Morgunblaðið - 28.08.2014, Side 54
VIÐTAL
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Það lítur aldrei vel út þegar mað-
ur liggur bara og hreyfist ekki en
ég er sem betur fer búinn að jafna
mig,“ segir Ásgeir Eyþórsson,
sem skoraði fyrsta mark knatt-
spyrnuliðs Fylkis gegn Val á
sunnudaginn í 2:0 sigri. Ásgeir
skoraði eftir hornspyrnu en þegar
hann skallaði boltann skallaði
hann líka í öxlina á Kolbeini Kára-
syni, leikmanni Vals. Við það rot-
aðist Ásgeir og féll máttvana til
jarðar. Fagnaðarlætin í stúkunni í
Árbæ urðu skammvinn og þagnaði
stúkan fljótt þegar sást að Ásgeir
fagnaði ekki markinu og heldur
ekki samherjar hans. Þess í stað
hvöttu þeir, sem og Valsmenn,
sjúkraliða að koma og það strax.
Eitthvað alvarlegt hafði greinilega
átt sér stað. Var Ásgeir fluttur
með sjúkrabíl til aðhlynningar á
Landspítalanum og fór Eyþór,
faðir hans, með.
Þekkingarleysi leikmanna og
þjálfara um höfuðhögg
Töluvert var fjallað um höfuð-
áverka á síðasta ári eftir að Elfar
Árni Aðalsteinsson, leikmaður
Breiðabliks, fékk þungt höfuðhögg
í leik gegn KR. Leikurinn var í
beinni útsendingu og var fólki
verulega brugðið við að sjá Elfar
berjast nánast fyrir lífi sínu á vell-
inum. Leikurinn var flautaður af í
kjölfar atviksins. Þar kom í ljós
ákveðið þekkingarleysi leikmanna
og þjálfara og umræða fór af stað
um hætturnar sem geta skapast í
fótboltanum.
Rannsókn sem þeir Jón Benja-
mín Sverrisson og Gunnar Örn
Jónsson gerðu á síðasta ári benti
til fákunnáttu knattspyrnuþjálfara
landsins um höfuðhögg en á
Fylkisvelli unnu margir saman
sem einn maður. Knattspyrnu-
samband Íslands, KSÍ, gaf út leið-
beiningar fyrir þjálfara og aðra
starfsmenn liða um höfuðhögg í
kjölfar atviksins í Kópavogi og
greinilegt var á Fylkisvelli að þar
fóru menn sem höfðu lesið sér til.
Pabbi sagði frá markinu
á sjúkrahúsinu
Eyþór segir að hann hafi aðeins
rankað við sér í sjúkrabílnum á
leiðinni en muni lítið eftir ferða-
laginu þangað. „Ég vaknaði svo
bara á sjúkrahúsinu með pabba
gamla mér við hlið. Hann sagði
mér að ég hefði skorað og rotast
um leið.
Það eru aðeins að rifjast upp
fyrir mér einhver atvik úr leiknum
en markið kemur ekki.
Ég horfði síðan á markið í sjón-
varpinu og það sést ekki alveg
greinilega hvað gerist. Einhvern
veginn skalla ég í öxlina á Kol-
beini og höggið kemur á skrýtinn
stað og við það rotast ég.“
Ætlar ekki að taka
neina áhættu
Ásgeir viðurkennir að það hafi
verið svolítið sérstakt að hita upp
og gera sig kláran í fótboltaleik en
vakna svo skyndilega á sjúkrahúsi.
„Ég var svolítið ruglaður og rugl-
aði bara eitthvað fyrst um sinn,“
segir hann en samkvæmt leiðbein-
ingm KSÍ er mælt með að hann
hvíli sig í viku til tíu daga. „Ég
missi alveg pottþétt af næsta leik
en svo ætti ég að vera klár í slag-
inn aftur. Læknar og sjúkra-
þjálfarar sögðu við mig að maður
þyrfti svolítið að finna það hjá sér
sjálfur hvenær væri óhætt að fara
af stað. Mann getur nefnilega far-
ið að svima ef farið er of fljótt af
stað.
