Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
E
itt af því erfiðasta við
að koma öðrum á
óvart er sennilega að
segja ekki orð um það
sem stendur til. Ekki
einu sinni þeim sem maður treystir
best. Þetta vissi Tom Dowling
mætavel en fyrir mörgum mánuðum
tók hann að skipuleggja fimmtugs-
afmælisgjöf sinnar heittelskuðu.
Maureen varð fimmtug hinn 17.
ágúst og eftir tuttugu og fimm ára
hjónaband þekkjast þau Tom orðið
býsna vel. Eftir sem áður var hún
grunlaus um hið mikla ævintýri sem
var í uppsiglingu. Tom greiddi flug-
farið með greiðslukorti en gætti
þess vel að láta umslagið hverfa
þegar reikningurinn kom í pósti. Á
laugardeginum 16. ágúst var Tom
kaldsveittur að undirbúa flugferðina
og fékk börnin þeirra tvö til að
hjálpa sér og pakka niður í tösku
fyrir Maureen og fara með út á flug-
völl fyrr um daginn. Klukkutíma áð-
ur en leggja átti af stað út á völl
ákvað Maureen að fara út að
skokka. „Mér leist nú ekkert á það
og var orðinn taugaveiklaður þegar
hún kom rennsveitt til baka. Ég
sagði henni að við þyrftum aðeins að
skreppa og hún yrði bara að fara í
sturtu seinna,“ segir Tom brosandi
þar sem blaðamaður ræddi við hjón-
in daginn eftir á Hala í Suðursveit.
Rútuferð reyndist þyrluferð
„Ég rauk allslaus út í bíl í
íþróttafötunum, klístrug og ekki
Kúnstin að koma
verulega á óvart
Hjónin Tom og Maureen Dowling hefur lengi langað til Íslands en hingað komu
þau fyrr í þessum mánuði í heldur óhefðbundnu fríi. Tom skipulagði ferðina svo
leynilega að konan hans hélt að hún væri á leið í matarboð í New York. Tíu tím-
um síðar voru þau komin til Íslands og fimmtán tímum síðar skoðuðu þau landið
úr þyrlu. Þessi óvænta ferð var fimmtugsafmælisgjöf Toms til Maureen.
Morgunblaðið/Malín Brand
List Náttúran er á köflum eins og magnþrungið listaverk séð úr lofti.
Afmælisgjöf Hjónin Tom og Maureen Dowling í blíðunni á Fimmvörðuhálsi.
Tindurinn Það er ánægjulegt að komast að Hvannadalshnjúki, hæsta punkti
landsins, og jafnvel ofar. Hann er tignarlegur og nándin við hann einstök.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Síðasta sýningarhelgi
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. kl. 14–16
Við leitum að
liStaverkum
erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð sem fer fram í september.
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur,
Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna,
Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400
LISTMUNAUPPBOÐ Í SEPTEMBER
Hallur Karl
Hinriksson
21. – 31. ágúst
málverkasýning
Margir Íslendingar sem fariðhafa til Asíu hafa heimsóttTaíland enda sannarlega
land sem vert er að leggja leið sína
til. Þeir hinir sömu þekkja af eigin
raun hversu menningin þar í landi er
fjölbreytt og skemmtileg. Taílensk-
íslenska félagið og Thai-menningar-
félagið blæs nú til taílenskrar hátíð-
ar sem haldin verður á laugardag 30.
ágúst í Ráðhúsi Reykjavíkur milli
klukkan 12 og 19.30. Þar verður fjöl-
margt skemmtilegt í boði, meðal
annars verður danssýning frá Ka-
sestart-háskólanum í Taílandi og
munu dansarar sýna „Hanumal“,
„Manora“ sem og hefðbundinn taí-
lenskan dans. Einnig verður áhuga-
vert að heyra og sjá flutning tónlist-
ar með taílenskum hljóðfærum, en
„Khon“ er taílenskur dans sem var
eingöngu sýndur við konungshirðina
á sínum tíma í flutningi grímu-
klæddra karlmanna, með sögumanni
og við undirspil taílenskrar tónlistar.
Þetta verður því litrík og skrautleg
danssýning sem enginn ætti að láta
framhjá sér fara.
Lærið að gera eftirrétti
Matur að hætti Taílendinga verð-
ur í boði á hátíðinni, sem og kaffi og
kökur og næsta víst að enginn verð-
ur svikin af því að fá að smakka á
gómsætum taílenskum réttum og
framandi ávöxtum. Fyrir þá sem
vilja taka þetta lengra verður einnig
kennsla í gerð taílenskra eftirrétta.
Taílenskt handverk verður líka til
sýnis og kennir þar margra grasa
enda Taílendingar þekktir fyrir
færni í fínlegu handverki. Margt
fleira verður í boði, má þar nefna taí-
lenskt nudd sem og kynningu á ferð-
um til Taílands með www.ferdin.is
Aðgangur á hátíðina er ókeypis og
allir eru hjartanlega velkomnir.
Grímuklæddir menn sýna dans
Taílenskt nudd,
matur og dans
Flott Búningarnir sem taílensku dansararnir klæðast eru skrautlegir eins
og margt annað sem kemur frá hinu áhugaverða landi Taílandi.
Mikið verður um dýrðir í Ráðhúsi Reykjavíkur nk.
laugardag þegar þar verður haldin taílensk hátíð
með litagleði og ilmandi taílenskri matarmenningu.