Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 37

Morgunblaðið - 09.08.2014, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2014 ✝ Tryggvi Jóns-son fæddist 11. mars 1925 í húsinu Ekru í Vest- mannaeyjum. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- mannaeyja 28. júlí 2014. Foreldrar Tryggva voru Jón Tómasson, f. 3.12. 1896, d. 28.9. 1953, og Steinunn Árnadóttir, f. 5.7. 1892, d. 6.9. 1971. Systkini Tryggva voru Trausti, f. 11.1. 1917, d. 2.1. 1994, Ása Guðrún, f. 25.9. 1922, d. 17.1. 2010, Mar- grét, f. 6.2. 1924, d. 25.12. 1992, Bragi, f. 30.8. 1931, d. 12.3. 2004, og Tómas, f. 13.6. 1933, d. 6.8. 1947. Hinn 13. apríl 1963 kvæntist Tryggvi eftirlifandi eiginkonu sinni, Nicholínu Rósu Magnúsdóttur frá Ísafirði, f. 7.4. 1932. Foreldrar hennar mannaeyja. Frá því hann var 7 til 14 ára var hann í sveit hjá frændfólki sínu í Norður- Hvammi í Mýrdal. Tryggvi var á sjó sem vélstjóri á ýmsum bátum á sínum yngri árum. Í byrjun árs árið 1945 hóf Tryggvi nám í vélsmíði hjá Vél- smiðjunni Magna í Vest- mannaeyjum og starfaði þar í mörg ár. Í félagi við átta aðra stofnaði Tryggvi Vélsmiðjuna Völund árið 1958 og var þar yf- irverkstjóri þar til smiðjurnar tvær sameinuðust árið 1980 í Skipalyftuna ehf. Þar starfaði Tryggvi til 75 ára aldurs, lengst af sem yfirverkstjóri en síðustu árin sem lagerstjóri verkfæralagers. Á yngri árum tók Tryggvi þátt í skátastarfi, stundaði hnefaleika og söng bassa með kórum í Vest- mannaeyjum. Rúmt síðasta árið dvaldi Tryggvi á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Útför Tryggva fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 9. ágúst 2014, kl. 14. voru Magnús Ei- ríksson, f. 24.6. 1899, d. 3.2.1985, og Jóna Kristín Guðjónsdóttir, f. 6.3.1907, d. 9.6. 1980. Þau bjuggu allan sinn búskap að Brekkugötu 9 í Vestmannaeyjum. Börn þeirra eru 1) Magnús, f. 18.12. 1964, kvæntur Ragnhildi Eiríksdóttur, þeirra sonur er Tryggvi Freyr og dæt- ur Ragnhildar eru Gunndís Eva í sambúð með Tómasi Guð- mundssyni, barn þeirra er Guð- mundur Tryggvi, og Helga Rún Einarsdætur. 2) Helga, f. 22.2 1966, dætur hennar eru Rósa Sólveig Sigurðardóttir og Kar- en Rut Gísladóttir. Tryggvi ólst upp í húsinu Mörk við Hásteinsveg og stund- aði nám við Barnaskóla Vest- Það er erfitt að kveðja elsku pabba. Minningarnar hrannast upp og ég sé pabba ljóslifandi fyrir mér. Leiðandi litlu stelpuna sína fyrir löngu síðan, og þegar ég nennti ekki að labba hélt hann á mér. Gleðin í augunum hans þegar hann sá stelpurnar mínar í fyrsta sinn. Rólegheitin við eld- húsborðið heima, pabbi að lesa blöðin með aðra höndina á enn- inu og kaffibolla í hinni. Smiðju- lyktin af fötunum hans þegar hann kom heim úr vinnu og smiðjuskíturinn á höndunum, sem hann sagði alltaf að væri hreinn skítur. Hann var dætrum mínum ein- staklega góður afi, eiginlega meira en afi þar sem þær áttu sitt annað heimili á Brekkugöt- unni. Í þeirra huga gat afi allt. Þolinmóður og blíður afi sem hafði alltaf nægan tíma. Pabbi lét ekki mikið á sér bera. Aðspurður sagðist hann tala þegar hann hefði eitthvað að segja. Síðasta árið voru bryggj- urúntar fastur partur af tilver- unni hjá okkur. Þá ræddum við það sem var í gangi við höfnina og hann sagði mér sögur. Það var nú þannig að þó að