Morgunblaðið - 18.08.2014, Qupperneq 19
✝ Geir Runólfs-son fæddist í
Reykjavík 2. októ-
ber 1926. Hann and-
aðist á Landakots-
spítala 2. ágúst
2014.
Geir var yngsta
barn hjónanna Elku
Jónsdóttur, ljós-
móður og feldskera
frá Neðri-Hrepp í
Skorradal, f. 10.
apríl 1888, dáin 11. nóvember
1982, og Runólfs Jónssonar, skip-
stjóra frá Holtsmúla í Landsveit,
f. 6. janúar 1870, d. 11. október
1932. Hin voru Guðrún Rebekka,
f. 27. febrúar 1917, d. 15. ágúst
1985 og Fanney Árný, f. 26. mars
1924, d. 7. febrúar 2008. Fyrir
hjónaband átti Elka soninn Geir
(faðerni ekki vitað), hann lést í
barnæsku. Fyrri kona Geirs var
Guðrún Hjálmfríður Sigurð-
ardóttir, fædd og uppalin í Reka-
vík bak Höfn, Sléttuhreppi, N-
Ísafjarðarsýslu. Hún var fædd
27. nóvember 1927. Guðrún lést
fyrir bifreiðastjóra á leigu-
bifreiðum til mannflutninga 20.
mars 1947. Geir byrjaði ungur að
vinna og var í sveit á sumrin í
Flóanum. Hann var í Bretavinn-
unni. Geir gerði út vörubíl korn-
ungur og byrjaði að keyra leigu-
bíl sem hann gerði út fram yfir
1954. Hann vann einnig í eitt ár,
1950-1951, við endurskoðun í
Oregon-ríki í Bandaríkjunum.
Fljótlega eftir að hann kom heim
árið 1951 hóf hann störf hjá
Landsbanka Íslands og vann þar
óslitið til ársins 1993 eða í rúm 40
ár. Geir starfaði sjálfstætt við
bókhald og endurskoðun sam-
hliða starfi í bankanum fyrstu 20
árin eftir að hann kom frá
Bandaríkjunum. Hann sat í
stjórnum nokkurra stofnana,
meðal annars í sóknarnefnd Bú-
staðakirkju. Þá sat hann í stjórn-
um ýmissa félaga. Hann starfaði
innan Frímúrarareglunnar þar
sem hann gegndi trún-
aðarstörfum. Áhugamál Geirs
voru framan af útivist og á seinni
árum ferðalög utan- og innan-
lands.
Útförin fer fram frá Bústaða-
kirkju mánudaginn 18. ágúst nk.
og hefst kl. 15.
9. júní 1976. Börn
þeirra eru Sævar
Geirsson, f. 15. jan-
úar 1952, bygginga-
tæknifræðingur í
Reykjavík. Gylfi
Sigurður Geirsson,
f. 8. apríl 1952, bif-
reiðaskoð-
unarmaður í Kópa-
vogi.
Jóhanna Elka
Geirsdóttir, f. 28.
febrúar 1956, bókari í Kópavogi.
Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir, f.
22. desember 1958, búsett í Kópa-
vogi. Barnabörnin eru 15 og
barnabarnabörnin 19. Seinni kona
Geirs er Sigrún Jóhannesdóttir, f.
28 október 1933, d. 28. júlí 2014.
Þau giftu sig í apríl 1979.
Geir gekk í Barnaskóla Aust-
urbæjar og þaðan í Gagnfræða-
skóla Austurbæjar þaðan sem
hann útskrifaðist með góðum
vitnisburði. Þaðan lá leiðin í
Samvinnuskólann þaðan sem
Geir útskrifaðist með 1. einkunn
þann 2. maí 1947. Geir lauk prófi
Elsku pabbi minn, mikið þykir
mér skrítið að sitja hér og skrifa
þessi orð til þín. Stuttu eftir að
Sigrún kvaddi sátum við og rædd-
um um hana – það hvarflaði ekki
að mér að þú myndir fylgja á eftir
henni einungis nokkrum dögum
síðar. Það er huggun harmi gegn
að þið hefðuð bæði kosið að hafa
þetta á þennan veg hefði valið ver-
ið ykkar, því þið voruð mjög sam-
rýmd og ástin og virðingin á milli
ykkar var þvílík að eftir var tekið.
