Morgunblaðið - 18.08.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar
er nú með til skoðunar tillögu um
stofnun íþróttaskóla fyrir leikskóla
bæjarins. Samþykki bæjarstjórn
tillöguna væri sama fyrirkomulag
á íþróttakennslu á leik- og grunn-
skólastigi. Þær Jóna Margrét
Brandsdóttir og Birna Dís Bjarna-
dóttir standa að tillögunni.
Enginn stuðningur til staðar
Jóna Margrét segir að fram-
takið myndi tryggja öllum börnum
hreyfingu. „Hugmyndin er að
börnin kæmu í skipulegan íþrótta-
tíma 1-2 í viku. Eftir hrun var af-
numinn íþróttastyrkur bæjarins til
barna yngri en sex ára. Foreldrar
þessara barna fá því engan fjár-
hagslegan stuðning til að senda
börnin í íþróttir. Með þessu erum
við líka að færa íþróttaiðkun
barnanna yfir á skólatíma, fremur
en að hún fari fram eftir skóla eða
um helgar. Þá myndu líka öll börn
stunda hreyfingu, en núna ræðst
íþróttaiðkun þessa aldurshóps oft
af áhuga og fjárhag foreldra. Í
starfsáætlun leikskóla stendur að
börn eigi að fá hreyfingu, en síðan
er afar mismunandi hvort rými sé
til á leikskólum fyrir hreyfinguna.
Þetta framtak myndi því tryggja
öllum börnum hreyfingu,“ segir
Jóna Margrét.
Til að byrja með myndu 5 ára
börn sækja íþróttatímana, þetta er
síðasta árið á leikskólum, og
kennslan stæði yfir frá september
fram í maí. Þetta hefur aldrei ver-
ið gert áður á Íslandi, þannig að
um er að ræða frumkvöðlaverkefni
að sögn Jónu.
Þá segir hún þetta ekki kostn-
aðarsamt. „Kostnaðurinn felst í
leigu á húsnæði í Kaplakrikanum
og launum tveggja til þriggja
starfsmanna. Þetta er ekki há
upphæð. Síðan gæti þetta sparað
samfélaginu annars staðar í fram-
tíðinni. Þetta er nefnilega visst
forvarnarstarf. Börnin auka þol,
snerpu og félagsþroskann í svona
tímum.“
Leggja þarf mat á kostnaðinn
Bæjarstjórn á eftir að taka end-
anlega afstöðu til málsins, en Rósa
Guðbjartsdóttir bæjarstjóri segir
hana opna fyrir öllum góðum hug-
myndum.
„Við ætlum að heyra hug leik-
skólastjóra til hugmyndarinnar og
greina kostnaðinn til hlítar áður
en lokaákvörðunin verður tekin.
Um er að ræða 2-3 stöðugildi,
leigu á húsnæði og mögulega líka
akstur barnanna í og úr íþrótta-
tímum. Verði verkefnið samþykkt
færi það ekki af stað á næstum
vikum, heldur þegar næsta fjár-
hagsáætlun tæki gildi á næsta ári.
Þetta er samt metnaðarfull hug-
mynd og það er gaman þegar fólk
hugsar út fyrir rammann,“ segir
Rósa.
Vilja íþróttakennslu fyrir leikskólabörn
Hafnafjarðarbær
er með tillöguna til
skoðunar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hreyfing Margir leikskólar hafa ekki aðstöðu fyrir skipulagða hreyfingu.
Morgunblaðið/Eva Björk
Frumkvöðlar Jóna Margrét og
Birna Dís eru höfundar tillögunnar.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mikil fjölgun ferðamanna leiddi til
þess að við þurftum að ganga af krafti
í þetta verkefni og hraða fram-
kvæmdum,“ segir
Sigurður Elías
Guðmundsson í
Vík í Mýrdal.
Síðustu misser-
in hefur verið
unnið að bygg-
ingu nýs fjögurra
stjörnu hótels
sem rekið verður
undir merkjum
Icelandair.
Byggingin er
um 2.500 fermetrar og hófust fram-
kvæmdir 2. janúar 2013. Á síðasta ári
voru 20 herbergi tekin í gagnið. Í
beinu framhaldi – og fyrr en áformað
var – komust móttöku- og veitinga-
salir í notkun. Á þessum tímapunkti
eru alls 36 herbergi orðin klár og
tvær svítur til viðbótar. Eftir er að
fullbúa tíu fjölskylduherbergi sem
verða á tveimur hæðum hvert og
heilsulind sem verður klár á vetri
komanda.
Nýtingin er góð
„Nýtingin hjá okkur er virkilega
góð. Gestirnir eru að langstærstum
hluta útlendingar,“ segir Sigurður
Elías. Þau Vilborg Smáradóttir eigin-
kona hans standa saman að þessu
verkefni, en þau eru umsvifamikil í
atvinnurekstri í Mýrdal. Reka þau
meðal annars N1 Víkurskála, veit-
ingastaðinn Ströndina og 42 her-
bergja Edduhótel, en nýja Iceland-
air-hótelið er sambyggt því. Það
þykir skapa hagræði því margt megi
samnýta.
Sóknarfæri á veturna
„Sumarið er blómatíminn í ferða-
þjónustunni hér. Við höfum ályktað
sem svo að hér í Vík stoppi rúmlega
3.000 manns á dag yfir háanna-
tímann, sem reyndar er að lengjast
bæði inn á vorið og lengra inn í haust-
ið. Á veturna eru hér sóknarfæri og
nýja hótelið gefur okkur betra svig-
rúm til þess að nýta þau,“ segir Sig-
urður Elías. Heildarkostnað við
byggingu nýja hótelsins segir hann
verða um einn milljarð króna. Fjár-
mögnunin sé tryggð og borð fyrir
báru.
Í Mýrdal, eins og víðast hvar ann-
ars staðar á landinu, fjölgar ferða-
mönnum mjög. Í Vík hefur til dæmis
fjölgað mjög skipulögðum dagsferð-
um, en áætlunin í þeim er sú að farið
er austur í Mýrdal og snúið þar við. Á
þessari leið, sem gjarnan er nefnd
Suðurströndin, eru staðir sem komið
hafa sterkir inn að undanförnu, s.s.
Seljalandsfoss og Reynisfjara, en þar
og víðar hefur nú verið komið upp
veitingaaðstöðu sem nýtur vinsælda.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vík Ferðamönnum sem koma í Mýrdal hefur fjölgað mjög og því þurfti að
flýta framkvæmdum við hótelbygginguna frá því sem áformað var.
Fjögurra stjörnu
hótel senn tilbúið
Fjárfestingin er einn milljarður kr.
Sigurður Elías
Guðmundsson