pabbi væri ekki maður margra orða bjó hann yfir frásagnargáfu sem ég fékk að njóta í bíltúrunum okkar. Það var gott að spjalla við pabba. Rétt eins og það var gott að þegja með honum. Sumt vildi pabbi hafa í föstum skorðum og fannst óþarfi að breyta því sem virkaði vel. Eitt skiptið sem Rósa dóttir mín fór með afa sinn í bíltúr ók hún í kringum Helgafell, þá spurði hann hvert hún væri eiginlega að fara. Hún fór nefnilega öfugan hring miðað við það sem við vor- um vön. Hann vann við það sama svo til alla ævi, bjó í tæp 60 ár í húsinu sem hann byggði, var gift- ur sömu konunni og átti alltaf Toyotu. En þrátt fyrir fastheldni á margt var hann ekki gamal- dags í skoðunum. Mannréttindi voru honum ofarlega í huga og fannst honum allir vera jafn réttháir og eiga gott skilið. Það var pólitíkin hans; jafnrétti og manngæska. Alla ævi tók pabbi mikla ábyrgð. Hann var lengst af yf- irverkstjóri í smiðjunum sínum og hugsaði einstaklega vel um fólkið sitt. Þegar heilsan fór versnandi fannst honum stund- um erfitt að leita til stelpunnar sinnar til þess að dytta að ein- hverju smálegu. Þar sem pabbi hafði nú kennt mér vel og reynst mér betri en enginn í fram- kvæmdum var ánægjulegt að geta aðeins borgað til baka. Pabbi var fróðleiksfús og víð- lesinn og þau mamma ferðuðust mikið bæði innan lands og utan. Hann var stálminnugur og allt fram á síðasta dag sagði hann mér sögur úr Mýrdalnum þar sem hann var í sveit sem strákur. En sveitinni sinni unni hann heitt, rétt eins og Eyjunum. Það sem hann skilur eftir sig er minn- ing um traustan og einstaklega góðan mann, sem stóð með litlu stelpunni sinni sama hvað henni datt í hug. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku pabbi. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða þér í öll þessi ár og það verður undarlegt að hitta þig ekki eða heyra í þér daglega. Ég ylja mér við minningarnar og ætla að vanda mig við að viðhalda þinni pólitík, að vera góð og traust manneskja. Elsku mamma, missir þinn er mikill og megi allir góðir vættir styðja þig og styrkja. Þín dóttir, Helga. Faðir minn, Tryggvi Jónsson, var ákveðinn klettur í mínu lífi, ávallt til staðar, soldið fastur í forminu, vildi hafa skipulag og reglu á hlutunum. Pabbi var ljónskarpur, gríðarlega mann- glöggur og minnugur á menn og málefni. Pabbi var þessi trausti faðir sem leysti úr öllum vanda- málum stórum sem smáum og ef eitthvað bilaði þá gerði hann við sjálfur. Pabbi fylgdist mjög vel með málefnum líðandi stundar, öllum fréttum og fréttatengdu efni. Hann var mikill íþróttaáhuga- maður. Fyrsta stóra íþróttamótið sem hann fylgdist með voru Ól- ympíuleikarnir í Berlín 1936. Pabbi safnaði myndum af íþróttahetjunum og límdi í möppu sem enn er til. Ef ég missti af einhverjum íþróttavið- burði í sjónvarpinu hringdi ég í pabba og fékk greinargóða lýs- ingu hjá honum. Það var alltaf ljómandi blik í augum pabba þeg- ar við fórum um Mýrdalinn eða töluðum um Mýrdalinn „sveitina hans“. Pabbi vann mikið og oft voru vinnutarnirnar langar og því samveran með fjölskyldunni lítil. Því tók pabbi sér ávallt góð sum- arfrí sem notuð voru í ferðalög innanlands og erlendis. Pabbi hafði mjög gaman af því að ferðast og hitti einmitt móður mína Nicholínu á ferðalagi um hálendi