Morgunblaðið - 28.08.2014, Page 57
FRÉTTIR 57Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Verð 34.900.-
Verð nú 27.600.-
78 stk. eftir
Verð 52.900.-
Verð nú 34.900.-
21 stk. eftir
Verð 67.500.-
Verð nú 29.900.-
9 stk. eftir
Verð 34.900.-
Verð nú 22.900.-
24 stk. eftir af bláu
Verð 52.500.-
Verð nú 34.900.-
86 stk. eftir
Verð 67.500.-
Verð 26.850.-
Verð nú 19.900.-
32 stk. eftir
upp
selt
20%-50% afsláttur til 12. september
Opið mánud. - föstud. 11-18 – lokað laugardaga ÁRMÚLA 38 – SÍMI 588 5011 – www.tivoliaudio.de
Dreifingaraðili:
HG gjafahús • Akranesi • Sími 4 31 33 33
Enn vantar á sjötta tug starfs-
manna á frístundaheimili
Reykjavíkurborgar. Erfiðlegast
hefur gengið að manna frístunda-
heimili í úthverfum borgarinnar.
Í Grafarvogi/Kjalarnesi, Mið-
borg/Hlíðum og Laugardal/Háaleiti
hafa öll börn sem sótt var um fyrir
skólabyrjun fengið frístundaheimili.
„Eins og staðan er núna þarf að
ráða í 30 stöðugildi í almennum frí-
stundaheimilum en þar sem sjaldan
er um heil stöðugildi að ræða eru
þetta u.þ.b. 59 starfsmenn sem
vantar til starfa,“ segir Sigrún
Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi
fræðslusviðs Reykjavíkurborgar, í
svari sínu við fyrirspurn Morg-
unblaðsins.
Hún bætir því við að vel hafi
gengið að manna lausar stöður á
frístundaheimilunum á und-
anförnum dögum en betur megi ef
duga skuli.
Þegar venjulegu skólastarfi lýkur
fara börn í frístundarstarf. 693
börn, víðs vegar um borgina, þurfa
hins vegar að fara í vinnuna til for-
eldra sinna eða eru svokölluð lykla-
börn og bíða komu foreldranna
heima.
„Eins og staðan er núna eru 693
börn á biðlista eftir að komast á frí-
stundaheimili, þar af eru 340 börn
sem sótt var um fyrir eftir að
skólastarf hófst.
Flest börn eru á biðlista í Árbæ,
Grafarholti og Vesturbæ enda er
nemendum að fjölga þar mest. Það
hefur gengið ágætlega að ráða í
þessi störf. Það er jafnan seinkun á
ráðningum, sem helgast helst af því
að stór hluti starfa er hlutastörf og
háskólastúdentar sem sækja í störf-
in geta ekki ráðstafað tíma sínum
fyrr en stundatöflur þeirra liggja
fyrir,“ segir Sigrún, en frístunda-
leiðbeinandi á frístundaheimili er
með 120–125 þúsund krónur í mán-
aðarlaun – eftir aldri. benedikt-
@mbl.is
Erfiðlega gengur að
manna frístundaheimili
Morgunblaðið/Ómar
Bið Alls eru 14 af 39 frístundaheimilum borgarinnar fullmönnuð. Um 59 starfsmenn vantar enn í 30 stöðugildi.