Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 25

Morgunblaðið - 09.08.2014, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ísraelsher hóf loftárásir á Gaza- svæðið að nýju í gær eftir að liðs- menn Hamas-samtakanna hófu flug- skeytaárásir á Ísrael. Að minnsta kosti fimm Palestínumenn lágu í valnum og tveir Ísraelar særðust. Hamas-menn skutu tveimur flug- skeytum á Ísrael áður en þriggja daga vopnahlé féll úr gildi í gær- morgun. Þeir skutu síðan tugum flugskeyta á Ísrael á sama tíma og Ísraelsher gerði loftárásir. Talsmaður Ísraelshers sagði flug- skeytaárásir Hamas-manna „óviðun- andi og óþolandi“. Hamas-samtökin neituðu að fram- lengja vopnahléið og sögðu að Ísrael- ar hefðu ekki orðið við kröfum þeirra, meðal annars um að umsátrinu um Gaza yrði aflétt og hundrað palest- ínskir fangar yrðu látnir lausir. Sam- tökin höfnuðu einnig kröfu Ísraela um afvopnun á Gaza-svæðinu. Talsmaður Hamas sagði að sam- tökin væru tilbúin að heyja langvinnt stríð gegn Ísrael. Hann sagði þó Hamas-menn vilja halda áfram við- ræðum um vopnahlé. Fulltrúar Ísraelsstjórnar sögðust hafa hætt viðræðum fyrir milligöngu Egypta og lögðu áherslu á að Ísrael- ar myndu ekki semja á meðan þeir sættu flugskeytaárásum. Fréttaveitan AFP hefur eftir fréttaskýrendum að Hamas-menn kunni að hafa ofmetið stöðu sína og leikið af sér með því að halda flug- skeytaárásunum áfram í hættuspili sem gæti haft hörmulegar afleiðing- ar fyrir íbúa Gaza-svæðisins. Nathan Thrall, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, telur það liggja í augum uppi að Ísraelar verði ekki við kröfum Hamas-manna. „Spurningin er hversu mikla til- slökun þeir fá,“ hefur AFP eftir Thrall. Segja stöðu Hamas veika Naji Charab, stjórnmálaskýrandi við Al-Azhar háskóla á Gaza, segir að Hamas-menn vonist eftir einhvers konar málamiðlun sem geri þeim kleift að hætta árásunum „með sæmd“. Þótt Hamas-mönnum hafi tekist að fella fleiri ísraelska her- menn en þeir bjuggust við sé staða þeirra veik vegna þess að þeir hafi misst stuðning Egyptalands eftir að Mohammed Morsi var steypt af stóli forseta fyrir rúmu ári. Hamas á rætur að rekja til íslamskra samtaka Morsis, Bræðralags múslíma. Kobi Michael, stjórnmála- fræðingur við Ariel-háskóla á Vesturbakkanum, tekur í sama streng. Hann telur að Egyptar séu nú mikilvægustu bandamenn Ísr- aela. Ísraelsher svaraði árásum Hamas  Blóðsúthellingar hófust að nýju á Gaza eftir þriggja sólarhringa vopnahlé AFP Á flótta Palestínsk fjölskylda flýr heimili sitt í Gaza-borg eftir að loftárásir Ísraelshers hófust að nýju í gær. Vonast eftir vopnahléi » Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í gær- kvöldi að líkur væru á að sam- komulag næðist bráðlega um að framlengja vopnahléið sem féll úr gildi í gærmorgun. » A.m.k. 1.922 Palestínumenn hafa beðið bana í árásum Ísraelshers, skv. síðustu frétt- um í gærkvöldi. Á meðal þeirra sem hafa látið lífið eru um 450 börn, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Verð 34.900.- Verð nú 27.600.- 115 stk. eftir Verð 52.900.- Verð nú 34.900.- 34 stk. eftir Verð 67.500.- Verð nú 29.900.- 24 stk. eftir Verð 34.900.- Verð nú 22.900.- 64 stk. eftir af bláu og orange Verð 52.500.- Verð nú 34.900.- 135 stk. eftir Verð 67.500.- Verð 26.850.- Verð nú 19.900.- 45 stk. eftir upp selt 20%-50% afsláttur Takmarkað magn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.