Við vorum miklir vinir og fé-
lagar, elsku pabbi minn, og áttum
ófáar yndislegar stundir saman
sem ylja mér um hjartarætur þeg-
ar ég hugsa til baka. Sumarbú-
staðaferðirnar að Álftavatni í
æsku, þar sem mikið var um
gestagang og útiveru. Ameríku-
ferðirnar okkar, sú síðasta að
heimsækja Fanneyju systur þína
og Ásdísi, þar sem þú keyrðir eins
og herforingi á milli borga með
Sigrúnu á landakortinu í framsæt-
inu og mig, Fanneyju og Kristínu
frænku í aftursætinu. Heimsóknir
ykkar Sigrúnar til okkar að Efri-
Þverá og áramótin sem við eydd-
um saman undanfarin ár, svo eitt-
hvað sé nefnt. Það var alltaf gam-
an þar sem við vorum saman
komin, mikið hlegið og gantast.
Þú varst algjör prakkari, elsku
pabbi minn, og hafðir gaman af
því að hafa gleði og gaman í kring-
um þig. Ég gleymi því ekki þegar
ég gaf þér töng til að tína upp dót
til að þú þyrftir ekki að beygja þig,
þá hljópst þú á eftir Sigrúnu út um
allt hús og þóttist ætla að klípa
hana með tönginni. Hláturinn í
þér og Sigrúnu gleymist seint.
Ég er ánægð með að þú hafir
kynnst góðri konu og félaga eins
og Sigrúnu eftir að mamma
kvaddi þennan heim á besta aldri.
Góðri konu sem var samferða þér
í gegnum lífið, ferðaðist með þér
út um allt og fer núna samferða
þér í stærstu ferð ykkar beggja.
Hvílið í friði, elsku pabbi minn,
og Sigrún.
Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir.
Í dag kveð ég aldraðan föður
minn, Geir Runólfsson. Hann lést
nýverið eftir slæma byltu. Andlát
hans kom mér í opna skjöldu enda
var heilsa hans tiltölulega góð
þrátt fyrir háan aldur.
Ég naut góðs atlætis foreldra
minna, þau reyndust mér vel og
veittu mér margt. Ég minnist
skemmtilegu veiðitúranna sem ég
var tekinn með í, fyrstu kennsl-
unnar við stangveiðina og túranna
á skakið sem ég fékk kornungur
að koma með í. Ég minnist sög-
unnar sem þú sagðir mér að gerð-
ist eftir eins árs búsetu þína í Am-
eríku, þegar það átti að senda þig
til Kóreu í stríð, þú varst ekki tals-
maður átaka milli manna eða
þjóða. Ég minnist sumarferðanna
sem mótuðu mig, þær veittu mér
gleði sem ég hef alltaf búið að.
Foreldrar mínir ýttu mér út í lífið
með hvatningu og góðum ráðum,
fyrir það er ég þakklátur.
Pabbi var fulltrúi kynslóðar
bankamanna sem ekki voru valdir
að hruni eða neinni óráðsíu. Pabbi
var alltaf flott klæddur og snyrti-
legur, af því er ég stoltur.
Síðustu árin voru pabba erfið,
Sigrún kona hans veik og komin
inn á stofnun, það fannst honum
sárt. Síðustu árin fór heilsu pabba
að hraka, hann var ekki alltaf sátt-
ur þegar fjaraði undan, við vorum
ekki alltaf sáttir hvor við annan,
það var stundum tekist á, en þessi
átök stóðu alltaf stutt og voru ekki
mörg. Á endanum var það alltaf
kærleikurinn sem hafði sigur.
Ég kveð í dag föður minn, Geir
Runólfsson, sem verður minnst
fyrir hlýju, umhyggju og góða
hvatningu.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Sævar Þór Geirsson
og fjölskylda.
Geir Runólfsson, mágur og vin-
ur, hefur kvatt þessa jarðvist.
Ungur kvæntist hann stúlku frá
Rekavík bak höfn á Hornströnd-
um. Rúna var hún kölluð, kær
systir og frænka. Hún lést langt
um aldur fram. Geir og Rúna
eignuðust fjögur börn. Hann var
stoltur og ábyrgðarfullur faðir
sem ávallt var hægt að treysta á.
Geir helgaði sína starfskrafta
Landsbankanum lengst af starfs-
ævinni. Fyrst og fremst var hann
mágur og vinur. Minnið kallar
fram skemmtilegar stundir, heim-
sóknir, símtöl, ferðalög innan-
lands sem erlendis. Sigrún, seinni
kona Geirs, kom inn í líf hans á
erfiðum tíma, það var hans gæfa.
Saman gengu þau seinni hluta æv-
innar og saman kvöddu þau þessa
jarðvist. Tíminn er afstæður, það
er afar sárt og vont að sjá á eftir
sínum.
Með virðingu og þakklæti
kveðjum við Geir og Sigrúnu. Við
sendum innilegar samúðarkveðj-
ur til ættingja þeirra. Hvíl í friði
með þökk fyrir allt og allt.
