Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
T
ómas J. Gestsson hjá Heims-
ferðum segir áherslurnar í
ferðalögum á haustin í takt
við þær breytingar sem
verða á lífi landans á þessum árs-
tíma. „Í lok sumars fækkar fjöl-
skylduferðunum enda eru skólar að
byrja. Sumarið er tími fjölskyldu-
ferða á sólarstrendur á stöðum eins
og Tenerife, Alicante og Costa del
Sol en á haustin eru það aðallega
pör, einstaklingar og minni hópar
sem ferðast.“
Segir Tómas örfá sæti laus til Te-
nerife í september og október. Um
miðjan október byrjar flug til Kan-
aríeyja og Alicante, en dregur úr
ferðum til strandsvæða eins og Krít-
ar og Bodrum í Tyrklandi þegar líð-
ur á haustið.
Frá árinu 2009 hefur salan hjá
Heimsferðum aukist um u.þ.b. 20%
á hverju ári og segir Tómas að
fjöldi seldra ferða sé nú farinn að
nálgast það sem var árið 2006. Auk-
in eftirspurn þýðir að hægt er að
bjóða upp á fleiri áfangastaði og í
ár bætast t.d. við þrjár nýjar borgir
í Evrópu til að heimsækja.
Gestir inn og út
Segir Tómas að áhugi erlendra
gesta á Íslandi hjálpi líka til við að
auka framboðið og í tilviki nýrra
borga á borð við Valencia, Bratislava
og Lissabon fljúga vélarnar aðra
leiðina með íslenska farþega og hina
með erlenda gesti til Íslands, á veg-
um systurskrifstofu Heimsferða,
Terra Nova.
Þessar nýju borgir eru alls ekki af
lakara taginu: „Lissabon er mjög
áhugaverð borg og falleg og sam-
kvæmt öllum könnunum líka ódýr
áfangastaður. Er flogið þangað á
þeim tíma árs þegar reikna má með
mjög þægilegu hitastigi,“ útskýrir
Tómas. „Flogið er til Valencia 9.
október en borgin þykir ein sú feg-
ursta á Spáni, þekkt fyrir mat-
armenningu, vegleg listasöfn og ið-
andi mannlíf.“
Farnar verða tvær ferðir til Brat-
islava í haust, 11. september og 16.
október. „Stundum köllum við höf-
uðborg Slóvakíu „litlu Prag“, með
sinn rómantíska gamla miðbæ og
kastala. Örstutt er líka með lest yfir
til Vínarborgar.“
Eyðimerkursjarmi
Í seinni tíð virðast Íslendingar í
auknum mæli hafa uppgötvað undur
Marokkós. Þetta merkilega land á
NV-horni Afríku er nú komið í
ferðaframboð Heimsferða og flogið
til strandborgarinnar Agadir 27.
október. „Agadir varð fyrir valinu
sem mjög góður áfangastaður fyrir
sóldýrkendur en þaðan er líka stutt
að fara með nýrri hraðbraut austur
til Marrakesh, með sinn fræga út-
ímarkað og notalegu kaffihús. Er
einnig í boði sérferð um suðurhluta
Marokkós þar sem dvalið er í litlum
og heillandi bæjum og borgum á
borð við Marrakesh og Agadir, ekið
um stærstu pálmalundi Norður-
Afríku, ilmandi ávaxtahéruð og hin
hrikalegu Atlasfjöll, að sjálfsögðu
einnig með úlfaldareið í Sahara og
gist yfir nótt í berbatjaldi.“
Fleiri áfangastaðir með aukinni eftirspurn
Bratislava, Valencia og Lissabon bætast við úrvalið í haust Aukinn áhugi útlendinga á að koma til Íslands auðveld-
ar ferðaskrifstofum að bæta við flugleiðum Einnig flogið á marokkósku borgina Agadir, steinsnar frá Marrakesh
Morgunblaðið/Ómar
Mannlíf Farþegar stíga út úr fagurgulum sporvagni í Lissabon. Portúgal er fallegur og skemmtilegur staður heim að sækja og einn ódýrasti áfangastaður Evrópu.
Morgunblaðið/Golli
Undur „Agadir varð fyrir valinu sem mjög góður áfangastaður fyrir sól-
dýrkendur en þaðan er líka stutt að fara með nýrri hraðbraut austur til
Marrakesh,“ segir Tómas hjá Heimsferðum um Marokkóferðina.
Æ fleiri láta það eftir sér að fara
í siglingu á skemmtiferðaskipi.
Segir Tómas að Heimsferðir
sendi árlega um 300 manns í sigl-
ingar hér og þar um heiminn. Í
vetur eru m.a. í boði ferðir um
Karabíska hafið og frá Dubaí
upp Persaflóann. „Þá erum við
að selja í heimsreisu árið 2016
þar sem siglt er umhverfis jörð-
ina á 109 dögum. Er farið frá
Ítalíu til Sánar, suður til Brasilíu
og áfram til Argentínu, Síle, Pó-
lýnesíu og Nýja-Sjálands. Áfram
heldur skipið með viðkomu á
Indlandi, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum og Egyptalandi,
svo aðeins séu nefndir nokkrir
staðir.“
Vaxandi vinsældir slíkra
skemmtisiglinga segir Tómas að
geti m.a. skrifast á að íslenskir
ferðalangar hafa lært að slíkar
ferðir eru ódýrari en fólk al-
mennt heldur. Tekur hann sem
dæmi ódýrustu siglinguna í vet-
ur, sem varir í 10 nætur og kost-
ar 319.900 kr. á gest með öllu
inniföldu. Stóra heimsreisan,
sem tekur ríflega þrjá mánuði,
kostar 1.880 þús. kr. á mann eða
ríflega 17.000 kr. á dag.“
Um borð í stóru skemmti-
ferðaskipunum má segja að finna
megi allt til alls. Er hægt að
ganga að því vísu að skipin reki
marga góða veitingastaði, lík-
amsrækt og spa. „Um borð eru
kvikmyndasalir og leikhús og á
hverju kvöldi tónleika- og
skemmtidagskrá með völdum
listamönnum. Hægt er að slaka á
á sólbekk, taka sprett í sundlaug-
inni, dansa við lifandi tónlist á
kvöldin eða freista gæfunnar í
spilavíti. Sum skipanna eru nán-
ast eins og fljótandi borgir með
3-4.000 manns um borð.“
Andinn um borð getur verið
breytilegur eftir skipum. Sumar
ferðirnar eru miklar galsa- og
gleðiferðir og aðrar rólegar og
rómantískar. „Ekki þarf að taka
með smókingjakkann en iðulega
er ætlast til snyrtilegs klæðnaðar
í kvöldverðinum. Yfir daginn og í
kynnisferðum í landi er að sjálf-
sögðu hið besta mál að vera í
stuttbuxum eða gallabuxum og
bol.“
Sigla kringum
jörðina á 109 dögum
HAUSTferðir 2014