Morgunblaðið - 18.08.2014, Síða 32
aðir selir sem eru í Skjálfanda-
fljótsósnum.
Fálki dregur vagninn
Tora og Kolbeinn eru með níu
hesta á járnum en það er hesturinn
Fálki sem fékk það hlutverk að
draga vagninn, því hann er bæði
fallegur og skapgóður. Hann kann
ágætlega við sig með aktygin og
hefur sýnt að hann á létt með sitt
verk, en svo vill til að vagninn er
léttbyggður og á góðum fjöðrum.
Tora Katinka er ánægð í Aðaldal
og Lava Horses er fyrirtæki sem
hún er að þróa með fjölskyldu
sinni á Hraunkoti en hestvagninn
var langþráður draumur sem rætt-
ist.
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Stúlka vaknaði í læstum strætó
2. Töfrar í fertugsafmæli …
3. Ebóluviðvörun í Alicante
4. Heiða þarf að komast í …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þátttakendur í Viðeyjargöngunni á
morgun ganga í gegnum jarðsöguna
frá því að jörðin myndaðist sem líf-
vana hnöttur og fram í nútíma. Þeir
munu fræðast um aldur jarðar og
þroskasögu lífsins. Leiðsögumaður
er Gunnar Magnússon landfræðingur,
sem leggur nú lokahönd á meistara-
verkefni sitt í holistic science í Bret-
landi. Gangan hefst kl. 19.30.
Aldur jarðar og
þroskasaga í Viðey
Í tilefni af ferð Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands á Proms verða
haldnir opnir tónleikar í Eldborg í
Hörpu og hefjast þeir kl. 19.30 í
kvöld. Flutt verður sama dagskrá
og hljómsveitin flytur í Royal Albert
Hall í London síðar í mánuðinum.
Á efnisskránni verða Geysir eftir
Jón Leifs, Storka eftir Hauk Tómas-
son, píanókonsert eftir Schumann
og 5. sinfónía Beethovens.
Einleikari á tónleikunum er
bandaríski píanóleikarinn Jonathan
Biss. Hann hefur helgað sig píanó-
list Schumanns og leikið verk hans
á yfir fimmtíu tónleikum um allan
heim.
Stjórnandi á tónleikunum er Ilan
Volkov. Á Proms-tónleikum sveitar-
innar kveður hann sem aðal-
hljómsveitarstóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Ókeypis er
á tónleikana en gestir
þurfa að tryggja sér
miða í miðasölu
Hörpu þar sem
sæti eru núm-
eruð.
Sinfóníuhljómsveitin
hitar upp fyrir Proms
Á þriðjudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og bjartviðri en sums
staðar skýjað við sjávarsíðuna. Hiti víða 8 til 18 stig, hlýjast V-
lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægari vindur en í gær og yfirleitt bjart-
viðri en skýjað með köflum NA-til. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast fyrir suð-
vestan.
VEÐUR
„Þetta var ekki flottasta
markið sem ég hef skorað en
það er örugglega það eftir-
minnilegasta hingað til,“
sagði landsliðsmaðurinn
Gylfi Þór Sigurðsson við
Morgunblaðið í gær, en hann
lét heldur betur mikið að sér
kveða þegar Swansea lagði
Manchester United á
Old Trafford. Gylfi
skoraði sigurmark
leiksins eftir að hafa
lagt upp fyrra markið. »1
Gylfi stal senunni
á Old Trafford
Íslenska körfuknattleikslandsliðið
sýndi mikla baráttu í leiknum gegn
Bosníumönnum í undankeppni EM í
körfuknattleik í gærkvöld. Bosníu-
menn höfðu betur,
72:62, en íslensku
strákarnir mæta
Bretum í London
á mið-
vikudags-
kvöldið. »4
Tíu stiga ósigur gegn
Bosníumönnum
KR-ingar lönduðu sínum 14. bikar-
meistaratitli í knattspyrnu karla
þegar þeir lögðu Keflvíkinga í úrslita-
leik Borgunarbikarsins á Laugardals-
velli. Rúnar Kristinsson hefur heldur
betur gert það gott frá því hann tók
við þjálfun liðsins, en þetta var
fimmti titillinn sem hann vinnur með
vesturbæjarliðinu. »2
14. bikarmeistaratitill-
inn hjá KR-ingum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Mig hafði lengi dreymt um að
eignast hestvagn, en vinkona mín
var með svona vagn þegar ég var
stelpa heima í Noregi.“
Þetta segir Tora Katinka Berg-
eng, sem keypti hestvagn frá Hol-
landi á síðasta ári og rekur hesta-
leigu á Hraunkoti í Aðaldal ásamt
manni sínum Kolbeini Kjartans-
syni.
„Ég byrjaði í hestamennsku þeg-
ar ég var 12 ára gömul og hef alltaf
haft áhuga á hestum. Löngu seinna
fór ég á námskeið heima í Noregi í
notkun hestvagna og komst svo í
samband við hollenska konu sem
býr í Danmörku, en hún hjálpaði
mér að finna þennan frábæra hest-
vagn. Hann kom hingað með Nor-
rænu síðastliðið vor eftir að við
keyptum hann,“ segir Tora og er
mjög ánægð með þetta farartæki,
sem er krydd í hestamennskunni í
Hraunkoti.
Hestaleigan aukabúgrein
Tora Katinka hefur búið á Ís-
landi í 11 ár og er frá Nordland í
Noregi, þar sem hún ólst upp við
kúabúskap o.fl. Hún og Kolbeinn
eru með mjólkurframleiðslu og
sauðfé en hestaáhuginn er fyrir
hendi og aukabúgreinin yfir sumar-
ið er hestaleiga sem þau hafa nefnt
Lava Horses.
Tora sér aðallega um hestana og
boðið er upp á nokkrar mismun-
andi ferðir, þ.e. tveggja tíma
túra og upp í 4-5 tíma túra.
Landslagið er fjölbreytt og er
m.a. farið meðfram Skjálfanda-
fljóti, síðan upp í hraunið og
gamlar götur þræddar í birki-
skóginum sem einkennir landið
á þessu svæði. Hefur þessi fjöl-
breytileiki heillað marga.
Þá er einnig boðið upp á
ferðir út að sjó og þar skoð-
Á hestvagni í selaskoðun
Hafði lengi
dreymt um að
eignast hestvagn
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Óvenjulegt farartæki Tora Katinka á hestvagninum í Aðaldal. Hún segir vagninn krydd í hestamennskunni.
Lava Horses er auglýst á öllum helstu gististöðum ferðamanna í ná-
grannasveitunum. Fólk getur valið á milli venjulegra hestaferða og ferðar
með vagninum, sem tekur fimm farþega í sæti og er stjórnandi
hestsins sá sjötti. Á Mærudögum á Húsavík í sumar vakti vagninn
verðskuldaða athygli gesta. Þá segir Tora að ef til vill geti hann orð-
ið brúðarvagn þegar vel viðrar.
Yngri kynslóðin á Hraunkoti hefur þegar fengið mikinn áhuga á
hestunum og hefur Hildur Helga Kolbeinsdóttir, sem er sjö ára,
þegar farið á nokkur reiðnámskeið. Hún var einungis
þriggja og hálfs árs þegar hún stjórnaði fyrst hesti og
sagðist þá vera að verða fullorðin kona. Frá fimm ára aldri
hefur ekki þurft að teyma undir henni.
Stjórnaði fyrst hesti þriggja ára
UNGA KYNSLÓÐIN ERFÐI HESTAÁHUGANN
Hildur Helga
Kolbeinsdóttir