Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 53
landa, ekki síst til Noregs. Þeir eru
fjölmennastir í kúnnahópnum á
Vestfjörðum og það voru nær ein-
göngu Þjóðverjar sem sigldu frá
Skaganum í sumar. Við skipulagn-
ingu á Akranesi naut Magnús ráð-
gjafar Þjóðverjans Jens Kalinke,
sem haft hefur mikil afskipti af sjó-
stangaveiði hér við land.
Lyftistöng fyrir Akranes
Ferðaþjónustuna á Vest-
fjörðum hefur munað um þessar
heimsóknir nokkur þúsund Þjóð-
verja og Magnús Freyr er sann-
færður um að sjóstangaveiðin geti
orðið ferðaþjónustu á Akranesi lyfti-
stöng þegar fram líða stundir.
Ferðaþjónusta hefur reyndar verið
afar takmörkuð í bænum fram að
þessu, þar sem sjávarútvegurinn
hefur verið svo öflugur og kallað á
þorra tiltæks vinnuafls.
Hraður vöxtur
Fyrir utan tegundafjölbreytn-
ina á miðunum er styrkleiki Akra-
ness í þessari nýju grein nálægðin
við Keflavíkurflugvöll og höfuðborg-
ina, verslanir og veitingastaði og það
hve stutt er í aðra afþreyingu. Að-
staðan í höfninni í bænum þykir líka
mjög góð.
Í uppbyggingaráætlun sem
Magnús Freyr kynnti á frumkvöðla-
fundi á Akranesi í vor sagðist hann
sjá fyrir sér að starfsemin gæti vax-
ið nokkuð hratt, bátarnir verið orðn-
ir fjórir eftir tvö ár og sex árið 2017.
Samhliða verði hægt að fjölga gisti-
rýmum í tengslum við starfsemina.
Ljósmyndir/Magnús Freyr.
Sjóstangaveiði Ánægjan með aflann leynir sér ekki. Það eru einkum Þjóð-
verjar sem kveikt hafa á þessu sporti og flykkjast hingað.
Sjóstangaveiði Báturinn sem notaður er við veiðarnar rúmar sex manns. Öðrum verður bætt við næsta sumar.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
SMÁRALIND • 2 HÆÐ • SÍMI 571 3210
Skólatilboð til 31.08.2014
Skólatilboð kr. 8.995
Verð áður kr. 16.995
Ítalskur útivistarskór
Vatnsheldur
Stærðir
36-46
Lytos ARGO
Fyrir tíð Hval-
fjarðarganga
voru þrjár vega-
sjoppur með ein-
ungis nokkurra
kílómetra milli-
bili í Hvalfirð-
inum; Botnsskáli
við botn Hval-
fjarðar, Þyrill
sem nefnd var
eftir samnefndu
fjalli og Ferstikla sem er eina sjoppan sem enn er starfrækt.
Raunar er Ferstikla einungis opin á sumrin enda er umferð um
Hvalfjörð lítil miðað við það sem áður var. Á árunum 1996-1998
voru Hvalfjarðargöngin byggð og styttu þau hringveginn um
eina 55 km þar sem ekki var lengur þörf á að fara fyrir fjörðinn,
sem er 62 km leið. Enn er þó hægt að aka fyrir Hvalfjörð eftir
þjóðvegi 47. Sjá má að Botnsskáli hefur verið yfirgefinn um
langa hríð og hefur hann verið skreyttur með veggjakroti. Þyrill
er nú nýttur sem matsalur fyrir starfsfólk hvalstöðvarinnar.
vidar@mbl.is
Ferstikla stendur ein eftir
Sjoppur urðu
göngum að bráð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Botnsskáli Vegasjoppan er nú skreytt með veggjakroti. Áður var hún
sú sem næst stóð bænum þegar höfuðborgarbúar keyrðu fjörðinn.
Ferstikla Eina sjoppan sem enn er með starfsemi.
Þyrill Nú er þar afdrep fyrir starfsmenn hvalstöðvarinnar.
fólu veiðiréttareigendur árinnar
Einari að selja veiðileyfin og ann-
ast rekstur veiðihúsa. Þetta hefur
gengið vel og verður framhald á
þessu fyrirkomulagi að minnsta
kosti næstu tvö árin. Í skoðun er
endurnýjun á veiðihúsi á Rjúpna-
ási.
„Veiðimenn hér í Norðurá
mega taka fimm smálaxa á dag,
en sífellt fleirum finnst sjálfsagt
að sleppa þeim fiski sem fluguna
tekur. Sérstaklega er yngra fólkið
á þessari línu,“ segir Einar. Hann
á ásamt Óttari Yngvasyni Haf-
fjarðará, en þar er heimilt að taka
einn smálax á dag en sleppa öllu
öðru. Góð sátt er um þessar regl-
ur í Haffjarðará.
20 milljarðar króna
Þegar Morgunblaðið ræddi
við Einar í vikunni voru í Norðurá
á níunda hundrað laxar komnir á
land á vertíðinni. „Við komumst
vonandi upp fyrir þúsund fiska áð-
ur en veiðitímabilinu lýkur, 9.
september,“ segir Einar.
Hann bætir við að sér hafi
þótt ánægjulegt að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra og Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra gáfu sér tíma til að
mæta og grípa í stöng þegar veið-
in í Norðurá hófst 5. júní. Það hafi
vakið athygli og umræðu um
stangveiði, grein sem veltir um 20
milljörðum króna á ári og það
muni um minna.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarfjörður Einar Sigfússon á Norðurárbökkum. Laxfoss í baksýn.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.