Íslands. Þau voru ólík en áttu vel saman, mamma málglöð skvetta og hann yfirvegunin upp- máluð. Meðal skemmtilegra ferðalaga sem við fórum var 19 nátta tjaldferðalag um Ísland þegar ég var á sjöunda ári og Helga systir fimm ára. Tjald- borgar tjald, Primus, Ora fjöl- skyldan eins og hún lagði sig og allir þéttbýlisstaðir frá Höfn til Ísafjarðar norðurleiðina skoðað- ir. Endalausir fróðleiksmolar um allt sem á vegi varð, söngur og ryk. Þegar gaus í Eyjum kom í ljós yfirvegun pabba, sallarólegur bað hann mömmu að hella upp á kaffi meðan hann tók rúnt austur á eyju til að kanna aðstæður. Fermingarárið mitt fékk ég vinnu í Vélsmiðjunni hjá pabba. Samstarfið gekk vel, pabbi var verkstjórinn og ég varð einn af peyjunum. Unnum við saman í alls 16 ár í Völundi og Skipalyft- unni. Þegar Helga systir eignaðist Rósu Sólveigu og Karen Rut sinnti pabbi þeim vel og gerði nánast allt fyrir litlu skvísurnar sínar. Þegar ég kynntist Ragnhildi konu minni varð þeim vel til vina og dætrum Ragnhildar, Gunndísi Evu og Helgu Rún, tók hann fagnandi enda kölluðu þær hann ávallt afa og minnast hans með mikilli hlýju. Þegar við Ragnhild- ur eignuðumst son kom ekkert annað til greina en að nefna hann Tryggva, þeir nafnarnir náðu vel saman og ekki var farin ferð til Eyja án þess að fara í sprönguna þar sem litli Tryggvi sýndi gamla manninum leikni sína við að spranga. Það er nokkuð skondið að okkur feðga vantaði báða þrjá mánuði í 40 árin þegar fyrsta barn okkar fæddist. Þegar Gunn- dís Eva eignaðist son fyrir rúmu ári var hann skírður Guðmundur Tryggvi. Pabbi dvaldi þá á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja, þegar ég hringdi og sagði honum nafn drengsins klökknaði pabbi og ég hreinlega fann hvernig hann ljómaði. Pabbi kenndi mér að bera virðingu fyrir öllum og koma fram við alla á jafnréttisgrund- velli og fyrir það og allt annað þakka ég. Blessuð sé minning þín, Tryggvi frá Mörk. Magnús Tryggvason. Það var á vormánuðum 1977 að ég hitti Tryggva fyrst, þegar kærastinn minn kynnti mig fyrir móðurbróður sínum og fjöl- skyldu. Það fór vel á með okkur frá fyrstu stundu og Tryggvi var það sem kom næst því að vera tengdapabbi minn. Það er sterk- ur svipur með þeim frændum og einhverju sinni hafði ég orð á því að ég væri glöð að vita hvernig Örn Bragi myndi líta út sem gamall maður. Það hnussaði í Tryggva, sem var auðvitað ekki gamall maður þá, rétt skriðinn yfir fimmtugt. Tryggvi var handlaginn og var gaman að sjá hve natinn hann var í viðhaldi og umhirðu við Brekkugötu 9, húsinu sem hann byggði sjálfur með aðstoð Braga bróður síns. Nönnu sinni kynnt- ist hann á fjöllum og vestfirska hjúkrunarkonan flutti sig til Eyja. Trúa má að það hafi verið gleði og hamingja á Brekkugöt- unni þegar fór að heyrast tif í smáum fótum, þegar Magnús og Helga komu til sögunnar. Ekki minnkaði gleðin þegar við bætt- ust dætur Helgu, þær Rósa Sól- veig og Karen Rut. Svo kom Ragnhildur, eiginkona Magnúsar og dætur hennar, þær Gunndís Eva og Helga Rún, inn í fjöl- skylduna. Svo bættist Tryggvi Freyr í hópinn. Hópurinn hans Tryggva var orðinn fjölmennur og Tryggvi fylgdist með hvað all- ir höfðu fyrir stafni, í leik og starfi, jafnt í Eyjum, á Selfossi og í Ungverjalandi, þar sem Gunn- dís Eva bjó sl. vetur