Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 65
UMRÆÐAN 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Við hvetjum þá viðskiptavini Íslandsbanka sem eru með
húsnæðislán hjá okkur eða öðrum lánastofnunum til
að sækja um höfuðstólsleiðréttingu vegna verðtryggðra
húsnæðislána.
Þú getur sótt um leiðréttinguna með einföldum hætti
á vef ríkisskattstjóra, www.leidretting.is. Fresturinn
rennur út 1. september.
Til að vera viss um að þú fullnýtir séreignarsparnaðinn
þinn til að greiða inn á lán þarf einnig að sækja um það
sérstaklega fyrir 1. september á vef ríkisskattstjóra,
www.leidretting.is
Íslandsbanki bendir viðskiptavinum sínum á að kynna
sér leiðréttinguna vel á islandsbanki.is/leidretting
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Munið að sækja um
fyrir 1. september
Leiðréttingin
Ég hef orðið þeirrar
gæfu aðnjótandi í sum-
ar að fá tækifæri til að
ferðast talsvert um
okkar fagra land og þó
að ég hafi rekist á ým-
islegt sem betur má
fara hef ég ákveðið að
sleppa að ræða um það
í þetta sinn. Það má
líka minnast á það sem
vel er gert. Nóg er nú
af neikvæðri umræðu í okkar sam-
félagi.
Við skulum byrja í byggð, í
Reykjanesi innst í Ísafjarðardjúpi.
Þar til fyrir fáum árum var stað-
urinn ekki í alfaraleið. En eftir að
Reykjarfjörður og Mjóifjörður voru
brúaðir hefur orðið þar grundvall-
arbreyting. Nú liggur aðalvegurinn
svo að segja gegnum hlaðið á staðn-
um. Fyrir um það bil 10 árum var
ég á leiðinni til Ísafjarðar og gisti í
Reykjanesi þar sem er aflagður
skóli. Þarna er mikið af heitu vatni
og þess vegna er þar stór laug sem
var og er svo heit að vart er hægt að
synda í henni. Sennilega er þetta
stærsti heiti pottur á landinu. Held-
ur fannst mér aðkoman að staðnum
óaðlaðandi en við létum okkur hafa
það að tjalda og fara í laugina. Síðan
átti ég því láni að fagna að koma
þarna aftur í byrjun þessa mánaðar.
Mér til mikillar ánægju hafði þarna
orðið grundvallarbreyting. Öll að-
staða á tjaldstæðinu var til fyr-
irmyndar og búið að laga laugina og
búa til búningsaðstöðu sem var óað-
finnanleg. Ekki spillti það fyrir að
ég á góða vinkonu sem á rætur á
þessum slóðum og svo heppilega
vildi til að hún var ein-
mitt stödd á sínu
æskuheimili (Lauga-
ból). Hjá henni fékk ég
upplýsingar um hvað
þarna væri markverð-
ast að sjá. Það sem
mér fannst einna
merkilegast var hversu
gróður er þarna víða
gróskumikill sem
kannski markast, alla
vega að hluta, af því að
þarna hefur sauðfé
stórlega fækkað á síð-
ustu árum.
En hverfum nú til fjalla. Við skul-
um byrja á Hveravöllum á Kili. Þar
reisti Ferðafélag Íslands (FÍ) sælu-
hús 1937. Í kringum 1980 reisti fé-
lagið þar annað hús. Þessi hús átti
og rak Ferðafélagið til ársins 2002
en þá keypti Svínavatnshreppur í
Austur-Húnavatnssýslu allar eign-
irnar á svæðinu. Var þar með lokið
veru FÍ á Hveravöllum eins og segir
í fundargerð frá aðalfundi það ár.
Vissulega hafa orðið breytingar á
svæðinu þó að það sé ef til minna en
ætla mætti. Eitt af því sem hefur
verið bætt er búningsaðstaða fólks
sem vill fara í heitu laugina sem alla
tíð hefur verið austan við gamla
húsið. Þarna var ég fyrr í þessum
mánuði og þó að vissulega megi
gera þarna enn betur ber að virða
það sem gert hefur verið.
Næsti áningarstaður var Kerling-
arfjöll. Ég ók beint upp Ásgarðsfjall
og upp á bílastæðið ofan við Hvera-
dalina. Það sem yljaði mér strax var
að sjá upplýsingaskiltin. Þarna
stóðu líka nokkrar brýr (sjá með-
fylgjandi mynd) sem virtust bíða
eftir að vera settar á sinn stað. Síð-
an gekk ég niður á hverasvæðið sem
er sá blettur sem hefur hvað mest
aðdráttarafl á svæðinu. Þar mætti
mér enn ein nýjungin sem gladdi
mitt litla hjarta. Þarna var búið að
leggja göngustíga og ekki nóg með
það heldur var búið að steypa und-
irstöður fyrir brýrnar sem mættu
mér uppi á bílastæðinu. Ég hugsaði
með mér, þetta er bara eins og ég
sé hugmyndfræðingurinn að þessu
öllu. Nú lá leiðin niður í skálann í
Ásgarði. Þar hitti ég Fríðu ráðs-
konu á staðnum. Hún sagði mér að
til stæði að fá þyrlu seinna í mán-
uðinum til að koma brúnum á sinn
stað. Og viti menn 21. ágúst var öll
opnan í Morgunblaðinu lögð undir
myndir af því þegar verið var að
flytja áðurnefndar brýr í sín stæði.
Nákvæmlega svona á að standa að
málum. Ef við ætlum að fara með
fólk inn á landið okkar verðum við
að búa í haginn bæði fyrir fólkið og
ekki síður fyrir náttúruna sjálfa. Ef
við gerum það ekki, er hætta á að
illa fari. Annað sem Fríða tjáði mér
var að búið væri að gera bragarbót
á heitu lauginni í gilinu innan skál-
ans. Ég var þarna sumarið 2012 og
gekk þarna inn eftir. Þá var þessi
pollur hvorki fugl né fiskur. Auðvit-
að þurfti ég að sannprófa þetta. Enn
einu sinni mætti mér ánægjuleg
sjón. Búið að gera þetta nákvæm-
lega eins og ég vildi sjá það. Það
sem þó vantar er búningsaðstaða en
hún kemur væntanlega innan tíðar.
Þannig þarf að standa að málum á
miklu fleiri stöðum á landinu.
Það síðasta sem mig langar að
nefna er að rafmagnsleiðslan frá
virkjuninni í Ásgarðsá, sem um ára-
bil hefur séð staðnum fyrir raf-
magni, hefur verið lögð í jörð. Ein-
ungis eftir að fjarlægja einn staur
með hangandi línudræsum sem
stendur fast við virkjunina sjálfa.
Vonandi verður hann farinn þegar
ég kem næst á svæðið.
Á jákvæðum nótum
Eftir Leif
Þorsteinsson
»Ef við ætlum að fara
með fólk inn á landið
okkar verðum við að búa
í haginn bæði fyrir fólk
og náttúru. Verði það
ekki gert er hætta á að
illa fari.
Leifur Þorsteinsson
Höfundur er náttúrufræðingur og
hefur verið fararstjóri í ferðum
Ferðafélags Íslands um árbil bæði í
byggð og óbyggð.
Ljósmynd/Leifur Þorsteinsson
Brýrnar bíða flutnings á bílastæðinu eftir að komast á áfangastað.