Kveðja,
Sigríður (Sigga mágkona)
Ingibjörg Bára og Sigrún.
Geir Runólfsson
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2014
✝ Sigrún Jóhann-esdóttir fædd-
ist 28. október
1933. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð 28.
júlí 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Guðbjörg
Bárðardóttir og Jó-
hannes Sigurðsson.
Bróðir hennar er
Gunnar Jóhann-
esson, f. 4. febrúar 1936, búsett-
ur í Seattle. Sigrún giftist
Snorra Sturlusyni rafvirkja-
meistara, f. 26. desember 1929,
d. 9. ágúst 1976. Hann var sonur
Ólafíu Kristínar Sigurðardóttur
og Sturlu Hólm Kristóferssonar.
Börn þeirra eru: 1) Björg Jó-
hanna, f. 5. júní 1952, 2) Ólafía
Kristín, f. 18. maí
1955, d. 19. júlí
1986, 3) Sturla f. 1.
apríl 1958, d. 20.
nóvember 1980, 4)
Arndís f. 2. október
1964, búsett í Nor-
egi. Seinni maki
Sigrúnar var Geir
Runólfsson banka-
starfsmaður, f. 2.
október 1926, d. 2.
ágúst 2014.
Sigrún var húsmóðir mestan
hluta ævi sinnar, en eftir lát
Snorra lauk hún námi frá
Sjúkraliðaskóla Íslands og starf-
aði í nokkur ár á Borgarspít-
alanum.
Útför hennar fer fram frá Bú-
staðakirkju mánudaginn 18.
ágúst og hefst athöfnin kl. 15.
Í dag kveðjum við yndislegan
afa og yndislega ömmu, hlátur-
milt, hjartahlýtt og ástfangið fólk,
minning þeirra mun lifa í hjörtum
okkar um ókomin ár.
Elsku afi og amma, margs er að
minnast og á svona tímum eru litlu
stundirnar svo mikilvægar og dýr-
mætar. Þið voruð dugleg að
ferðast og njóta lífsins og okkur
fannst alltaf svo gaman að
skreppa í kaffi til ykkar og heyra
sögur frá ferðalögunum og skoða
myndir. Viðtalið sem Fanney tók
við þig, elsku afi, fyrir skólaverk-
efni um uppvaxtarárin þín er okk-
ur ómetanleg gersemi. Flíkurnar
og teppin sem þú prjónaðir, elsku
amma, og þið gáfuð okkur í sæng-
urgjafir eru geymd sem gull.
Mikið breyttist þegar þú flutt-
ist á Sunnuhlíð, elsku amma, en
ástin og virðingin á milli ykkar
tveggja kom sterklega fram þá
þegar þú, elsku afi, fórst á hverj-
um degi og last blöðin fyrir elsk-
una þína, við sáum hvað það var
sárt fyrir þig að hafa hana ekki
alltaf hjá þér.
Þótt við séum ekki tilbúin að
kveðja ykkur þá erum við ánægð
með að þið fáið að fara saman. Að
þið leiðist til himna og hittið þar
Guðrúnu ömmu og Snorra og
haldið áfram ferðalaginu, fjögur
saman um ókomna tíð. Við mun-
um án efa skála fyrir ykkur í hvert
sinn sem við förum út fyrir land-
steinana því ef við þekkjum ykkur
rétt þá verðið þið þar með okkur.
Elsku afi og amma, takk fyrir
allt, hvílið í friði
Guðrún Helga og börn, Hulda
og börn, Már og Fanney.
Sigrún
Jóhannesdóttir
✝
Okkar ástkæri sonur, faðir, afi, bróðir og
frændi,
ÓLAFUR HVANNDAL,
Álfaskeiði 123,
Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut laugardaginn 9. ágúst.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 19. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsdeild
Landspítalans við Hringbraut.
Jón Eggert Hvanndal,
Hjördís V. Hvanndal,
Arnar Ólafur Hvanndal,
Hildur Ýr Hvanndal,
Kristófer Eggert Hvanndal,
Þórey Hvanndal,
Dóra Hvanndal,
Björg Hvanndal
og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
FRIÐRIK KRISTJÁNSSON,
Lönguhlíð 3,
Reykjavík,
áður til heimilis
í Einarsnesi 42 A, Skerjafirði,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
laugardaginn 9. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Bjarni Friðriksson,
Efemía Mjöll Guðmundsdóttir,
Marianna Friðriksdóttir,
Freddy Michaelsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HLÍF GUÐMUNDSDÓTTIR,
Nesbyen, Noregi,
áður til heimilis að Flateyri
við Reyðarfjörð,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. ágúst.
Útförin fer fram í Nesbyen föstudaginn
22. ágúst kl. 11.00.