með unnusta og litla Guðmundi Tryggva. Tryggvi var mannglöggur með afbrigðum, minnugur, var heima í öllu sem rætt var og fylgdist vel með til hinstu stundar. Hann var ekki maður margra orða, en hlýj- an í þéttu handartakinu og brosið í augunum sagði til um hugann. Tryggvi hefur verið stór hluti af minni fjölskyldu frá upphafi, ver- ið mér sem tengdafaðir og börn- um mínum afi. Allar ferðir okkar til Vestmannaeyja fólu í sér heimsókn á Brekkugötuna. Þær eru líka margar stundirnar sem við höfum átt saman á heimili okkar á Selfossi, þegar leið þeirra hjóna lá upp á land. Mat- ar- og kaffiboð eða bara mola- sopi. Alltaf gott að hittast og eiga stund saman. Taka púlsinn hjá frænda og fjölskyldu í Sílatjörn- inni, fylgjast með framkvæmdum á heimilinu og með lífinu al- mennt. Skemmtilegar samveru- stundir sem ljúft er að hugsa til, nú þegar höfðinginn er allur. Blessuð sé minning Tryggva í Mörk. Guðný Ingvarsdóttir. Tryggvi Jónsson ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, vinur og afi, JENS G. HALLGRÍMSSON múrari, Auðbrekku 8, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 1. ágúst. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 11. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Tinna Jensdóttir, Tara Jensdóttir, John F. Aikman, Rúnar P. Gígja, Baldur Þór Guðmundsson, Ólöf H. Aðalsteinsdóttir og barnabörn. ✝ Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNI THEODÓRSSON, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 29. júlí. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 11. ágúst kl. 13.00. Þórður Grétar Árnason, Vigdís Hjartardóttir, Hinrik Ingi Árnason, Oddný Steingrímsdóttir, Sigurður Þórarinn Árnason, Hafdís Jónsdóttir, Emanúel Júlíus Ragnarsson, Jófríður Ragnarsdóttir, Guðlaugur Björn Ragnarsson, Rósmarý Bermann og barnabörn. ✝ Ástkær bróðir minn og frændi okkar, JÓN ÁRNI VILMUNDARSON, loftskeytamaður og fyrrv. deildarstjóri hjá Landsímanum, Dunhaga 11, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00. Þórunn Vilmundardóttir, Kolbrún Baldursdóttir, Guðmundur Fr. Ottósson, Guðmundur Einarsson, Alda Elíasardóttir, Guðmundur B. Salomonson, Svava Benediktsdóttir, önnur frændsystkini og makar. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir, tengdadóttir og systir, STEINUNN BJÖRG STEINÞÓRSDÓTTIR, Skuggahlíð, Norðfirði, lést á heimili sínu föstudaginn 1. ágúst. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 12. ágúst kl. 14.00. Önundur Erlingsson, Dagmar Vigdís Viðarsdóttir, Kristinn Pálsson, Hulda Valdís Önundardóttir, Eiríkur R. Elíasson og börn, Herdís V. Guðjónsdóttir, Guðný Jónsdóttir, systkini hinnar látnu. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR, Teigagerði 1, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 31. júlí. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 15. ágúst klukkan 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Droplaugar- staða, banki: 526-14-400973, kt. 611108-0870. Magni S. Jónsson, Kristín Björnsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir, Jóhannes Kristinsson, Pétur Jónsson, Sigrún Ólafsdóttir, Borghildur Anna Jónsdóttir, Helga Björk Jónsdóttir, Daníel B. Gíslason, Áki Ármann Jónsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.