Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í Heydal í Mjóafirði, mitt á milli
Hólmavíkur og Ísafjarðar, er rekin
ferðaþjónusta sem blómstrar allt
árið þrátt fyrir að teljast úr alfara-
leið.
Í Heydal er rekið hótel og veit-
ingastaður og boðið upp á fjöl-
breytta afþreyingu. Stella Guð-
mundsdóttir er gestgjafinn ásamt
syni sínum Gísla Pálmasyni og
tengdadótturinni Elise Plessis.
„Þetta er ellefta árið okkar núna,
við byrjuðum smátt sumarið 2003
en höfum stækkað mjög mikið síð-
an. Í vor bættum við fimm her-
bergjum við og þremur í fyrra.
Núna erum við með sautján her-
bergi, tvo sumarbústaði og tjald-
svæði,“ segir Stella.
Sumarið hefur gengið mjög vel
og verður líklega það besta frá
upphafi að sögn Stellu. „Gistingin
er búin að vera meira og minna full
í sumar og mikil aukning í veit-
ingasalnum. Það hefur verið meira
að gera hjá okkur núna en í fyrra
enda eru náttúrlega fleiri her-
bergi.“
Það eru fyrst og fremst útlend-
ingar sem sækja Heydal heim. „Ég
held að þeir séu að leita eftir
kyrrðinni, friðsældinni, við erum
svolítið út úr alfaraleið. Svo bjóðum
við upp á fjölbreytta afþreyingu,
erum með hestaferðir, kajaka og
hjólabáta, gönguferðir, veiði, míní-
golf, heita potta og litla sundlaug.
Við erum eins og vin í eyðimörk-
inni.“
Mikið heimaræktað
Frá Heydal tekur innan við
klukkustund að aka til Súðavíkur
og hálftíma lengur til Ísafjarðar.
Stella segir vegsamgöngur ágætar
þó að malarvegurinn inn dalinn sé
bara alls ekki nógu góður. „Hann
var heflaður einu sinni í vor en svo
voru miklar rigningar í sumar og
þá fór hann svolítið illa. Vegurinn
mætti vera betri en hann er samt
áreiðanlega miklu betri en margir
aðrir vegir,“ segir Stella.
Ferðaþjónustan í Heydal er opin
allt árið og segir Stella engin vand-
ræði vera með snjómokstur; mokað
sé þegar þau biðji um það. „Yfir
veturinn erum við með norður-
ljósaferðir, þá sækjum við fólk suð-
ur og förum aftur með það suður.
Það dvelur í fjórar nætur hjá okk-
ur en ferðaskrifstofur selja þessar
ferðir fyrir okkur.“
Í gömlu hlöðunni í Heydal er nú
rekinn veitingastaður og er mat-
seðillinn þar settur saman úr hrá-
efni úr heimabyggð.
„Við erum með eigið bleikjueldi
og veiðum alltaf nýjan fisk fyrir
veitingastaðinn og gröfum hann
líka og höfum á morgunverðarborð-
inu. Svo kaupum við kjöt af bónda
hér í nágrenninu, eins mikið og
hann getur látið okkur hafa. Við
erum líka með heimaræktað græn-
meti en verðum samt að kaupa
heilmikið í viðbót og verslum þá
m.a. beint við þá á Reykhólum með
tómata og gúrkur,“ segir Stella.
Áður en Stella flutti í Heydal starf-
aði hún sem skólastjóri í Kópavogi.
„Við keyptum jörðina Galtahrygg í
Heydal, sem var eyðijörð, og
byggðum þar upp sumarbústað
sem við ætluðum að hafa fyrir okk-
ur. Þá bjó bóndi hér, hann ákvað
að bregða búi árið 2000 og þá æxl-
aðist það þannig að við keyptum af
honum án þess að vita í raun og
veru hvað við ættum að gera við
þetta. En svo fæddist þessi brjál-
æðislega hugmynd. Við vissum
ekkert hvað við vorum að leggja út
í en þetta gekk allt upp og er búið
að vera mjög spennandi og ögrandi
og gaman að sjá hvernig hefur til
tekist. Við höfum fikrað okkur
hægt áfram og passað að lenda
ekki í of miklum skuldum. Við
vinnum þetta allt sjálf hér. Það er
mikið eftir ennþá en líka mikið bú-
ið,“ segir Stella.
Yfir vetrartímann vinna þau þrjú
við ferðaþjónustuna en yfir sumarið
eru þrettán til fjórtáns manns þar í
vinnu, mestmegnis erlendir starfs-
kraftar, mikið til skólafólk sem
kemur sumt ár eftir ár.
Spurð hvort hún sjái fyrir sér að
ferðaþjónustan á Íslandi eigi eftir
að þróast meira út í svona perlur
úr alfaraleið eins og í Heydal svar-
ar Stella játandi.
„Mér finnst að það hljóti að vera
það sem margir ferðamenn eru að
sækjast eftir. Ég trúi ekki að þessi
massatúrismi sé það sem fólk vill.
Við verðum að reyna að koma upp
meiru þar sem náttúran og fólkið
fær að njóta sín.“
Ferðamenn leita í friðsældina
Mikið hefur verið að gera hjá ferðaþjónustunni í Heydal í Mjóafirði í sumar Ellefta árið og fer sí-
fellt stækkandi Aðallega útlendingar í leit að ró Bjóða upp á norðurljósaferðir yfir vetrartímann
Ljósmynd/heydalur.is
Náttúrufegurð Séð heim að ferðaþjónustunni í Heydal. Þar er boðið upp á gistingu í 17 herbergjum og tveimur sumarhúsum allt árið um kring.
Kajaksiglingar Mjóifjörður þykir kjörinn fyrir kajaksiglingar. Gestgjafarnir Stella Guðmundsdóttir, Gísli Pálmason og Elise Plessis.
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind
sími 5288500
Optical Studio í Keflavík
sími 4213811
Optical Studio í Leifsstöð
sími 4250500