Morgunblaðið - 18.08.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdiwww.opera.is
Frumsýning
18. október kl. 20
25. október kl. 20
1. nóvember kl. 20
8. nóvember kl. 20
Sýnt í Eldborg í Hörpu
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
Miðasala hefst kl. 12 í dag
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að við drögum þá línu að fólk sem
komið sé yfir sjötugt fái ekki þá þjón-
ustu sem því ber er nokkuð sem ég
kannast alls ekki
við og er ekki á
stefnuskránni,“
segir Páll Matt-
híasson, forstjóri
Landspítalans.
Í pistli í
Morgunblaðinu
um helgina sagði
Styrmir Gunnars-
son, fv. ritstjóri,
Landspítalann
vera í erfiðri stöðu og að ekki væri
hægt að veita fólki þjónustu, svo sem
vegna hrönunar í augnbotnum,
hjartsláttaróreglu, blóðtappa og
blæðingum við heila. Þá fengju
krabbameinssjúkir eldri en sjötugir
ekki nauðsynlega meðferð á sjúkra-
húsinu.
Fjárveitingar ráða
Páll segir rétt hjá Styrmi að staðan
á Landspítala sé um margt þröng.
Enn skorti fjármagn til að taka upp ný
verkefni þó að unnið sé að mörgum
góðum verkefnum um þessar mundir.
Hvað varðar einstök atriði sem
Styrmir nefni skili auknar fjárveiting-
ar til tækjakaupa sér til dæmis í því að
verið sé að setja upp búnað sem geri
mögulegar æðaþræðingar við heila-
blóðfall. Rekstrarkostnaður bæði við
bakvaktir og æðaleggi þýði hins vegar
að ekki sé hægt að taka upp þessa
mikilvægu meðferð nema aukið
rekstrarfé komi til. Krabbameins-
lækningar séu í þröngri stöðu því fag-
fólk hafi vantað til starfa, en unnið sé
að lausn þess máls. Svona megi halda
áfram. Allt sé þetta þó undirorpið
fjárveitingum til sjúkrahússins.
Atvik ráða en ekki aldur
„Við sinnum öllum sem til okkar
leita og leysum úr málum eftir atvik-
um en ekki aldri sjúklings. Kunni
menn raunverulegt dæmi um slíkt vil
ég fá að heyra þau og taka málið upp
við viðkomandi starfsmenn. Stefnu-
mótun og forgangsröðun eru mikil-
væg en slíkt hlýtur að byggjast á víð-
tæku samráði og sátt. Tekið verður
mið af jafnræði, árangri og kostnaði
og þetta mun ekki snúast um aldurs-
takmarkanir,“ segir Páll Matthías-
son.
Vill fá raunveruleg dæmi
Aldur ræður ekki þjónustu á Landspítala Staðan er
þröng en öllu sinnt, segir forstjórinn Fé þarf í ný verkefni
Páll Matthíasson
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
„Hann hefur allt sitt líf verið óað-
skiljanlegur þáttur í íslensku djass-
lífi,“ segir Pétur Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri Jazzhátíðar
Reykjavíkur, um Vernharð Linnet,
en þakkargjörð hátíðarinnar í ár var
tileinkuð honum með sérstakri tón-
listardagskrá í gær.
„Hann er ákveðin loftvog á veðr-
áttuna í íslensku djasslífi. Vern-
harður vann ótrúlegt brautryðj-
endastarf með því að kynna
djassmúsík í gegnum Jazzvakningu.
Hann er á pari við Jón Múla Árna-
son hvað varðar kynningar- og
fræðslustarf um djasstónlist hér á
landi,“ segir Pétur.
Vernharður, sem verður sjötugur
í lok mánaðar, hefur helgað líf sitt
djassmúsíkinni. Hann var einn af
aðalframtaksmönnum Jazzvakning-
arinnar og sat um árabil í stjórn
Jazzhátíðar Reykjavíkur og var
framkvæmdastjóri hennar 1992–
1996. Þá hefur hann í áratugi haldið
úti útvarpsþáttum um djasstónlist
og verið helsti djassgagnrýnandi
þjóðarinnar, en hann hefur skrifað
djassgagnrýni fyrir Morgunblaðið
um áratugaskeið. Meðal þeirra sem
undanfarin ár hafa hlotið þakkar-
gjörðina eru Jón Múli Árnason,
Björn R. Einarsson og Árni Ísleifs-
son.
„Mér finnst stórkostlegt að hafa
fengið þessa viðurkenningu á starfi
mínu. Ég held að það séu fáir sem
hafa skrifað gagnrýni í hálfa öld sem
eiga jafnmikið af góðum vinum úr
tónlistarheiminum og ég,“ segir
Vernharður, en hann vinnur nú að
bók um djasssögu Íslands og er
bjartsýnn á framtíðar djass-
tónlistarinnar á Íslandi.