Sigurborg Hallsteinsdóttir, Pálmi Guðmundsson,
Lars G. Hallsteinsson, Björnfríður F. Þórðardóttir,
Þórdís Hanna Hallsteinsdóttir,
Þuríður Sólveig Hallsteinsdóttir,
Heiðrún María Hallsteinsdóttir, Mange Engebakken,
Ívar Kristinn Hallsteinsson, Tove Nöbben,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna andláts
GUÐRÚNAR ÞORVALDSDÓTTUR
frá Stóra-Vatnsskarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Árnadóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVANDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR
Hjúkrunarh. Mörk,
áður til heimilis að
Ljósheimum 14,
Lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
miðvikudaginn 13. ágúst. Jarðarförin fer
fram frá Langholtskirkju föstudaginn 22.
ágúst kl. 13.00.
Rafn Viggósson
Viðar H. Eiríksson Guðrún Guðmundsdóttir
Guðjón Þór Rafnsson Ingrid Kaufmann
Guðrún J. Rafnsdóttir Gunnar S. Gunnarsson
Rafn Rafnsson Sif Sigurðardóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
andardráttinn. Elsku mamma
mín, ég sakna þín endalaust og ég
veit að þú ert hjá mér þegar ég
hugsa til þín. Elska þig að eilífu og
er þakklát fyrir allan þann tíma
sem við fengum saman.
Nú kveð ég móður mína
og minningarnar skína
og létta þessa stund,
um elsku’ og ástúð þína
sem aldrei virtist dvína
og þína glöðu léttu lund.
(Björn Már Ólafsson.)
Þín dóttir og örverpi, tengda-
sonur þinn og loðboltarnir þínir,
Jóhanna Bjarndís
og Rafá.
Það er komin kveðjustund.
Hún er sár en ég reyni að brosa í
gegnum tárin og ylja mér við góð-
ar minningar. Þannig hefði
mamma viljað hafa það.
Elskulega mamma mín
mjúk er alltaf höndin þín
tárin þorna sérhvert sinn
sem þú strýkur vanga minn.
Þegar stór ég orðinn er
allt það skal ég launa þér.
(Sig. Júl. Jóhannesson.)
Það er óendanlega dýrmætt að
hafa verið hjá þér allt til enda og
átt með þér þessar lokastundir.
Haldið í hönd þína, strokið vanga
þinn, lesið, spilað uppáhaldslögin
þín og gert fallegt í kringum þig,
brosað við upprifjun allra góðu
stundanna, grátið og að lokum
kvatt. Allt í þínum anda því þú
varst mikil tilfinningavera, elsk-
aðir bækur, tónlist og fallega
hluti. Við fjölskyldan stóðum sam-
an þarna eins og alltaf. Ein
kærleikskeðja eins og þú sagðir
svo oft.
Nú tekur annar kafli við hjá
okkur sem óneitanlega verður
tómlegri. Þú varst það mikill hluti
af lífi okkar allra. Minningin um
ástkæra móður mun lifa í hjörtum
okkar.
Við Baldvin biðjum algóðan
guð um að gæta þín.
Þín dóttir,
Guðleif Sunna.
Elsku tengdamamma, blíða fal-
lega Álfheiður. Eftir 19 ára sam-
veru er komið að kveðjustund.
Frá fyrstu stundu sýndir þú mér
óendanlega ást og kærleika og
tókst mér sem þinni eigin dóttur.
Þú varst hláturmild, gjafmild,
kærleiksrík og með hjarta úr
gulli. Ég gat ekki verið heppnari
með tengdaforeldra en þig og
Sævar.
Ég sagði þér einu sinni að þú
minntir mig á ömmu mína og ég
veit að þér þótti vænt um þau orð
og langar mig því að kveðja þig
með sama ljóði og ég kvaddi
ömmu mína með.
Fallin er hjartans fögur rós
og föl er kalda bráin.
Hún sem var mitt lífsins ljós
ljúfust allra er dáin.
Þú ert laus frá lífsins þrautum
og liðin jarðarganga.
En áfram lifir á andans brautum
ævidaga langa.
Drottinn verndar dag og nótt
á dularvegi nýjum.
Aftur færðu aukinn þrótt
í eilífð ofar skýjum.
Þú alltaf verður einstök rós
elsku vinan góða.
Í krafti trúar kveiki ljós
og kveðju sendi hljóða.
(Jóna Rúna Kvaran.)
Ég kveð þig með þakklæti og
söknuði, elsku tengdamamma, og
bið að allir englar Guðs vaki yfir
þér.
Þín elskandi tengdadóttir,
Ásta Ósk
Hákonardóttir.
Fleiri minningargreinar
um Álfheiði Bjarna-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.