Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Daun leggur af búrhvalshræinu
sem rak upp í fjöru í Skarðsvík í
Trékyllisvík á Ströndum sl. þriðju-
dag. Verið er að athuga möguleika
á að draga hræið á haf út og sökkva
því.
Eigendur rekahlunninda, bænd-
urnir á Finnbogastöðum, skáru
kjálkann úr búrhvalnum. Guð-
brandur Óli Albertsson á Finn-
bogastöðum segir að aðeins hafi
verið hringt til að spyrja um tenn-
urnar. Honum skilst að einhver
verðmæti geti verið í þeim. Þær eru
notaðar í handverk, meðal annars
eitthvað í skartgripi. Tennur eru
aðeins í neðri skolti hvalsins og sést
aðeins í hluta þeirra. Með rótinni
geta tennurnar þó verið yfir 20
sentimetrar og vegið á annað kíló.
Kjálkinn hefur verið grafinn í þeim
tilgangi að láta hann rotna svo
hægt sé að ná tönnunum úr.
Hafrannsóknastofnun heldur
skrá um hvalreka og reynir að ná
sýnum af flestum hvölum sem rek-
ur á land. Samkvæmt upplýsingum
þaðan hafa verið gerðar ráðstafanir
til að láta taka sýni af Skarðsvík-
urhvalnum til dna-rannsóknar. Þau
nýtast við rannsóknir í framtíðinni.
Hið íslenska reðasafn er með all-
marga búrhvalsreði til sýnis en
missti áhuga á hvalnum á Ströndum
þegar starfsmenn þess sáu á mynd-
um hvað hvalurinn er illa farinn.
Daun leggur af rotnandi hval-
hræinu. Guðbrandur telur líklegt að
hann hafi lengi verið dauður á reki
áður en hann endaði för sína í
Skarðsvík. Gat hafi verið á hvalnum
og innyfli dreifst um fjöruna og
grútarslikja sjáist. Þá séu hryggj-
arliðirnar farnir að detta út um gat-
ið. Menn hafa verið að geta sér til
um það að hvalurinn hafi orðið fyrir
stóru flutningaskipi.
Guðbrandur segir að ekki séu til
nógu stór tæki í sveitinni til að urða
hræið í fjörunni. Hann telur að það
verði skoðað hvort hægt sé að
draga það út með báti á flóði. Hval-
urinn er innan við sker og kletta og
segir Guðbrandur að nokkuð langt
tóg þurfi til að ná honum út. Eftir
er vandinn að sökkva honum svo
hann reki ekki á næstu fjöru.
Ljósmynd/Guðbrandur Óli Albertsson
Hvalskurður Bændur á Finnbogastöðum og aðstoðarmenn vinna við að ná kjálkanum. Ekki er einfalt að draga hræið út á sjó aftur vegna skerja.
Vilja draga hræið út á haf
Daun leggur af búrhvalshræinu í Trékyllisvík Kjálkinn skorinn úr og
tennurnar nýttar Ekki til nógu stórt tæki í Árneshreppi til að urða hræið
Tennur Kjálkinn hífður með traktor með ámoksturstækjum. Kristmundur
Kristmundsson heldur við. Reynt verður að gera verðmæti úr tönnunum.
Gleðiganga Hin-
segin daga og
hátíðarhöld
henni tengd fara
fram í dag.
Gangan leggur
af stað frá
Vatnsmýrarvegi,
nálægt BSÍ, kl.
14 og að henni
lokinni hefst há-
tíðardagskrá við
Arnarhól sem
stendur til kl.
17.30. Í tengslum við hátíðina er
búist við miklum fólksfjölda í
miðborginni og óhjákvæmilega
verða þar raskanir á bílaumferð.
Aðstandendur göngunnar vekja
athygli á því að götur verða lok-
aðar í kringum gönguleiðina og
hátíðarsvæðið frá kl. 12 á hádegi
og þar til hátíðardagskrá við
Arnarhól lýkur.
