Morgunblaðið - 28.08.2014, Page 48
Ljósmyndir: Ómar Óskarsson
Texti: Auður Albertsdóttir
Rúmlega þrjátíu Íslendingar tóku þátt
í víkingahátíðinni í Slagelse í Dan-
mörku í sumar. Var fólkið á hátíðinni á
vegum víkingafélagsins Rimmugýgjar
sem er elsta og stærsta starfandi vík-
ingafélag landsins. Ingólfur Már
Grímsson, einn af bardagaþjálfurum
félagsins, segist ekki vera með ná-
kvæmar tölur yfir meðlimi en að þeir
séu að minnsta kosti 140 talsins. „Fé-
lagarnir sækjast eftir að fara á hátíðir
í útlöndum,“ segir Ingólfur. „Á hátíð-
inni í Slagelse vorum við rúmlega
þrjátíu.“ Að sögn Ingólfs gekk félag-
inu vel í bardagakeppninni í Slagelse.
„Öll ferðin var ótrúlega vel heppnuð
og félaginu gekk vel að keppa.“
Í bardagakeppnum á víkinga-
hátíðum er hópnum skipt í tvö lið og
fram fara orrustur milli liðanna. „Við
notum skildi, sverð, axir, spjót og
fleira. Það er allt gert til að koma and-
stæðingunum úr jafnvægi.“
Bardagi Barist var hart í Slagelse með spjótum, öxum og sverðum.
Gleði Þessi unga snót tók þátt rétt Fjölskylda Allir aldurshópar tóku þátt í hátíðinni í Slagelse. Félagar Dýr og menn sameinuðust í stemningunni á víkingahátíðinni.
Skildir,
sverð
og axir
Sverð Ekkert er gefið eftir við að láta hlutina líta út eins og á tímum víkinganna.
Grill Heilt svín var grillað á teini á
hátíðinni. Eins og víkingum sæmir.
Orrusta Víkingarnir skipta sér í
tvö lið og berjast til síðasta manns.
48 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014