Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 72
2014
HAUSTferðir
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
V
ið höfum kynnt þrjá nýja
áfangastaði í ár, þar af tvo
í Kanada. Það eru Ed-
monton sem er heilsársá-
fangastaður og Vancouver
sem flogið er til frá vori og fram í
október. Svo er það Genf í Sviss
sem er sumaráfangastaður hjá okk-
ur,“ segir Þorvarður Guðlaugsson
aðspurður um það sem helst hefur
verið á döfinni hjá félaginu það sem
af er ársins. „Við höfum svolítið lagt
áherslu á borgarferðir og þá hafa
þessir nýju áfangastaðir í Kanada
komið sterkir inn og svo eru fleiri
sem eru alltaf vinsælir á haustin á
borð við Washington, sem er ákaf-
lega skemmtileg borg, Denver sem
er tiltölulega nýr staður sem er
mjög gaman að heimsækja enda
mikil útivistarparadís, ekki síst fyrir
skíðafólkið. Með þéttu flugi þangað
yfir veturinn sjáum við mikla aukn-
ingu meðal skíðafólks sem sækir til
Denver. Svo er það vesturströndin
þar sem við bjóðum upp á flug til
Seattle og svo nýju borgarinnar,
Vancouver.“
Þorvarður bætir því við að land-
inn hafi verið fljótur að taka við sér
þegar nýju áfangastaðirnir þrír hafa
verið annars vegar og borgunum
hafi verið vel tekið meðal ferða-
manna. „Íslendingurinn er alltaf
fljótur að tileinka sér nýjungar og
en hitt er annað mál að við erum
líka að þjóna ferðamönnum til Ís-
lands og eins ferðamönnum yfir Atl-
antshafið sem eru stór hluti farþeg-
anna til þessara nýju staða
vestanhafs. En í það heila hefur
borgunum þremur verið vel tekið
meðal viðskiptavina okkar. Það er
til að mynda mikil gróska á þessum
svæðum í Kanada, öflugt atvinnulíf,
sterkir skólar og svo eru Klettafjöll-
in rétt hjá sem eru óviðjafnanleg
útivistarparadís, bæði um sumar og
vetur.“
Skoðað, verslað og golfað
Leiðakerfi Icelandair býður sem
fyrr upp á fjölmarga áfangastaði í
Evrópu og Þorvarður segir borg-
irnar þar sívinsælar. „London og
svæðið í kring er alltaf vinsælt, ekki
síst fyrir golfferðirnar en það færist
sífellt í vöxt að Íslendingar fari
þangað í golfferð á haustin til að fá
svolitla framlengingu á sumarið.
Það eru fyrirtaks golfvellir allt í
kringum London og þangað er því
bæði hægt að nýta Gatwick-flugið
og Heathrow-flugið. Þá er Glasgow
alltaf sígild í huga Íslendinga, bæði
til skoðunar- og verslunarferða svo
ekki sé minnst á golfið en Skotland
er náttúrlega mekka golfiðkenda,“
bætir Þorvarður við. „Síðan erum
við að sjálfsögðu með okkar sól-
arstað sem er Orlando á Flórída, og
sú borg er sívinsæl meðal lands-
manna enda veðursældin óbrigðul
og margs konar afþreying í boði.
Þar eru margir spennandi skemmti-
garðar og fallegar sólarstrendur
innan seilingar.“
Þorvarður nefnir að Evrópuferð-
irnar njóti ávallt vinsælda enda sé
það svo að hver borg í Evrópu hafi
sitt aðdráttarafl. Icelandair leggi
áherslu á að þjóna sem breiðustum
hópi viðskiptavina svo mæta megi
óskum sem flestra. „Um leið og
boltinn byrjar að rúlla í Englandi
eykst ásóknin þangað til muna enda
margir áhugasamir um ensku úr-
valsdeildina hér á landi,“ nefnir
hann sem dæmi. „Jólamarkaðirnir,
sérstaklega í Þýskalandi, eru einnig
alltaf mjög vinsælir.“
Aukin ásókn í nýja staði
Af nýlegum áfangastöðum Ice-
landair sem njóta sívaxandi vin-
sælda nefnir Þorvarður fyrst To-
ronto í Kanada. „Þangað bjóðum við
upp á heilsársflug því við höfum séð
töluverða aukningu þangað síðustu
misseri. Það er ákaflega falleg borg
og þaðan er stutt að fara til að skoða
Niagara-fossana. Eins sjáum við
aukningu til borga eins og Wash-
ington DC sem er að mínu mati al-
veg stórkostleg borg, með menn-
ingu, mat og verslun í hæsta flokki.