Bent er á að strætó mun ganga
allan daginn en áætlun verður þó
breytt meðan á götulokuninni
stendur. Sjá nánar á straeto.is.
Lokanir gatna vegna
Gleðigöngunnar
Í júlí var sæta-
nýting flug-
félagsins WOW
air 92% og er það
söluhæsti mán-
uður félagsins
frá upphafi.
Fluttir voru
72.573 farþegar í
júlí og hefur fé-
lagið flutt rúm-
lega 300 þúsund
farþega það sem af er árinu. Um er
að ræða 30% fjölgun farþega milli
ára, en 215.000 farþegar flugu með
WOW air fyrstu sjö mánuði ársins í
fyrra.
Þá voru brottfarir WOW air í 92%
tilvika á réttum tíma í júlí og hefur
stundvísi félagsins mælst yfir 90%
það sem af er árinu.
Félagið er nú með fjórar vélar í
flugflota sínum, þrjár Airbus A320,
árgerð 2005, og eina Airbus A319,
árgerð 2009.
92% sætanýting hjá
WOW air í júlí
Árangur Farþega-
fjöldi hefur aukist.
Allir fjallvegir Vegagerðarinnar á
hálendinu hafa nú verið opnaðir.
Vegna vatnavaxta er Öskjuleið
ófær nema fyrir breytta jeppa en
þeim sem vilja komast inn í Öskju
er bent á að fara veg 910 (Aust-
urleið), segir á veg Vegagerð-
arinnar.
Brúin á Geitá á Langjökulsvegi
(nr. 551) verður lokuð frá 12. ágúst
til 22. september vegna fram-
kvæmda.
Morgunblaðið/RAX
Vegur Hálendisvegir hafa verið opnaðir.
Búið að opna alla
hálendisvegi
Eldur kom upp í fiskvinnslu-
húsnæði í Grófinni 18 í Reykja-
nesbæ á sjöunda tímanum í gær-
morgun. Enginn var þá mættur til
vinnu en aftur á móti voru nokkrir í
herbergjum sem leigð eru út í við-
byggingu. Allir komust út og urðu
ekki slys á fólki.
Brunavarnir Suðurnesja voru
kallaðar á vettvang en vel gekk að
slökkva eldinn sem var ekki mikill,
segir á mbl.is. Húsnæði fiskvinnsl-
urnar er talvert skemmt eftir eld-
inn en m.a. þurfti að rjúfa þakið við
slökkvistörfin.
Eldur kom upp í fisk-
vinnslu í Reykjanesbæ
Búrhvalur er stærstur allra
tannhvala og raunar eina stór-
hvelið í þeim flokki hvala. Tarf-
urinn er mun stærri en kýrin, 8-
20 metrar á lengd, og vegur 20-
50 tonn. Tarfurinn sem rak á
land í Trékyllisvík er um 15
metrar á lengd.
Algengt er að 2-3 búrhvali
reki á fjörur hér á landi á ári, en
það er þó æði misjafnt milli ára.
Höfuð búrhvals er sérstakt í
laginu og hann hefur stærsta
heilabú sem nú þekkist í lifandi
dýri.
Neðri skoltur dýrsins er mjór
en getur borið 30 til 60 tennur.
Tennurnar geta orðið yfir 10
sentímetra langar hjá stórum
törfum og með rót getur tönnin
orðið yfir 20 sentimetrar og
vegið hálft annað kíló.
Búrhvalur lifir í öllum heims-
höfum. Til Íslands koma ung
karldýr og gamlir tarfar.
Stærstur
tannhvala
HVALREKI
Strípur
• WOW þekur grá hár
• WOW lýsir dökka rót
• WOW tekur augnablik
• WOW endist á milli þvotta
• WOW 6 litir
HÁR
Dreifingaraðili
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á
ÓMISSANDI Í TÖSKUNA
Þetta er það næsta sem þú getur ekki verið án!
BEAUTY
INSIDERS´CHOICE
W I N N E R
COSMETIC EXECUTIVE
WOMEN UK
2014
Rótarlitun
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
kort um lokanir