Morgunblaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 50
2014
Á FERÐ UM
ÍSLAND50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Næstu níu vikurnar býðst lesendum
Morgunblaðsins að slást í för með
blaðamönnum og ljósmyndurum
blaðsins á ferð þeirra um landið þar
sem víða verður komið við. Á ferða-
laginu verður fjallað um fólk,
áhugaverða staði, menningu, at-
vinnulíf, náttúru, listalíf, merka
staði og sögu. Sérstök áhersla verð-
ur lögð á vaxtarbrodda í atvinnulíf-
inu undir yfirskriftinni Vitinn 2014.
Í þessari umfjöllun er landinu
skipt í níu svæði. Um hvert þeirra
verður fjallað í eina viku og er Vest-
urland fyrst í röðinni. Síðan liggur
leið á Snæfellsnes og í Dali, Vest-
firðir eru næstir á dagskrá og þá
tekur Norðurland við. Áfram verð-
ur haldið á Austurland, Suðurland
og síðan á Suðurnesin og síðan farið
um höfuðborgarsvæðið. Ferðinni
lýkur í Reykjavík 29. október.
Hópur ljósmyndara og blaða-
manna stendur að verkefninu, en
umsjónarmaður þess er Anna Lilja
Þórisdóttir blaðamaður. Umsjón
með Vitanum 2014 er í höndum
Guðmundar Magnússonar blaða-
manns.
Farið var í 100 daga hringferð
um landið á síðasta ári í tilefni ald-
arafmælis Morgunblaðsins og af-
raksturinn birtur á síðum blaðsins
og á mbl.is. Margt af áhugaverðasta
og besta efninu sem þar birtist má
rekja til ábendinga frá lesendum.
Ábendingar um efni eru sem fyrr
vel þegnar og tekið er á móti þeim í
netfanginu annalilja@mbl.is.
1
2
3
4
5
6
7
8 9
9
Reykjavík
Birtingardagar:
23. – 29.
október
Vesturland
Birtingardagar:
28. ágúst –
3. september
1
Snæfellsnes
og Dalir
Birtingardagar:
4. – 10.
september
2
Vestfirðir
Birtingardagar:
11. – 17.
september
3
Norðurland
Birtingardagar:
18. – 24.
september
4
Austurland
Birtingardagar:
25. september –
1. október
5
Suðurland
Birtingardagar:
2. – 8.
október
6
Suðurnes
Birtingardagar:
9. – 14.
október
7
Höfuðborgar-
svæðið
Birtingardagar:
15. – 22.
október
8
2014
Á FERÐ UM
ÍSLAND
Morgunblaðið býður lesendum í
ferð um landið næstu níu vikurnar
Farið um allt land og fjölbreytnin í fyrirrúmi Sérstök áhersla lögð á vaxtarbrodda í atvinnulífi
Morgunblaðið/Einar Falur
Regnbogi yfir Skagafirði Fjallað verður um landslag, daglegt líf, menningu
og atvinnulíf landsmanna í allri sinni fjölbreytni á ferð Morgunblaðsins.
Sjónum beint að vaxtarbrodd-
um í atvinnulífi um land allt
VITINN 2014
VI
TINN
2014
Samhliða ferðum blaðamanna og ljós-
myndara Morgunblaðsins um landið í
haust mun blaðið beina sjónum að
vaxtarbroddum í atvinnulífinu á ein-
stökum stöðum. Áherslan er á fyr-
irtæki, lítil og stór, sem eru að gera
áhugaverða hluti, hafa skapað ný at-
vinnutækifæri og tekjur í sinni
heimabyggð og eru orðin eða geta
orðið þýðingarmikil fyrir staðinn eða
stærra svæði. Umfjöllunin verður undir
yfirskriftinni Vitinn 2014 og merkt sér-
staklega og var Reykjanesviti hafður til fyr-
irmyndar við gerð merkisins.
Í lok ferðarinnar mun Morgunblaðið veita einu fyrirtæki í hverjum
landshluta sérstaka viðurkenningu. Einnig verður veitt viðurkenning á
landsvísu.
Morgunblaðið leitar í þessu sambandi eftir aðstoð lesenda sinna og
fólks sem vel þekkir til. Allar ábendingar um vaxtarbrodda í atvinnulífinu
eru vel þegnar. Netfang blaðsins fyrir upplýsingar og tilnefningar er
vitinn@mbl.is.