Ég ætla ekki að taka neina
áhættu, það er betra að vera með
kollinn í lagi. Maður fórnar ekki
heilsunni fyrir þetta þótt ýmsu
öðru sé fórnað.“
27% leikmanna hér á
landi misst meðvitund
Þeir Benjamín og Gunnar
könnuðu í fyrra hversu margir
leikmenn í Pepsi-deildum karla
og kvenna hefðu fengið höfuð-
högg. 211 leikmenn meistara-
flokks tóku þátt og sögðu 56%
karla já við spurningunni hvort
þeir hefðu fengið höfuðhögg í leik
við eitthvað annað en að skalla
bolta. 41% var svarhlutfall
kvenna. Alls höfðu 27% leik-
manna í Pepsi-deildum karla og
kvenna misst meðvitund vegna
höfuðáverka.
Það er ekki bara á Íslandi sem
reglur um höfuðáverka í knatt-
spyrnu eru orðnar skýrari. Enska
úrvalsdeildin ákvað fyrir tímabilið
að setja nýjar reglur varðandi
höfuðmeiðsli leikmanna. Nú eru
það læknar liðanna en ekki knatt-
spyrnustjórar sem ráða því hvort
leikmaður spilar áfram eða er
skipt út af.
Kemur reglubreytingin í kjöl-
far ákvörðunar Tottenham sem
var harðlega gagnrýnd í fyrra. Þá
hélt Hugo Lloris, markvörður
liðsins, áfram leik gegn Everton
eftir að hafa misst meðvitund.
André Villas-Boas, þáverandi
stjóri Tottenham, tók ákvörðun
um að senda Lloris aftur inn á og
hrósaði honum í hástert eftir leik.
Sjálfur fékk hann bágt fyrir –
ekki bara á Englandi heldur nán-
ast frá læknasamfélaginu öllu.
Skoraði en man ekkert eftir því
Ásgeir Eyþórsson, leikmaður Fylkis, skoraði fyrsta mark Fylkis gegn Val en rotaðist um leið
Hann rankaði við sér á sjúkrahúsi og hafði ekki hugmynd að hann hefði skorað
54 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík
www.bjorg.is • Sími 553 1380
EFNALAUG
ÞVOTTAHÚS
DÚKALEIGA
GÆÐI – ÞEKKING
ÞJÓNUSTA
„Heilahristingur er áverki á heil-
ann sem veldur truflun í starf-
semi hans, sem getur birst á
margvíslegan hátt sbr. meðvit-
undarleysi, höfuðverkur, ógleði,
svimi, truflun á einbeitingu,
svefntruflanir, doði, kvíði o.fl.
Oftast koma einkenni fljótt
fram og lagast fljótt og 80-90%
ná sér alveg á 7-10 dögum. Hins
vegar geta einkenni staðið yfir
mun lengur og ekki komið fram
fyrr en nokkru eftir áverkann.
Mikil og góð hvíld, andleg og lík-
amleg, er nauðsynleg a.m.k.
fyrstu dagana eftir heilahrist-
ing. Það er því mjög mikilvægt
að taka þessa áverka alvarlega
og gefa þeim sem fyrir þeim
verða tíma til að ná sér að fullu
áður en farið er af stað á ný.“
80-90% ná
sér að fullu
ÚR LEIÐBEININGUM KSÍ
AFP
Breytt landslag Enska úrvalsdeildin hefur nú breytt reglum sínum um höf-
uðmeiðsl eftir atvik tengt Hugo Lloris, markverði Tottenham.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í lagi Ásgeir Eyþórsson, miðvörður Fylkis, skoraði sitt þriðja mark í efstu deild gegn Val en man ekkert eftir því.
Ljósmynd/EinarAS
Mark Hér má sjá hvernig Ásgeir Eyþórsson, leikmaður Fylkis, lendir á
Kolbeini Kárasyni, leikmanni Vals. Við höggið rotaðist Ásgeir.