur þátt í
téðri hátíð og stefnir á að mæta aft-
ur að ári „ef guð lofar“ eins og hann
kemst að orði.
„Ég var einmitt að selja einn bát
rétt áður en þú hringdir,“ sagði Er-
ling. Hann hætti nýverið að vinna og
ver öllum stundum í að smíða mód-
elbáta. Hann var 12 ár til sjós en
þess má geta að faðir hans og afi
voru báðir skipasmiðir. Erling sagði
í gær að straumurinn hefði verið
stöðugur á hátíðina og eflaust mætti
búast við meiri fjölda yfir helgina.
„Karlarnir veita þessu mesta at-
hygli. Þetta eru leikföng fyrir full-
orðið fólk,“ sagði Erling kíminn.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Handverkshátíð Margt var um manninn á Handverkshátíðinn í Eyjafirði sem stendur yfir til sunnudags. Báta-
módel vöktu athygli gesta á besta aldri. Fyrir miðri mynd stendur módelsmiðurinn Erling Markús Andersen.
„Leikföng fyrir fullorðið fólk“
Dr. Ulrike Friedrich hefur jafn-
framt áhyggjur af gjaldtöku á
einstaka ferðamannastöðum en
hún var rukkuð um gjald við
Námaskarð í sumar. Hún segir
þetta fyrirkomulag geta skaðað
ferðaþjónustuna á Íslandi og
fælt ferðamenn frá.
„Ég veit til þess að víða um
heim er farið að innheimta
gjald í þjóðgörðum, eins og í
Bandaríkjunum og Afríku. Þá
geturðu dvalið þar um lengri
tíma, jafnvel einhverja daga, en
ekki aðeins í nokkrar mínútur
eða klukkutíma til að skoða
hveri eins og við Námaskarð,“
segir hún og telur vænlegra að
tekjur af viðskiptum við ferða-
menn almennt verði af stjórn-
völdum notaðar til að sinna
viðhaldi og aðstöðu á ferða-
mannastöðum.
Fælir ferða-
menn frá
GJALDTAKAN
Ljósmynd/Heijo
Íslandsvinur Ulrike Friedrich hefur ferðast tíu sinnum til Íslands og elskar land og þjóð, er t.d. meðlimur í Þýsk-
íslenska vináttufélaginu í Köln og á marga vini hér á landi. Hér er hún í þoku við rætur Snæfellsjökuls í sumar.