„Ungir menn hafa komið á sjónar-
sviðið sem hafa gjörbreytt sýn ungs
fólks á djassinn. Rytminn og sveiflan
verða alltaf til staðar,“ segir Vern-
harður.
Morgunblaðið/Eva Björk
Þakkargjörðin Vernharður Linnet með Pétri Grétarssyni, framkvæmda-
stjóra Jazzhátíðar Reykjavíkur, eftir tónleikana á þakkargjörðinni í gær.
Umvafinn djass-
tónlist í hálfa öld
Vernharður Linnet heiðraður
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Veisla Boðið var upp á kræsingar í tilefni dagsins.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Það ríkti hátíðarstemming á hafn-
arbakkanum á Þórshöfn þegar nýj-
asta skip Ísfélagsins, Sigurður
VE-15, sigldi inn höfnina í fyrsta
sinn á föstudagkvöldið og íbúar fjöl-
menntu niður að höfn til að fylgjast
með innsiglingunni. Daginn eftir var
almenningi boðið um borð að skoða
skipið og þiggja veitingar.
Stöðugur straumur fólks var við
höfnina meðan móttakan stóð yfir í
þessu nýja veiðiskipi, sem margir
Sigurður VE til Þórshafnar í fyrsta sinn
Heimamenn tóku á móti skipinu með gjöfum 120 manns á vöktum á háannatímanum
Tæki Hörður Már skipstjóri og Rafn Jónsson, rekstrarstjóri Ís-
félagsins á Þórshöfn, fara yfir fullkominn tæknibúnað skipsins.
líktu við glæsihótel og gátu svo vel
hugsað sér að vinna þar. Líklegt er
að færri en vilja komist í pláss á
skipinu sjálfu. Tólf manns eru í
áhöfninni núna en verða síðan átta
þegar full reynsla er komin á skipið
og veiðarnar. Öllu fleira fólk þarf svo
í landi til að vinna úr aflanum sem
þetta 3.000 tonna skip getur borið.
Fagnað með gjöfum
Fulltrúi sveitarstjórnar Langa-
nesbyggðar bauð skip og áhöfn vel-
komin til Þórshafnar og afhenti gjöf,
þar sem m.a. Langanesfjöllin eru
rist á silfurskjöld á svörtum steini.
Fleiri gjafir bárust Sigurði VE í
móttökunni, bækur og málverk.Til
þessa hefur skipið verið í prufu-
keyrslu og landað í smáslöttum í
heimahöfn í Vestmannaeyjum en að
sögn skipverja er þessi túr og lönd-
un á Þórshöfn í raun fyrsti „alvöru-
túr“ skipsins með hráefni til vinnslu.
Um 350 tonn af makríl
Vaktahlé hafði verið hjá starfs-
fólkinu í frystingunni á Þórshöfn í
nokkra daga meðan beðið var eftir
hráefni en vakt hófst aftur á mið-
nætti eftir löndun úr Sigurði, um 350
tonn af makríl. Skipið hafði verið á
veiðum vestur af landinu.
Sumarvertíðin á Þórshöfn hófst
seint í júlímánuði og unnið hefur
verið á tvískiptum tólf tíma vöktum,
hráefnið nær eingöngu makríll. Um
sextíu manns eru að jafnaði á vakt
svo 120 manns þarf til að manna
vaktirnar á þessum háannatíma, að
sögn verkstjóra. Mikið er um fram-
haldsskólanema sem sækja í þessa
uppgripavinnu sem er þeim mik-
ilvæg vegna skólakostnaðar kom-
andi vetrar. Ekki hefur þó tekist að
halda samfelldum vöktum frá vertíð-
arbyrjun og hlé hefur orðið á vinnu í
einhverja daga á milli vinnutarna. Í
fyrrasumar voru samfelldari vaktir
og nær látlaus vinnutörn.
Ísfélagið er stöðugt að endurnýja
vinnslubúnað sinn á Þórshöfn og
mikið af nýjum tækjakosti var sett
upp fyrir þessa vertíð í vinnslusaln-
um. Reiknað er með að sum-
arvertíðin standi eitthvað fram í
október, sagði verkstjóri hjá Ísfélag-
inu og vonað að hráefni berist reglu-
lega til að halda uppi stöðugum
sólarhringsvöktum.
Gjöf Hörður Már Guðmundsson skipstjóri tekur við gjöf og
árnaðaróskum frá Þorsteini Egilssyni, varaoddvita.