Boston er alltaf sígild og eftir því
vinsæl og sama er að segja um New
York. Hún er sívinsæl enda höfum
við bætt við ferðum þangað um
Newark-völl í New Jersey, til við-
bótar við ferðir okkar til John F.
Kennedy-vallar. Denver, Seattle og
svo Washington hafa hins vegar
verið að bæta mjög við sig enda
stórskemmtilegar borgir að sækja
heim fyrir Íslendinga þar sem hægt
er að labba um og skoða menningu
og mannlíf.“
Þorvarður bætir því við að Ice-
landair hafi þegar tilkynnt um nýjan
áfangastað sem bætist við í upphafi
næsta árs. „Við hefjum flug til
Birmingham í febrúar og hlökkum
til að bæta þessari næststærstu
borg Englands við leiðakerfi okkar.“
Oftar til útlanda en áður
„Við bjóðum upp á fjölbreytt úr-
val sérferða með fararstjórn í haust,
bæði með tilliti til áfangastaða og
tilefna,“ útskýrir Þorvarður. „Þar á
meðal má nefna ferð á landsleik Ís-
lands og Lettlands í Riga í október,
upplifunarferðir til Parísar í sept-
ember og október, haustferð til
Boston í lok nóvember og svo að-
ventuferð eldri borgara sem farin
verður um mánaðamótin nóvember-
desember í samvinnu við Lands-
samband eldri borgara. Við höfum
aukið áherslu á þessar sérferðir því
fólk fer núorðið í auknum mæli til
útlanda utan gamla háannatímans
yfir sumarið. Því höfum við aukið
tíðni sem og fjölda áfangastaða, til
að mæta þessari eftirspurn. Ferðir
Íslendinga til útlanda hafa aukist
milli ára um 10% frá síðasta ári,
fyrstu sjö mánuði ársins, og við leyf-
um okkur að vona að sú þróun hald-
ist fram á haustið.“
Þegar talið berst frekar að ferða-
mynstri Íslendinga í ferðum til út-
landa segir Þorvarður áberandi þró-
un að einu leyti. „Við höfum
klárlega séð að fólk er að fara í
styttri ferðir í einhverjum
ákveðnum tilgangi, á tónleika, fót-
boltaleiki eða bara að hafa það
huggulegt saman í erlendri borg í
leit að góðum mat og áhugaverðri
menningu, en fer um leið oftar.
Þetta er að sýna sig í auknum mæli
á kostnað þriggja og fjögurra vikna
ferða í júlí sem áður voru venjan.
Nú er fólk oft heima hjá sér á sumr-
in en bregður sér út snemma vors
og svo á haustin, í tvær til þrjár
skemmri ferðir. Það er alveg klár
breyting á ferðavenjum landans
hvað þetta varðar.“
Fólk fer oftar til útlanda
og skemur í senn
Borgarferðirnar eru í öndvegi hjá Icelandair og reglulega bætast við nýir áfangastaðir Þorvarður Guðlaugsson
segist merkja greinilega þróun í þá átt að Íslendingar fari oftar til útlanda og í skemmri ferðir hverju sinni
Morgunblaðið/Eggert
Velgengni „Ferðir Íslendinga til útlanda hafa aukist milli ára um 10% frá síðasta ári, fyrstu sjö mánuði ársins, og við leyfum okkur að vona að sú þróun haldist fram á haustið,“ segir Þorvarður.