Morgunblaðið - 18.08.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Björn Bjarnason skrifar á vefsinn: „Ástæða er til að fagna
hugmyndum sem Bjarni Bene-
diktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks-
ins, og Hanna Birna
Kristjánsdóttir,
varaformaður
flokksins, ráð-
herrar í ríkisstjórn
Íslands, hafa hreyft
um að skipta innan-
ríkisráðuneytinu og stofna sér-
stakt dómsmálaráðuneyti að nýju.
Að mínu mati og annarra semþekkja til starfa dóms-
málaráðuneytisins var mjög
óskynsamlegt að stíga það skref
sem Jóhanna Sigurðardóttir og
stjórnarmeirihluti hennar gerði
þegar dómsmálaráðuneytið var af-
lagt. Fyrir því voru engin efnisleg
rök.
Aðförin að stjórnarráðinu ogdómsmálaráðuneytinu sér-
staklega einkenndist af pólitískri
skemmdarfýsn í ætt við tilraunina
til að kollvarpa stjórnarskrá lýð-
veldisins. Látið var eins og haustið
2008 hefðu þeir atburðir gerst hér
með gjaldþroti banka að réttlæt-
anlegt væri að vega að ýmsum
grunnstoðum stjórnkerfisins.“
Óhætt er að taka undir þessi orðBjörns Bjarnasonar og um
leið að minna á að margt – flest
raunar – er enn óunnið þegar
kemur að því að vinda ofan af
skemmdarverkum fyrri rík-
isstjórnar, hvort sem horft er til
stjórnkerfisins, skattkerfisins eða
mannaráðninga, svo dæmi séu tek-
in.
Þá er í þessu sambandi ástæðatil að nefna það sem Björn
bendir á, að þó að umsóknin um
aðild að ESB sé efnislega dauð
eigi enn eftir að kasta rekunum og
furðulegt sé hve það hafi dregist.
Björn Bjarnason
Skemmdarverkin
standa óhögguð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 léttskýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 5 alskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 15 skúrir
Stokkhólmur 17 skýjað
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 16 skýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 15 skýjað
London 20 heiðskírt
París 17 alskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 22 léttskýjað
Moskva 17 þrumuveður
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 17 skýjað
New York 23 alskýjað
Chicago 21 alskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:29 21:35
ÍSAFJÖRÐUR 5:21 21:53
SIGLUFJÖRÐUR 5:04 21:36
DJÚPIVOGUR 4:55 21:08
Séra Ólafur Jó-
hann Borgþórs-
son hlaut yfir-
burðakosningu
til embættis
sóknarprests í
Seljaprestakalli í
Reykjavík.
Kosið var á
milli tveggja um-
sækjenda, þeirra
Fritz Más Bernd-
sen Jörgenssonar guðfræðings og
sr. Ólafs Jóhanns Borgþórssonar.
Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson
hlaut 1.722 atkvæði og Fritz Már
Berndsen Jörgensson hlaut 56 at-
kvæði. Á kjörskrá voru 4.428 en
alls kusu 1.792, þar af 635 utan
kjörfundar. Gild atkvæði voru
1.778 og ógild 14. Séra Ólafur Jó-
hann verður því skipaður í emb-
ætti með vísan til 24. gr. starfs-
reglna um val og veitingu
prestsembætta.
Séra Ólafur hlaut
yfirburðakosningu í
Seljaprestakalli
Ólafur Jóhann
Borgþórsson
Þórir Sævar Kristinsson dúxaði
með einkunnina 9,09 af verk- og
raunvísindadeild Háskólabrúar
Keilis. 14 nemendur brautskráðust
við hátíðlega athöfn í Andrews
Theater á Ásbrú síðastliðinn föstu-
dag. Eftir útskriftina hafa saman-
lagt 1.892 nemendur útskrifast frá
Keili frá stofnun skólans, þar af
1.129 af Háskólabrú, en að jafnaði
stunda um tvö hundruð einstak-
lingar aðfaranám í Keili, bæði í
staðnámi og fjarnámi.
Brautskrán-
ing frá Keili
- með morgunkaffinu